Fréttablaðið - 10.09.2020, Page 25
KYNNINGARBLAÐ 3 F I M MT U DAG U R 1 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 HJÁLPRÆÐISHERINN
Sjálfboðaliðar óskast!
Ýmis verkefni.
Velferðarstarf
Barna- og unglingastarf
Hertex, fata- og nytjamarkaður
Sjálfboðaliðanámskeið
Reykjavík, Suðurlandsbraut 72:
24. sept. kl. 18:30 (á íslensku)
29. sept. kl. 18:30 (á ensku)
Reykjanesbæ, Flugvallarbraut 730:
22. sept. kl. 18:30 (á íslensku)
Við óskum Hjálpræðishernum innilega til hamingju með nýtt og glæsilegt húsnæði
Rafþjónustan
Undirstaðan í allri starfsemi og þjónustu Hersins felst í að breiða út kristilegan
boðskap þar sem kærleikur og
mannvirðing eru í hávegum höfð.
Markmið starfsemi barna- og
unglingastarfs Hjálpræðishersins
er að mæta þeirri þörf sem er í
samfélaginu hverju sinni.
Máltíðin mikilvæg
Meðal þess sem nú er boðið upp
á er „Opið hús“, þar sem börnum
gefst kostur á að fá heita máltíð, og
aðstoð við heimanám, þar sem létt
er undan álagi á barnafjölskyldur
og þeim gert kleift að njóta fleiri
gæðastunda saman.
Opnu húsin eru ekki með sama
sniði í Reykjavík og á Akureyri.
Á Akureyri er það fyrir börn á
grunnskólaaldri og fjölskyldur
þeirra. Markmiðið er að koma til
móts við fjölskyldur með börn
sem eru á grunnskólaaldri og
létta undir álaginu sem fylgir
gjarnan hversdagslífinu og ekki
síst hinum alræmda úlfatíma. Þar
er boðið upp á heitan mat og gefst
fjölskyldum því kostur á að eiga
saman afslappaða gæðastund.
Í Reykjavík er opna húsið hugsað
fyrir börn og unglinga, frá 4. bekk
og upp úr. Þar er vel tekið á móti
börnunum, skipulögð dagskrá
með leikjum og ýmsu skemmti-
legu auk þess sem allir sem það
vilja fá svo heita máltíð.
Aðstoð við heimanám
Börnum og unglingum stendur þá
til boða að fá aðstoð við heima-
nám í Hjálpræðishernum í Reykja-
vík og er sú þjónusta ætluð öllum
börnum sama á hvaða námsstigi,
og fer hún fram tvisvar í viku.
Mörg börn búa við aðstæður þar
sem enginn heima getur aðstoðað,
eða foreldrarnir eru svo önnum
kafnir að gæðastundirnar glatast,
á kostnað togstreitunnar sem fylgt
getur heimalærdómi. Úrræði af
þessu tagi getur því bersýnilega
haft veruleg áhrif á velferð fjölda
barna og fjölskyldna þeirra.
Starfinu sinna sjálf boðaliðar
á öllum aldri, margir kennara-
menntaðir og jafnvel komnir á
eftirlaun. Þá er stefnt að sam-
starfi við Háskóla Íslands, þar
sem háskólanemendur koma að
verkefninu.
Þessi þjónusta hefur til dæmis
reynst afar vel í Breiðholti þar
sem margir íbúar eru af erlendum
uppruna og foreldrar oft með
takmarkaða íslenskukunnáttu.
Herinn leggur ríka áherslu á að
veita þessum hópi sérstakan
stuðning, en það getur verið snúið
fyrir erlenda foreldra að hjálpa til
með íslenskt heimanám.
Föndur og fermingar
Annað framtak sem hefur hlotið
góðar undirtektir er hin svokall-
aða „Messy Church“ eða föndur-
kirkja, sem er einu sinni í mánuði
og er hugsuð fyrir alla fjölskylduna
að koma og gera eitthvað saman.
Þar er lesin Biblíusaga og svo
föndrað út frá henni á skapandi og
fræðandi hátt. Að lokum er boðið
upp á máltíð.
