Fréttablaðið - 10.09.2020, Side 42
SVO ÞRÓAÐIST ÞETTA
ÁFRAM OG ÉG SÓTTI
UM Í ICELAND GOT TALENT. ÉG
KOMST INN OG Í ÚTSENDINGU.
NEMA SVO FÉKK ÉG NEI FRÁ
BUBBA, ÞESS VEGNA ERUM VIÐ
EKKI VINIR Í DAG.
Barþjónninn og tón-listarmaðurinn Teitur R idder ma n S c iöt h heldur vinsæl karókí-kvöld alla fimmtudaga á skemmtist aðnum
Miami, þar sem hann gengur undir
listamannsnafninu Teitur Riddari.
Hann hefur vakið mikla athygli
fyrir líf lega og skemmtilega fram-
komu, en hann algjörlega elskar það
að koma fram. Hann segist hafa náð
að sameina sín helstu áhugamál í
barþjónastarfinu: góða kokteila og
að skemmta fólki. Hann hefur verið
furðu lengi í bransanum þrátt fyrir
aldur, en hann er 27 ára gamall.
„Ég byrjaði fyrir meira en áratug.
Um leið og ég byrjaði í menntaskóla
langaði mig að verða kokkur. Ég
byrjaði á Grillinu og sótti um samn-
ing þar. Ég fékk þá smá svona upp-
lifunina af því að vinna í eldhúsi. En
ég fílaði það svo ekki, mér fannst ég
þurfa að vera meira í kringum fólk,
meira í sviðsljósinu. Ég er dálítið
þannig týpa, ég þarf þessa athygli,“
segir Teitur hlæjandi.
Innblásinn af teiknimyndum
Hann hafi því ákveðið að færa sig
yfir í það að starfa sem þjónn á veit-
ingastaðnum Höfninni við Reykja-
víkurhöfn.
„Það er í raun þar sem þetta allt
byrjaði. Þegar ég var 16 ára byrja
ég þar. Fyrst um sinn er ég bara að
þjóna, ég fer ekki beint í að vinna á
barnum. En áhuginn kviknar þar
og reyndar líka í gegnum japanska
teiknimyndaseríu sem heitir Bar-
tender. Hún snýst um hvað bar-
þjónninn er mikilvægur. Hann er
sálfræðingur, hann spjallar við
fólkið ásamt því að skemmta því og
reiða fram drykki. Mér fannst það
svo áhugavert og barþjónastarfið
þá einhvern veginn einmitt ná að
sameina mín helstu áhugamál,“
segir hann.
Hann fór því næst að vinna á
Slippbarnum, þar sem hann segist
hafa virkilega náð að fóta sig og
finna sig sem barþjónn í fyrsta sinn.
„Það er mitt svona alvöru gigg.
Þar á undan hafði ég samt unnið
á 101 Hóteli. Það er í raun enginn
sérstakur skóli fyrir barþjónninn
en mörg og góð námskeið, eins og
European Bartender School. Ég tók
það námskeið í Tælandi árið 2012.
Hérna á Íslandi lærir maður mest
bara af reynslunni, en þetta er ekki
einhver háskólagráða.“
Húðflúr í stíl
Teitur f lutti því næst með vini
sínum Helga Aroni Ágústssyni til
Þýskalands, þar sem þeir fengu
vinnu á bar.
„Síðan flyt ég aftur heim og byrja
á ný á Slippbarnum. Meistarinn
minn, eins og ég kalla hann, Ásgeir
Már Björnsson, kennir mér mest allt
af því sem ég kann þar. Ég er honum
afskaplega þakklátur, svona fyrir
allt það sem hann gerði og kenndi
mér.“
Barþjónninn knái skartar forláta
húðflúri af f lamingófugli í kokteil-
glasi á handleggnum.
„Við teymið í kringum Pablo Dis-
cobar, ákváðum eftir að hafa komist
langt í alþjóðlegri samkeppni um
besta barinn, að fá okkur tattú í
stíl. Svona aðeins upp á móralinn
og heildina, þjappa liðinu saman
og tengja á þennan hátt. Þetta var
auðvitað mín hugmynd. Við vorum
ánægðir með gengið í keppninni og
fannst kjörið að fagna því á þennan
máta,“
Draumurinn er Eurovision
Tónlistin var stórt áhugamál Teits
alveg frá því menntaskóla, en hann
syngur og spilar á gítar.
„Ég stefndi alltaf á það að verða
tónlistarmaður. Ég var mikið
að syngja, mikið til dæmis að
trúbador ast á þessum tíma. Bara
úti um allt, mér var aldrei borgað
fyrir það. Svo þróaðist þetta áfram
og ég sótti um í Iceland Got Talent.
Ég komst inn og í útsendingu. Nema
svo fékk ég nei frá Bubba, þess vegna
erum við ekki vinir í dag,“ segir
hann hlæjandi.
Hann segist hafa verið nokkuð
sár við við Bubba og ætlað að senda
honum línu á Facebook.
„En samt, á sama tíma var þetta
ekkert mín besta framkoma. Maður
fer þarna á sviðið fyrir framan fullt
af áhorfendum og er alveg einn
svona í fyrsta sinn. Þannig að ég skil
þetta alveg. Ég bætti honum við sem
vini og hann samþykkti mig um
leið. En ég sendi honum aldrei neitt
en nýt þess að fylgjast með status-
unum hans,“ segir Teitur.
Teitur lét ekki staðar numið
eftir að hafa fengið að upplifa vott
af frægðinni og glamúrlífinu sem
fylgir raunveruleikasjónvarpi. Því
var ekkert í stöðunni annað en að
sækja um í The Voice.
„Komst þar líka inn og var í
útsendingu og allt, en datt út í fyrstu
umferð. Ég er alveg stoltur af því að
hafa gert þetta. Maður fær þarna
tækifæri í sviðsljósinu að vissu
leyti.“
Teitur sendi inn Eurovision lag í
undankeppnina í fyrra en náði ekki
inn í það skiptið. Hann lætur það
ekki stoppa sig og ætlar hreinlega
að halda áfram að senda inn lög þar
til hann kemst inn.
„Lagið gerði ég með Seth Sharp.
Mér fannst lagið mjög gott en
vantaði vissulega kannski aðeins
upp á vinnsluna. Við ætlum klár-
lega að senda inn næst og ég mun
ekki hætta fyrr en ég fær að keppa í
Eurovision. Ég algjörlega elska þessa
keppni, ég er smá svona eins og
krakkinn í Eurovision-myndinni.
Ég man svo innilega eftir því þegar
Selma var í öðru sæti, það er bara
mjög stór minning úr minni æsku,
hvað allir voru glaðir og það var
gaman,“ segir hann.
Tónlistin og fjörið
Karókí hefur lengi verið áhugamál
Teits, sem byrjaði fyrst að stunda
það fyrir alvöru á Glaumbar á
sínum tíma.
„Mér hefur einfaldlega bara
alltaf þótt svo gaman að syngja og
koma fram. Það er í raun það sem
veitir mér hamingju, að syngja
fyrir framan fólk sem klappar og
er í stuði. Það er bara besta tilfinn-
ing í heimi. En barþjónamennskan
hefur líka veitt mér svipaða gleði og
þessi tvö áhugamál blandast mjög
vel saman.“
Hann segir það alveg opið hvort
hann gefi eitthvað út á næstunni.
„Það er svo sem nóg að gera í
öllu hinu. Ég syng bæði á ensku og
íslensku, en hef enn sem komið
er ekki gefið neitt út. En maður er
alveg með efni sem vonandi kemur
út síðar. Þetta hefur samt alltaf verið
draumurinn, frá því ég man eftir
mér. Tónlistin heldur mér gangandi.
Tónlistin og fjörið.“
Teit hafði lengi langað að byrja
með karókíkvöld og þá reyna að
vanda til verksins og einblína á hluti
sem honum sjálfum fannst vanta
upp á á slíkum kvöldum.
„Mér hafði alltaf fundist eitt-
hvað vanta, til dæmis ekki nógu
gott hljóðkerfi eða bara almennt
ekki nægilegt stuð í gangi. Þannig
að ég bara kom með hugmyndina
til eigenda Miami og að vera með
alvöru hljóðkerfi. Mér finnst þetta
líka ekki snúast um hvað þú ert
góður söngvari. Þetta snýst um
að fara upp á svið, líða vel og fá að
koma fram. Að fá klappið og „kick“-
ið. Þess vegna reyni ég svo mikið að
peppa það að allir hafi gaman. Fólk
þarf að hafa gaman, þetta snýst allt
um það,“ segir Teitur.
Undanfarið hefur Teitur starfað
á einu glæsilegast hóteli landsins,
Deplar farm.
„Það var æðislegt tækifæri fyrir
mig og hefur verið einstök lífs-
reynsla. Þar hefur maður hitt
margar stórstjörnur en maður er
náttúrulega bundinn ákveðinni
þagnarskyldu þannig að ég fer ekki
nánar út í það. Þú nærð engu upp úr
mér með það,“ segir hann brosandi.
Karókíkvöld Teits Riddara fara
fram alla fimmtudaga á Miami við
Hverfisgötu.
steingerdur@frettabladid.is
Tónlistin
heldur mér
gangandi
Teitur Riddari heldur úti karókíkvöldum á
skemmtistaðnum Miami. Hann hefur vakið
athygli fyrir skemmtilega framkomu. Hann
tók þátt í Iceland Got Talent og The Voice,
en draumurinn er þátttaka í Eurovision.
Teitur segist
hafa náð að
sameina sín
helstu áhuga-
mál, kokteila
og það að
skemmta fólki,
í barþjónastarf-
inu. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ANTON
BRINK
1 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R28 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