Fréttablaðið - 17.09.2020, Síða 5
Hlutafjárútboði
í Icelandair Group
lýkur kl. 16 í dag
Almennt útboð á nýjum hlutum hófst miðvikudaginn 16. september
og lýkur kl. 16.00 í dag, fimmtudaginn 17. september 2020.
Tilboðsbók A Tilboðsbók B
Stærð útboðs 20 milljarðar króna að kaupverði 17 milljarðar króna að kaupverði 3 milljarðar króna að kaupverði
Réttur til að stækka útboð í 23 milljarða króna Ef umframeftirspurn myndast, hefur félagið rétt til að stækka útboðið um 3 milljarða króna að kaupverði.
Ef heimildin er nýtt að fullu verður stærð útboðsins því 23 milljarðar króna.
Útboðsgengi 1,00 kr./hlut 1,00 kr./hlut
Lágmarksáskrift 20.000.001 krónur að kaupverði 100.000 krónur að kaupverði
Hámarksáskrift - 20.000.000 að kaupverði
Áskriftarréttindi* Með hlutum keyptum í útboðinu fylgja áskriftarréttindi sem samsvara 25% af skráningu nýrra hluta. Hægt verður
að nýta áskriftarréttindin á verði sem fer stighækkandi frá útboðsgengi, í þremur skrefum, á ákveðnum tímabilum
yfir tveggja ára tímabil. Áskriftarréttindin verða tekin til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði og hægt verður
að eiga viðskipti með þau óháð hlutum í félaginu fram að nýtingartíma þeirra.
Í útboðinu eru boðnir til sölu 20.000.000.000 nýrra hluta í Icelandair Group.
Gefi eftirspurn tilefni til hefur félagið heimild til að fjölga seldum hlutum
í útboðinu þannig að þeir nemi samtals allt að 23.000.000.000. Nýju hlutunum
fylgja áskriftarréttindi sem samsvara allt að 25% af skráningu nýrra hluta
í útboðinu.
Tekið verður við áskriftum rafrænt á eftirfarandi vefsíðu
www.landsbankinn.is/utbod/icelandair.
Hlekkur á áskriftarvefinn er aðgengilegur í gegnum vefsíður umsjónaraðila
útboðsins, www.islandsbanki.is og www.landsbankinn.is og á heimasíðu
félagsins, www.icelandairgroup.is.
Fjárfestar geta valið um tvær tilboðsbækur í útboðinu sem eru m.a. ólíkar
hvað varðar stærð áskrifta og úthlutunarreglur. Hver hlutur í Icelandair Group
er að nafnverði 1 króna.
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans
Sími: 410 4000
utbod@landsbankinn.is
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka
Sími: 440 4000
utbod@islandsbanki.is
icelandairgroup.is
Landsbankinn og Íslandsbanki hafa umsjón með útboðinu.
Upplýsingar og tæknileg aðstoð:
Áætlað er að niðurstaða útboðsins verði birt á vefsíðu Icelandair Group eigi
síðar en kl. 23.59 þann 18. september 2020. Gjalddagi og eindagi áskrifta
er áætlaður 23. september 2020.
Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu
er skuldbindandi. Áður en tekin er ákvörðun um fjárfestingu í hlutum í Icelandair
Group eru fjárfestar hvattir til að kynna sér allar upplýsingar um Icelandair Group
og lýsingu félagsins sem dagsett er 8. september 2020, og hefur verið staðfest
af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Lýsinguna má finna á vefsíðu Icelandair
Group, www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/prospectus/.
* Auglýsingin tengist flókinni fjármálaafurð sem getur verið erfitt að skilja.