Fréttablaðið - 17.09.2020, Side 14
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is
Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Er ekki hægt
að losa
þennan
mann við titil
sem hann
skreytir sig
með þegar
honum
hentar en
kannast ekki
við þegar
virkilega
reynir á?
Það er ekki
að furða að
borgarstjórn
mælist með
lítið traust.
Allt frá byrjun þessa ríkisstjórnar-samstarfs var ljóst að það yrði engin sæluvist fyrir Vinstri græna að vera í svo nánu samstarfi við Sjálfstæðis-flokkinn. Katrín Jakobsdóttir forsætis-ráðherra hefur reyndar þolað það
merkilega vel, aðrir þingmenn flokksins síður og æ
stærri hópur kjósenda flokksins hefur átt í erfið-
leikum með að sætta sig við þetta bandalag.
Mál egypsku barnafjölskyldunnar sem flytja
átti af landi brott í gær en lét sig síðan hverfa er afar
dapurlegt. Forsætisráðherra og þingmenn Vinstri
grænna beittu sér ekki í málinu. Sem er þvert á það
sem þingmenn flokksins hefðu gert hefðu þeir verið
í stjórnarandstöðu. Þá hefði öll þjóðin fengið að
vita að Vinstri græn stæðu vörð um rétt f lóttabarna
og sætu ekki þegjandi hjá þegar vísa ætti þeim úr
landi. Þetta vita þingmenn Vinstri grænna jafn vel
og allir aðrir – og þeim getur varla liðið vel. Sjálfsagt
hugga þeir sig með því að í ríksstjórnarsamstarfi
þurfi stundum að slá af prinsippum og láta jafnvel
eins og þau séu ekki til. Vitneskjan um að stór hópur
kjósenda flokksins sé æfur vegna málsins ætti þó að
valda þingmönnum flokksins áhyggjum. Það er ekki
ýkja langt til kosninga.
Af stjórnarflokkunum koma Vinstri græn verst út
úr þessu máli, einfaldlega vegna þess að þingmenn
flokksins voru þeir sem líklegastir voru til að taka sér
stöðu með flóttabörnum. Það var ekkert gert.
Varla hefur nokkur maður búist við að þingmenn
Sjálfstæðisflokksins myndu opinbera mannúð í mál-
inu, enda gerðist það ekki. Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir dómsmálaráðherra var aðallega pirruð á því
að fjölmiðlar væru sífellt að leita uppi barnafjöl-
skyldur á f lótta og vekja athygli á stöðu þeirra. Það
gerir starf hennar mun erfiðara, framkallar vesen og
alls kyns óþægilegar spurningar frá fjölmiðlafólki.
Sá ráðherra ríkisstjórnarinnar, framsóknar-
maðurinn Ásmundur Einar Daðason, sem skreyttur
hefur verið með titlinum barnamálaráðherra lagði
mikið upp úr því að koma því til skila að honum
kæmi þetta mál alls ekki við. Er ekki hægt að losa
þennan mann við titil sem hann skreytir sig með
þegar honum hentar en kannast ekki við þegar virki-
lega reynir á?
Börn eiga allt það besta skilið. Líka það að ráðherra
sem fær titilinn „barnamálaráðherra“ beri sanna
umhyggju fyrir velferð þeirra og taki slaginn fyrir
þau. Barnamálaráðherra lyppaðist niður í þessu
máli. Hvað er það versta sem hefði gerst ef hann hefði
staðið í lappirnar og staðið með börnunum? Hinn
freki og ráðríki Sjálfstæðisflokkur hefði tryllst – og
hvað með það? Það má vel vinna með einhverjum
öðrum. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki ómissandi
fyrir íslenska þjóð, þótt f lokksmenn hans muni aldr-
ei nokkurn tímann fást til að trúa því.
Það er leitt til þess að vita að enginn ráðherra ríkis-
stjórnarinnar hafði kjark og þor til að standa með
börnum sem þrá heitt að eignast skjól hér á landi.
Börnin
Eyþór Arnalds
oddviti Sjálf-
stæðisflokksins
í Reykjavík
Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Pírata hefur um fátt annað gert undanfarið en að búa til samsæriskenningar. Eftir að hafa ráðist gegn
Neyðarlínunni hefur hún snúið sér að mér persónu-
lega. Hún hefur ítrekað haldið því fram að mér hafi
verið mútað. Verið gefin hundruð milljóna gegn því
að afhenda Samherja miðbæ Selfoss. Ekkert er fjær
sanni. Ég hef persónulega ekki fengið eina krónu í
greiðslu frá Samherja. Hvað þá hundruð milljóna.
