Fréttablaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 22
Á haustin verður
allt að flaueli
einhvern veginn og
tónlistarsmekkurinn
minn eltir það líka.
Mjúkar raddir og hlýir
tónar verða óhjákvæmi-
lega fyrir valinu.
Á veturna nota ég
dekkri liti sjálfsagt
og ljósari á sumrin. Ég
held ég sé bleik og blá á
sumrin og svo svört, hvít
og rauð á veturna.
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Sylvía Dögg segist ekki beinlínis eiga sér tiltekna eftirlætisárstíð, þær séu allar
hrífandi á sinn hátt. „Mér þykir
vænt um allar árstíðirnar í raun
og allt það fallega sem þær hafa
upp á að bjóða.“
Í hugum margra er haustið tími
huggulegheita og kertaljósa og er
Sylvía þar ekki undanskilin. „Á
haustin finnst mér ég oft lenda
betur í sjálfri mér, ég held mig
meira inni þegar færi gefst og
verð upptekin af því að undirbúa
hreiðrið fyrir veturinn.“
Rauðir tónar í stað bleikra
Sylvía starfar meðal annars sem
búningahönnuður og þarf því
gjarnan að eyða löngum tíma
utan dyra allan ársins hring. Hún
kann því að meta að dúða sig
upp og klæða af sér kuldann með
mörgum lögum af fötum.
„Það sem ég elska við haustið er
að geta bætt á mig lögum og klætt
mig í stór, hlý og falleg föt. Ég vinn
mikið úti í náttúrunni og finnst
fátt skemmtilegra en að dúna mig
upp í krefjandi aðstæður. Pelsar,
peysur og úlpur eru alveg uppá-
halds og ég á alltaf til tímalausar
f líkur sem mér þykir vænt um
sem er gaman að taka út og viðra í
kalda loftinu.“
Líkt og í litadýrð náttúrunnar
breytist oft litavalið. „Á veturna
nota ég dekkri liti sjálfsagt og
ljósari á sumrin. Ég held ég sé
bleik og blá á sumrin og svo svört,
hvít og rauð á veturna,“ skýrir
Sylvía frá.
„Hvað förðun varðar hef ég
verið að vinna með einfalda
rútínu í mörg ár og skiptir litlu
hvort þá er vetur, sumar, vor eða
haust, nema ég reyndar vel aðra
liti á varirnar mínar í kulda. Ég er
meira að vinna með rauða tóna
í varalitum á haustin á meðan
að bleikur ræður mér svolítið á
sumrin. Uppáhalds rauði vara-
liturinn minn í dag heitir Fashion
Legacy og er frá Mac.“
Lækkandi sól hefur að auki
Góð í ullarsokkum með rauðan varalit
Myndlistarkonan og búningahönnuðurinn Sylvía Dögg Halldórsdóttir, betur þekkt sem Love
tank, tekur haustinu fagnandi. Lækkandi sól fylgja hlýrri flíkur, rauðari varir og meiri kolvetni.
„Ég vinn mikið með höndunum og hef sett gel á neglur til að styrkja þær. Með því móti er ég ekki alltaf með brotnar
neglur útataðar í málningu,“ segir Sylvía Dögg sem hefur skemmtilegan fatastíl. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Uppáhaldsmerki Sylvíu
n AOC Fashion
Besta jakkamerkið, vetur,
sumar, vor og haust, elska
það. Heba frænka mín er að
gera tjúllaða hluti undir vöru
merkinu AOC Fashion og er það
aðeins fáanlegt á Íslandi í Apríl
Skóm á Garðatorgi.
n Aftur
Bára klára gerir sjúllaða tíma
lausa jogginggalla sem ég er
búin að eiga í mörg ár, bera nafn
með rentu og ég nota alltaf
aftur og aftur.
n BAHNS
Fallegustu prjónapeysurnar í
bænum.
n Kalda
Fallegasta íslenska skómerkið.
n Kría Jewelry
Fallegasta íslenska skartið.
LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
FLOTTAR YFIRHAFNIR, FYRIR FLOTTAR KONUR
áhrif á skóbúnaðinn sem verður
fyrir valinu. „Ég elska skó og
vissulega þykkjast sólar og efni í
skóm með kólnandi veðri og mér
finnst alltaf jafn mikið sport að
taka upp jöklaklifursskóna mína
sem ég fjárfesti í fyrir nokkrum
árum og elska.“
Kolvetni og mjúkir tónar
Sylvía segir brýnt að huga að
heilsunni óháð tíma árs en
undanfarin ár hefur hún notið
leiðsagnar líkamsræktarþjálfar-
ans Gerðu Jónsdóttur.
„Ég hef komist að því að eina
leiðin fyrir mig til að vera með
hausinn sæmilega skrúfaðan á
er að hreyfa mig reglulega. Ég er
svo heppin að eiga góða vinkonu
sem er einkaþjálfari lífs míns og
er með skemmtilegustu tímana í
bænum sem heita In Shape með
Gerðu. Hún er alveg frábær fyrir-
mynd og sjúklega gaman að fara
til hennar og hitta allar skemmti-
legu konurnar sem þangað sækja,
nærandi fyrir líkama og sál.“
Mataræðið breytist einnig,
enda þarfnast líkaminn meiri
orku eftir því sem loftið kólnar.
„Á haustin er ég alltaf til í þyngri
mat, sæki meira í brauð og pasta
er eitthvað sem líkaminn kallar á.
Ítalskan og indverskan til skiptis
helst og ís í eftirrétt.“
Áhrifanna gætir víða og að
sögn Sylvíu sækir hún líka í
annars konar tónlist á þessum
tíma árs. „Á haustin verður allt
að f laueli einhvern veginn og
tónlistarsmekkurinn minn eltir
það líka. Mjúkar raddir og hlýir
tónar verða óhjákvæmilega fyrir
valinu.“
Í öruggum höndum
Þá breytist iðulega húðumhirða
þegar kólnar fer í veðri og huga
þarf að atriðum á borð við raka-
stig húðarinnar. Sylvía er í góðum
höndum hvað það snertir. „Á
haustin þarf ég að sinna húðinni
minni meira. Ég er með besta húð-
lækni í heimi, hana Jennu Huld á
Húðlæknastöðinni, og hún passar
upp á að ég kaupi mér krem sem
henta húðinni minni og þau
breytast eftir árstíðum.“
Árstíðirnar endurspeglast einn-
ig oft í litavali á nöglum en Sylvía
leggur fyrst og fremst áherslu á
að vera með vel hirtar og fallegar
neglur allt árið um kring, enda séu
hendurnar hennar lifibrauð. Þar
kýs hún einnig að leita til fagfólks.
„Ég vinn mikið með höndunum
og hef verið setja gel ofan á mínar
neglur til að styrkja þær og vera
ekki alltaf með brotnar neglur
útataðar í málningu.
Ég elska fallega skreyttar neglur
og vil helst hafa þær hlaðnar
steinum og fallegum litum og
þegar ég nenni að standa í því
fer ég til Cathryn sem á og rekur
Rainbow Nails, hún er ótrúlega
hæfileikarík.“
Sumt er snertir útlit breytist
þó óháð árstíðum. „Ég er alltaf í
sama hamstrahjólinu hvað háralit
varðar, það er ýmist ljósara, ljóst
eða aðeins dekkra og svo aftur í
hring.“
Sylvía lætur skynsemina ráða
för hvað val á skartgripum varðar.
„Ég nota meira skart á sumrin
aðeins vegna þess að mér finnst
óþægilegt að vera með lokka,
hálsmen og hringi undir húfu og
hönskum, praktíkin ræður þar
ríkjum, þá sjaldan,“ segir hún
og hlær, „en ég er sjúk í íslenska
hönnun þegar kemur að skarti og
fatnaði.“
Hvað er nauðsynlegast að eiga
eða hafa í huga þegar haustið
gengur í garð?
„Ef þú átt ullarsokka og
rauðan varalit ertu í frekar góðum
málum.“
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R