Fréttablaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 0 1 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 1 7 . S E P T E M B E R 2 0 2 0
fermingargjafir
frábærar
í úrvali...
Krakkarnir í sjöunda bekk Kársnesskóla í Kópavogi fögnuðu degi íslenskrar náttúru í gær. Leituðu þau að furðuverum í fjörunni og gerðu skúlptúra úr þara. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
NETÖRYGGI Svokölluð ástarsvik
hafa verið að færast í vöxt undan-
farna mánuði og konur eru í aukn-
um mæli orðin fórnarlömb þeirra.
Um er að ræða tegund svika þar
sem svikahrapparnir spila inn á
tilfinningar fórnarlambsins og oft
býr mikil vinna að baki. „Þetta eru
úthugsuð svik og við sjáum dæmi
þess að undirbúningur þeirra hefur
staðið yfir í langan tíma,“ segir Her-
mann Snorrason, sérfræðingur hjá
Landsbankanum.
Undirbúningur svikahrappanna
felst í því að vera með mjög sann-
færandi síður á samfélagsmiðlum
með fjölskyldumyndum og öðrum
upplýsingum. Þá grafa svikahrapp-
arnir upp margs konar upplýsingar
um fórnarlömbin sem þeir reyna að
nýta sér, til dæmis sára reynslu eins
og makamissi eða skilnað.
Landsbankinn hóf að skilgreina
ástarsvik sérstaklega árið 2017 og
síðan þá hafa 48 tilvik ástarsvika
gegn viðskiptavinum verið skráð.
„Fyrstu átta mánuði ársins 2020
eru tilvikin orðin fleiri en allt árið
2019. Þá sjáum við líka að f leiri
konur eru að verða fyrir barðinu á
slíkum svikum en áður voru karlar
á sextugs- og sjötugsaldri í miklum
meirihluta.“
Að sögn Hermanns er þó viðbúið
að tilvikin séu mun fleiri. „Það sem
einkennir þessi svik er sú gríðarlega
skömm sem fórnarlömbin upplifa
yfir því að hafa verið blekkt með
þessum hætti. Okkur grunar því að
tilvikin séu mun fleiri en fólk veigri
sér við að tilkynna þau.“
Tjón viðskiptavina bankans
hlaupi á tugum milljóna króna og
mikilvægt sé að viðskiptavinir séu
meðvitaðir um hættuna. „Þessi svik
fylgja oft svipuðum handritum og
því vonumst við til að geta snúið
þessari þróun við með upplýsing-
um og fræðslu,“ segir Hermann. – bþ
Ástarsvik færast í vöxt
Svikum þar sem svikahrappar herja á fórnarlömb í viðkvæmri stöðu hefur
fjölgað töluvert. Tjón viðskiptavina Landsbankans nemur tugum milljóna.
Hermann
Snorrason
HEILBRIGÐISMÁL Sjúkraliðafélag
Íslands er á leið í átak þar sem barist
verður gegn því að heilbrigðisstofn-
anir ráði til sín ófaglært starfsfólk í
störf sjúkraliða.
Fram kom í máli Söndru B.
Franks, formanns Sjúkraliðafélags
Íslands, á fulltrúaþingi Sjúkra-
liðafélagsins, að þörf væri á f leiri
sjúkraliðum og tækifæri væru til
þróunar í starfi.
Sandra segir stjórnendur, til
dæmis hjúkrunarheimila, vel vita
af því að bannað sé að ráða aðra en
sjúkraliða til sérhæfðra umönn-
unar- og hjúkrunarstarfa, nema
áður hafi verið auglýst eftir sjúkra-
liðum.
„Stofnanir eru mögulega að reyna
að spara við sig með því að ráða
ódýrara vinnuaf l, en þær mega
það ekki nema búið sé að reyna til
þrautar að fá sjúkraliða. Við þurfum
að tryggja að þetta verði aldrei gert.“
– ab / sjá síðu 6
Sjúkraliðar ætla
í átaksverkefni
STJÓRNMÁL Helga Vala Helgadóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar,
hefur tilkynnt framboð sitt til
varaformanns sem kjörinn verður
á landsfundi flokksins í nóvember.
Sitjandi varaformaður flokksins,
Heiða Björg Hilmisdóttir borgar-
fulltrúi og formaður velferðarráðs
Reykjavíkur, hefur ekki gefið annað
til kynna en hún hyggist gegna
embættinu áfram og að óbreyttu
verður kosið milli þeirra tveggja á
landsfundinum.
Helga segir varaformanninn
gegna mikilvægu hlutverki við að
efla liðsheildina og þjappa flokks-
fólki saman í vetur. – aá / sjá síðu 4
Helga Vala sækir
fram í flokknum
Helga Vala
Helgadóttir