Félag í minni eigu keypti hlut í Morgunblaðinu með
seljendaláni eins og áður hefur komið fram. Reykja-
víkurborg sjálf veitir seljendalán upp á hundruð
milljóna í fjölda verkefna. Ef seljendalán teljast mútur
í orðabók Pírata, þá eru þeir sjálfir að stunda þær.
Ég sat í bæjarstjórn Árborgar 2006-2014, en skipulag
miðbæjar Selfoss var samþykkt í íbúakosningu árið
2018. Byggingarleyfin voru síðan gefin út af Pírötum
en ekki Sjálfstæðisflokki. Það er því fræðilega ómögu-
legt að gera mig ábyrgan fyrir þessu. Einfalt gúgl hefði
getað bjargað Dóru frá því að koma með svona götótta
samsæriskenningu.
McCarthy beitti þeirri tækni að segja að viðkom-
andi þyrfti að „svara betur“. Sama hvernig svarið var.
Nú er ég ekki að tala um Smára McCarthy þingmann
og fyrrverandi hluthafa í Stundinni, heldur Joseph
McCarthy þingmann. Síðasta grein Dóru í Stundinni
nær nýjum lægðum, en þar tengir hún mig, Samherja
og dómsmálaráðherra saman við Egyptaland og fjöl-
skyldu flóttamanna. Atkvæðaveiðarnar verða ekki
dapurlegri. Það væri nær fyrir Pírata sem hafa verið
við völd í 6 ár að svara fyrir hvers vegna heimilislausir
eru tvöfalt fleiri en fólk hefur þurft að flytja úr Reykja-
vík vegna húsnæðisskorts. Mat eldri borgara og sam-
gönguvandann. Og stöðu skólabarna innflytjenda.
Ekkert af þessu hugnast Dóru Björt Guðjónsdóttur að
ræða þrátt fyrir að hún sé formaður mannréttindar-
áðs borgarinnar sem kýs að fara á lægsta plan þess
sem ræðst að persónu fólks. Án innistæðu. Það er ekki
að furða að borgarstjórn mælist með lítið traust.
Atkvæði óskast
í skiptum fyrir lygarVöfflur á morgun kl. 15Það eru svæsin skilaboð til
f lokksforystu Vinstri grænna
þegar formaður ungliðahreyf-
ingarinnar segist hreint ekki
vera viss um hvort hann kýs
f lokkinn í næstu kosningum.
Því má jafna til þess að kokkur
leggi sér ekki eigin mat til
munns. Ungliðar f lokksins
hafa læðst með veggjum í
ríkisstjórnarsamstarfinu fram
til þessa og borið harm sinn í
hljóði vegna þess, en nú er loks
að koma í ljós að ánægjan er
ekkert svakaleg með brottvísun
egypsku fjölskyldunnar. Ung-
liðar Sjálfstæðisf lokksins hafa
aftur á móti aldrei heyrt um
Egyptaland, nema þá kannski
helst píramídana. Þeirra púður
fer nú allt í að hæðast að þriðja
stjórnarskrárpakkanum og
hlæja sig máttlaus. Hins vegar
ætla ungliðar Framsóknar að
vera með vöff lukaffi á morgun
kl. 15. Allir velkomnir.
Suga
Japanir eru búnir að velja Suga
sem arftaka Abe á forsætisráð-
herrastóli. Suga er ekki tengdur
rappheiminum svo vitað sé þó
hann sé nafni suður-kóreska
rapparans Suga. Hljóti hann
einhvern tíma riddaratign
verður hann einnig nafni rapp-
framleiðandans Suge Knight.
Suga á þrjá syni. Telja má víst að
þeir kalli hann að Suga-Daddy.
Eiginkona Suga er Honey, eins
og í laginu.
2 skipta námskeið fyrir ungmenni sem greinst hafa með
krabbamein eða eru aðstandendur krabbameinsgreindra.
Námskeiðið fer fram 1. og 8. október og er þátttakendum að
kostnaðarlausu.
Skráning fer fram í síma 561-3770.
1 7 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R14 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN