Fréttablaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 4
Þegar fólk er búið
að venja sig á slæma
líkamsstöðu þá getur það
verið óafturkræft nema það
þjálfi sig upp að
nýju.
Gauti Grétarsson
sjúkraþjálfari
Lögreglan segir formlega
leit ekki hafna.
Að óbreyttu mun valið
standa milli Helgu Völu og
Heiðu Bjargar Hilmisdóttur,
sitjandi varaformanns.
jeep.is
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
ALLAR BREYTINGAR UNNAR AF BREYTINGARVERKSTÆÐI ÍSBAND
40” BREYTTUR 35” BREYTTUR ÓBREYTTUR
JEEP® WRANGLER RUBICON – VERÐ FRÁ: 10.990.000 KR.
• BENSÍN 273 HÖ / DÍSEL 200 HÖ
• 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING
• ROCK-TRACK® FJÓRHJÓLADRIF
• SELECT-TRAC® MILLIKASSI
• TRU-LOCK® 100% DRIFLÆSINGAR AÐ FRAMAN OG AFTAN
• AFTENGJANLEG JAFNVÆGISSTÖNG AÐ FRAMAN
ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
JEEP® WRANGLER BREYTTIR OG ÓBREYTTIR
• HEAVY DUTY FRAM- OG AFTURHÁSING
• BAKKMYNDAVÉL MEÐ BÍLASTÆÐAAÐSTOÐ
HEILBRIGÐISMÁL „Það er meira að
gera núna en var í september í fyrra,
þá var reyndar líka mikið að gera,“
segir Gauti Grétarsson sjúkraþjálf-
ari. Hann segir að fjölgun þeirra
sem leiti til sjúkraþjálfara nú megi
að miklu leyti rekja til COVID-19
faraldursins og afleiðinga hans.
Skipta má þeim sem leita til
sjúkraþjálfara af völdum COVID-
19 í fimm hópa. „Þeir sem hafa orðið
veikir af COVID geta glímt við stoð-
kerfisvandamál sem rekja má til
lungnabólgunnar og að hafa legið í
rúminu í tvær til fjórar vikur. Þegar
fólk er búið að ná sér af sýkingunni
þá vill það byrja á sama stað aftur,“
segir Gauti.
Nefnir hann sem dæmi einstak-
ling sem stundaði hlaup áður en
hann veiktist. „Hann byrjar að
hlaupa eins og hann gerði áður en
hann veiktist. Það þarf að byrja á
núllpunkti. Það tekur þrjár vikur
að ná sér eftir eina viku uppi í rúmi.
Það getur tekið rúmar níu vikur
fyrir einhvern sem var rúmliggjandi
í þrjár vikur að ná sér upp í sama
form og áður. Það er hópur sem
rekur sig á vegg með því að fara of
geyst af stað.“ Ýmis þreytueinkenni
geta komið upp og verkir í stoðkerf-
inu, þá getur tekið talsverðan tíma
að ná upp góðri lungnastarfsemi.
Annar hópurinn er þeir sem hafa
unnið heima í fjarvinnu við verri
aðstæður en á vinnustaðnum, við
það bætast gjarnan minni sam-
skipti við aðra. „Aðstæðurnar geta
verið mun verri heima fyrir, til
dæmis hvað varðar líkamsstöðu,“
segir Gauti.
„Þegar fólk er búið að venja sig á
slæma líkamsstöðu getur það verið
óafturkræft nema það þjálfi sig upp
að nýju. Þegar maður er búinn að
sitja eins klessa þá finnst manni það
vera eðlilegt.“ Eru þá dæmi um að
fólk finni fyrir verkjum, en tengi þá
ekki við slæma líkamsstöðu. „Fólk
kannski fær höfuðverki, bakverki
eða verk í axlirnar út frá þessari
röngu líkamsstöðu.“
Þá er hópurinn sem hefur misst
vinnuna vegna efnahagsástands-
ins tvískiptur. Annars vegar þeir
sem hreyfa sig minna, sem glíma
við sömu einkenni og þeir sem fóru
í langa sjálfskipaða sóttkví vegna
faraldursins, og hins vegar þeir sem
fóru að hreyfa sig of mikið. „Þessir
þrír hópar hafa allir þróað með
sér ýmis álagseinkenni,“ útskýrir
Gauti. „Það þarf að líta til allra þátta
þegar kemur meðferðinni. Þeir sem
hafa misst vinnuna hafa gjarnan
áhyggjur af tekjum, andleg vellíðan
hefur mikið að segja þegar kemur að
líkamlegri líðan.“
arib@frettabladid.is
Tengja ekki verki við ranga
líkamsstöðu sína í fjarvinnu
Þeim einstaklingum sem leita til sjúkraþjálfara hefur fjölgað undanfarið. Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari
segir að rekja megi fjölgunina til kórónaveirufaraldursins. Dæmi séu um að fólk finni fyrir stoðkerfis-
verkjum en tengi þá ekki við ranga líkamsstöðu í fjarvinnu. Verkir í höfði, baki og öxlum eru algengir.
