Fréttablaðið - 10.09.2020, Side 43

Fréttablaðið - 10.09.2020, Side 43
MJÓLKURBIKAR KARLA 8 LIÐA ÚRSLIT FIMMTUDAG 16:15 Tryggðu þér áskrift í dag á stod2.is FIMMTUDAG 19:00 FIMMTUDAG 19:05 Ljósmyndarinn Brynjar Snær Þrastarson hefur myndað íslensku lista-senuna í um áratug. Þá lauk hann námi í ljós-myndun og hefur alltaf haft mestan áhuga á að mynda fólk, þá sérstaklega listafólk. Hann á margar skemmtilegar og góðar minningar frá starfinu, en nú stend- ur yfir stór sýning á verkum hans frá upphafi í skemmtilegu rými við Laugaveg 7. Eftirminnileg taka „Þetta er fyrsta stóra einkasýningin mín, en ég hef áður tekið þátt í sam- sýningum,“ segir Brynjar. Inntur eftir því hvort eitthvert viðfangsefni standi upp úr fyrir honum, nefnir Brynjar um leið Vig- dísi Finnbogadóttur fyrrverandi forseta. „Já, það var eftirminnileg mynda- taka. Mér tókst að brjóta stól sem var gjöf til Vigdísar frá forseta Tyrk- lands. Ég stóð uppi á stól að taka myndir heima hjá henni. Svo heyr- ist allt í einu brak. Ég horfi framan í Vigdísi alveg skelkaður. Hún brosir bara og segir „Blessaður, Brynjar minn, það hefur alltaf verið vesen á þessum stól.“ Edda og Bill Hann segir það ekki síður eftir- minnilegt þegar hann fékk að mynda stórleikarann Bill Murray í Hörpu, en hann var þá með tónleika á landinu. Hann hafi byrjað að ræða við Bill um myndina Quick Change, sem Brynjar heldur mikið upp á. „Ég talaði við hann í dágóða stund og ákveð svo að kynna hann fyrir Eddu Björgvinsdóttur leikkonu og vinkonu minni. Ég tók þau í smá rúnt um Hörpuna og tók myndir af þeim. Ég vildi endilega ná mynd af þeim Eddu saman, þar sem hún er svona íslenski Bill Murray,“ segir Brynjar og hlær. Hann segir Bill vera hinn viðkunnanlegasta mann. Br ynjar hefur líka myndað hljómsveitirnar Wu-Tang Clan og Public Enemy og segir tökuna með þeim síðarnefndu hafa verið afar sérstaka lífsreynslu. „Þeir eru náttúrulega með heilt teymi af öryggisvörðum og svo fékk ég að vera uppi á sviði með þeim að mynda. Það er mjög sjaldgæft.“ Lítið í náttúrulífsmyndum Manneskjan er uppáhaldsviðfangs- efni Brynjars, sem er lítið í nátt- úrulífsmyndum eða öðru svipuðu. Þekkt fólk er áberandi á myndum Brynjars, sem saman sýna einnig góðan þverskurð af miðbæjarsen- unni í Reykjavík. „Ég hef til dæmis myndað marga plötusnúða og listamenn hérna í miðbænum. Ég hef áhuga á að mynda áhugavert og skemmtilegt fólk.“ Árið 2013 gaf Brynjar út bókina Boston/Reykjavík, sem sý ndi fastagesti skemmtistaðarins sál- uga, Boston. Þá var mikil gróska og staðurinn vinsæll meðal lista- manna í kjölfar lokunar skemmti- staðarins Sirkuss. „Þar héngu allir listamennirnir fyrst, það breyttist þó aðeins með tímanum,“ segir hann. Brynjar er duglegur að bæta á sýninguna jafnóðum því af mörgu er að taka. Sýningin stendur yfir út mánuðinn. steingerdur@frettabladid.is Fangaði augnablik Eddu og Bill Murray Brynjar Snær Þrastarson stendur nú fyrir ljómyndasýningu á Laugarvegi. Hann hefur myndað ófáa þekkta íslendinga og fólk í listasenunni hérlendis, heimþekktan grínista og hljómsveitir. Brynjar hefur beint linsunni að íslensku listasenunni í rúman áratug og hefur af nógu að taka. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Brynjar Snær greip tækifærið og kynnti Eddu Björgvinsdóttur og Bill Murray og festi þau síðan saman á filmu á göngum Hörpu. MYND/BRYNJAR SNÆR ÉG VILDI ENDILEGA NÁ MYND AF ÞEIM EDDU SAMAN, ÞAR SEM HÚN ER SVONA ÍSLENSKI BILL MURRAY. FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 29F I M M T U D A G U R 1 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.