Þá er einnig hægt að fermast
í Hjálpræðishernum, en þar er
boðið upp á fermingarfræðslu sem
er sambærileg þeirri sem fram fer í
Fjölskyldustarf á hærra plani
Barna- og unglingastarf Hjálpræðishersins, BUH, er fjölbreytt og öflugt. Auk hefðbundins æsku-
lýðsstarfs er boðið upp á ýmsa þjónustu sem miðar að því að styðja við börn og fjölskyldur.
Hvað er Hjálpræðisherinn fyrir þér?
Hér deila fjórir einstaklingar
sinni upplifun af því að taka þátt í
barna- og unglingastarfi Hjálp-
ræðishersins.
Aníta, móðir sem á
börn í starfinu:
„Hjálpræðisher-
inn er staður
sem hefur
skapað tæki-
færi til að eiga
gæðastundir
með fjölskyldunni,
kynnast fjölbreyttu fólki í sam-
félaginu og láta gott af sér leiða á
sama tíma.“
Fatima, þátttakandi í unglinga-
starfi: „Það er
staður þar sem
ég og vinir mín-
ir hittast eftir
hljómsveit-
aræfingu hjá
mér. Við spilum,
syngjum, gerum
TikTok, horfum á bíómyndir og
leikum okkur saman. Linda Björk,
Didda, Almar, Hjördís, Valborg,
Viktoría og Andrea eru ótrúlega
skemmtileg og bjóða alla vel-
komna.“
Almar Ingi,
leiðtogi í BUH:
„Fyrir mér er
Hjálpræðis-
herinn seinna
heimilið mitt.
Staður sem er
ávallt til staðar, sama hvað er
í gangi hjá manni. Mjög þakk-
látur að hafa á sínum tíma mætt
í sunnudaga skóla og hef verið í
Hjálpræðishernum síðan. Hjálp-
ræðisherinn er og verður alltaf
hluti af mér og staður sem hefur
hjálpað mér að vaxa
sem manneskja.“
Viktor, þátt-
takandi í
unglingastarfi:
„Hjálpræðis-
herinn er frábær
staður sem ég
og vinir mínir förum á. Þar er
geggjaður matur og manni líður
æðislega vel, alltaf fullt að gera,
alls konar leikir og margt annað.
Starfsfólkið er yndislegt og tekur
alltaf vel á móti manni, svolítið
eins og stór systkini. Ég hlakka til
allra miðvikudaga, því þá veit ég
að það er Hjálpræðisherinn.“
Það hefur
reynst afar vel
að bjóða upp
á heita máltíð
í barnastarfi
Hjálpræðis-
hersins.
Það er alltaf nóg um að vera í barna- og unglingastarfi Hjálpræðishersins.
Markmiðið er að
koma til móts við
fjölskyldur með börn
sem eru á grunnskóla-
aldri og létta undir
álaginu sem fylgir gjarn-
an hversdagslífinu og
ekki síst hinum alræmda
úlfatíma.
til dæmis Þjóðkirkjunni. Á haustin
fara svo fermingarbörnin í ferð
til Noregs í viku, en Hjálpræðis-
herinn á Íslandi tilheyrir sama
umdæmi og Hjálpræðisherinn í
Noregi og Færeyjum. Á haustin
hefjast svo foreldramorgnar ásamt
viðburðum af ýmsu tagi.
Í barna- og unglingastarfinu
eru öll börn velkomin og eru mörg
dæmi þess að börn sem finni sig
ekki í annars konar tómstundum,
íþróttum eða félagsmiðstöðvum,
finni sig loks þar. Í starfinu fá börn
óskipta athygli ásamt því að fá að
vera þau sjálf, hitta vini sína, leika
eða slappa af, en stundum bjóða
fjölskylduaðstæður því miður ekki
upp á það.
Barna- og unglingastarf Hjálp-
ræðishersins er starfrækt í Reykja-
vík, á Akureyri og í Reykjanesbæ,
en í Reykjanesbæ mun Hjálp-
ræðisherinn hefja samstarf við
KFUM og KFUK um unglingastarf
á Ásbrú. Nálgast má frekari upp-
lýsingar og dagskrá á heimasíðu
Hjálpræðishersins, herinn.is.