LEIÐRÉTTING
Í blaðinu í gær var rangt farið
með nafn Ragnhildar Helgu
Jónsdóttur, formanns Veiðifélags
Andakílsár. Þá sagði að í óhappi
á árinu 2017 hefðu fjögur til fimm
þúsund rúmmetrar af seti borist
í Andakílsá. Byggði það á fyrstu
fréttum af málinu á sínum tíma.
Ragnhildur segir að síðar hafi verið
áætlað að magnið hafi verið 25
þúsund rúmmetrar.
STJÓRNMÁL Helga Vala Helgadóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar,
hefur tilkynnt framboð sitt til
varaformanns sem kjörinn verður
á landsfundi f lokksins í nóvember.
Helga Vala segist finna síaukinn
áhuga á Samfylkingunni og segir
nýtt fólk á öllum aldri vera að ganga
til liðs við flokkinn.
Hún segir hlutverk varafor-
manns afar mikilvægt, ekki síst til
að þjappa flokksfólki saman og efla
liðsheildina í aðdraganda kosninga.
„Ég er þess fullviss að með því
að koma samstíga og kjörkuð fram
með skýra framtíðarsýn muni kjós-
endur fela okkur í Samfylkingunni
lyklana að stjórnarheimilinu,“ segir
Helga Vala.
Sitjandi varaformaður flokksins,
Heiða Björg Hilmisdóttir borgar-
fulltrúi og formaður velferðarráðs
Reykjavíkur, hefur ekki gefið annað
til kynna en hún hyggist gegna emb-
ættinu áfram og að óbreyttu verður
kosið milli þeirra á landsfundinum.
Heiða Björg var kjörin í embættið á
fundi f lokksins í febrúar 2017 og
endurkjörin á landsfundi ári síðar.
Helga Vala var fyrst kjörin á þing
í síðustu alþingiskosningum árið
2017 en hún leiddi lista f lokksins í
Reykjavíkurkjördæmi norður. Hún
hefur þó verið virk í starfi Sam-
fylkingarinnar um árabil og var
formaður Samfylkingarfélagsins í
Reykjavík árin 2008 til 2010.
Helga Vala var formaður stjórn-
sk ipunar- og ef tirlitsnef ndar
Alþingis á fyrri hluta kjörtíma-
bilsins en gegnir nú formennsku í
velferðarnefnd þingsins. – aá
Helga Vala býður sig fram til varaformennsku í Samfylkingunni
Helga Vala Helgadóttir alþingis-
maður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Slæm líkamsstaða í fjarvinnu getur orsakað verki sem erfitt er að losna við nema með þjálfun. MYND/GETTY
ÚTLENDINGAMÁL Egypska f jöl-
skyldan sem vísa átti úr landi í
gærmorgun var farin af dvalarstað
sínum þegar lögreglan og fulltrúi
barnaverndarnefndar mættu á
staðinn til að fylgja þeim í Leifs-
stöð. Þaðan átti að f ljúga með þau
til Amsterdam og síðan Kaíró. Ekki
þótti ástæða til að hafa gæslu við
dvalarstaðinn til þess að tryggja að
þau yrðu á staðnum. Lögreglan segir
að formleg leit sé ekki hafin en verk-
beiðni Útlendingastofnunar um
brottvísun sé ennþá í gildi.
Magnús Davíð Norðdahl, lög-
maður fjölskyldunnar, sagðist í
gær ekki vita hvar fjölskyldan væri
niðurkomin. Hann sagðist ekki hafa
ráðlagt þeim að fara í felur fyrir
laganna vörðum en hefði fullan
skilning á að þau hefðu gert það í
ljósi þess að þau óttast um líf sitt í
Egyptalandi. Þau hefðu fram á síð-
ustu stundu trúað því að ekki yrði
af brottvísuninni. – khg
Fjölskyldan
ekki á staðnum
Vísa átti fjölskyldunni úr landi í
gærmorgun. MYND/AÐSEND
1 7 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð