Fréttablaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 16
Áformað er að leggja Arnarnes-veg vestan í Vatnsendahvarfi, sem yrði 1,3 km langur þjóð-
vegur í þéttbýli. Hann var sam-
þykktur á samgönguáætlun fyrir
2021 og áætlaður kostnaður sam-
kvæmt samgönguáætlun er 1.500
milljónir. Áætlanir fyrir veginn
byggja á umhverfismati frá 2003,
en síðan þá hafa forsendur breyst
verulega. Meðal annars er byggð í
kringum veginn mun meiri, umferð
hefur aukist og áherslur í umhverf-
ismálum hafa breyst. Þessi hluti
Arnarnesvegar, sem upphaflega var
hugsaður sem ofanbyggðarvegur
þegar hann var settur á skipulag
fyrir 40 árum, mun koma til með að
skera í tvennt náttúrulegt útivistar-
og útsýnissvæði, sem mikið er nýtt
af íbúum borgar og nágrennis. Allt
fyrirhugað vegarstæði er þakið
fjölbreyttum gróðri og er árlegt
varplendi fuglategunda eins og lóu,
hrossagauka og spóa. Vegurinn
mun koma til með að breyta ásýnd
og notagildi þessa dýrmæta græna
svæðis til frambúðar.
Nýjustu áætlanir vegna vegar-
ins sýna að kostnaður við veginn
hefur þegar nær tvöfaldast, það er
í tæpa þrjá milljarða, og mun hann
skerða fyrirhugaðan Vetrargarð
sem er á nýju hverfisskipulagi fyrir
Breiðholt. Ekki er komin endanleg
sátt um legu vegarins og gatna-
mót. Það er þó ljóst að forsendur
fyrir upprunalegu umhverfismati
eru brostnar og nauðsynlegt, og
lögum samkvæmt, að fram fari nýtt
umhverfismat þar sem fyrra mat er
nær 18 ára gamalt.
Áætluð umferð um Arnarnesveg
var endurmetin allt að 20.000 bif-
reiðar á dag árið 2013, sem er langt
umfram upphaf lega áætlun frá
umhverfismati 2003 sem var 9.000
–15.000 bifreiðar. Rútur og þunga-
bifreiðar munu stytta sér leið í
gegnum Arnarnesveginn til og frá
Reykjanesi sem þýðir stóraukna
umferð í mikilli nálægð við einn
fjölmennasta skóla höfuðborgar-
svæðisins. Þó svo að mótmæli gegn
veginum hafi einna helst komið frá
íbúum Breiðholts síðustu áratugi,
þá eru án efa fjölmargir foreldrar
barna í Salaskóla sem eru á móti
þessari stórauknu umferð í gegnum
hverfið.
Talað hefur verið um mikilvægi
vegarins til að bæta viðbragðstíma
lögreglu og slökkviliðs í efri byggð-
um Kópavogs. Í nýju hverfisskipu-
lagi Breiðholts koma fram áætlanir
um að opna umferð inn í Kópavog
úr Jaðarseli fyrir strætisvagna. Er
þá ekki sá möguleiki fyrir hendi að
leyfa umferð slökkvi-, sjúkraflutn-
inga- og lögreglubifreiða þar í gegn?
Sem myndi þá leysa þetta vandamál
án þessa gríðarlega kostnaðar fyrir
skattgreiðendur og náttúru.
Það sem einnig þarf að hafa í
huga er að Breiðholtsbrautin er
þegar sprungin umferðaræð. Nú á
að bæta við, eða færa til, umferð allt
að 20.000 bifreiða inn á Breiðholts-
brautina í gegnum þennan nýja
kafla af Arnarnesvegi. Er hér ekki
bara verið að reyna að leysa vanda-
mál með því að færa þau annað? For-
maður skipulagsráðs sagði nýlega
„að það sé löngu kominn tími á
það að meta kolefnislosun af öllum
framkvæmdum á samgönguáætlun
og forgangsraða þeim sem draga
mest úr losun fyrst“. Arnarnesveg-
ur er umferðaraukandi stofnbraut
sem mun koma til með að útrýma
stórum hluta af náttúrulegu grænu
svæði, auka hávaða, umferðarhættu
og mengun. Það er mjög ólíklegt að
vegurinn verði til þess að draga úr
kolefnislosun og erfitt að sjá ástæð-
ur þess að forgangsraða honum á
undan öðrum samgönguverkefnum.
Það þarf algjöra endurskoðun á
lagningu Arnarnesvegar og skoða
af alvöru aðrar lausnir til að leysa
umferðarvanda Kópavogs. Lausnir
sem eru í samræmi við núverandi
stefnu borgar og ríkis í umhverfis-
málum. Vatnsendahvarfið er dýr-
mætt útivistarsvæði við Elliðaár-
dalinn og Öskjuhlíðina og þarf að
vera metið sem slíkt.
Greinin er unnin í samráði við Vini
Vatnsendahvarfs.
Vatnsendahvarf klofið með Arnarnesvegi – stórfelld landníðsla
Kolbrún
Baldursdóttir
borgarfulltrúi
Flokks fólksins
Nú er hálft ár liðið síðan kór-ónaveiran umbylti hvers-dagsleikanum sem tók
skyndilega miklum breytingum.
Það er ljóst að við erum líklega ekki
á leið í fyrra horf alveg á næstunni
og raunverulega er spurning hvort
við ættum nokkuð að stefna á að
fara aftur í fyrra horf.
Faraldurinn hefur sýnt okkur
að vísindin skipta máli. Sérfræði-
þekking er mikilvæg. Það að fylgja
ráðum fagfólksins okkar getur
greint á milli lífs og dauða. Við
ættum því að hlusta þegar vísinda-
menn vara okkur við aðsteðjandi
hættu. Það getur bjargað lífi okkar.
Kórónaveir u fa r a ldu r inn er
nefnilega ekki pólitískt mál. Þetta
virðumst við öll geta verið sam-
mála um og þau lönd sem hafa
tæklað faraldurinn hvað best hafa
leyft sérfræðingum að eiga sviðið.
En þannig er mál með vexti að lofts-
lagsbreytingar eru heldur ekki póli-
tískt mál, eða ættu í það minnsta
ekki að vera það. Að okkur steðjar
hætta, raunveruleg og alvarleg
ógn, vegna loftslagsbreytinga. Við
höfum treyst sérfræðingunum hvað
varðar viðbrögð við COVID-19 og
það hefur skilað góðum árangri.
Af hverju gerum við ekki hið sama
fyrir loftslagið?
Staðreyndin er sú að við þurfum
að bretta upp ermarnar, nú sem
aldrei fyrr. Við höfum takmark-
aðan tíma til þess að sporna við
hlýnun jarðar. Allar okkar aðgerðir
þurfa að taka mið af því hverjar
afleiðingarnar af þeim eru til lengri
tíma fyrir loftslagið. Allar okkar
aðgerðir.
Sveitarstjórnir heimsins, sér-
staklega í hinum vestræna heimi,
bera mikla ábyrgð í baráttunni við
hlýnun jarðar. Það er þeirra hlut-
verk að ganga fram með góðu for-
dæmi ásamt því að búa svo í haginn
að almenningur og fyrirtæki geti á
auðveldan máta minnkað vistspor
sitt. Það er okkar hlutverk að skipu-
leggja sjálf bæra byggð með þjón-
ustu í nærumhverfi og innviðum
fyrir virka samgöngumáta.
Nú líður að því að sveitarstjórnir
fari að vinna fjárhagsáætlun fyrir
næsta ár. Ljóst að aðstæður fyrir
f járhagsáætlunargerð eru mjög
óvenjulegar, en í því felast tækifæri
til að hugsa öðruvísi. Við þurfum
til dæmis að hefja loftslagsmat á
öllum okkar fjárfestingum. Það
ætti reyndar að vera jafn sjálfsagt
og kostnaðarmat. Nú er tími til
þess að huga að loftslagsbreyting-
um í öllum okkar aðgerðum, með
grænum innkaupum, grænum fjár-
festingum og grænu skipulagi. Af
hverju er látið eins og loftslagsáhrif
ákvarðana skipti minna máli en
fjárhagsleg?
Sveitarfélög landsins hafa ein-
stakt tækifæri til að standa undir
mannaf lafrekum, grænum fram-
kvæmdum. Má þarf nefna sem
dæmi skógrækt, gerð hjóla- og
göngustíga, uppsetningu hrað-
hleðslustöðva, þróun lausna til að
veita þjónustu bæjarfélagsins í gegn
um netið í ríkari mæli og hvetja
fyrirtæki til að veita þjónustu í
heimabyggð.
Nú er rétti tíminn til að sýna í
verki að við forgangsröðum í þágu
umhverfisins og heilsu og líðanar
bæði íbúa og jarðarinnar okkar,
líkt og þríeykið knáa hefur gert í
baráttunni við COVID-19. Fyrir
okkur öll og komandi kynslóðir.
Þarf þríeyki fyrir loftslagsmálin?
Sigurbjörg Erla
Egilsdóttir
bæjarfulltrúi
Pírata í Kópa
vogi
Það þarf algjöra endur-
skoðun á lagningu Arnar-
nesvegar og skoða af alvöru
aðrar lausnir til að leysa
umferðarvanda Kópavogs.
Hvernig verðum við hreyfiafl á fjármálamarkaði?F r æ ð s l u n e f n d F K A
heldur fundaröð um konur og fjár-
mál á næstu mánuðum. Tilgangur
fundaraðarinnar er að glæða áhuga
kvenna til að gerast öflugri þátt-
takendur á fjármálamarkaði og á
atvinnulífinu almennt.
Konur einn af hverjum þremur
til fjórum fjárfestum
á fjármálamarkaði
Samkvæmt niðurstöðum kann-
ana á þátttöku kvenna á fjármála-
markaði á undanförnum árum
hafa konur aðeins verið einn af
hverjum þremur til fjórum fjár-
festum á f jármálamarkaði og
endurspeglast þetta meðal annars í
dræmu hlutfalli kvenna í stjórnun-
arstöðum í atvinnulífinu. Hvernig
verðum við hreyfiafl á fjármála-
markaði? er yfirskriftin á fyrsta
fundinum, málþingi sem verður á
Icelandair Hótel Reykjavík Natura
í dag. Þar verður farið yfir grund-
vallarspurningar sem snúa að fjár-
málamarkaðinum svo sem um
fjárfestingaumhverfið á Íslandi,
fjallað um fyrirliggjandi frumvarp
til laga um skattaafslátt vegna
hlutabréfakaupa og kynntar niður-
stöður nýrrar viðhorfskönnunar
um fjárfestingahegðun kvenna og
karla. Þá verður fjallað um hvernig
við getum orðið öflugir fjárfestar
og hvernig við getum hafa áhrif á
heiminn með fjárfestingum.
Mýtur varðandi konur
og fjárfestingar
Undirbúningur er mikilvægur áður
en farið er af stað í fjárfestingar á
markaði og kannanir hafa bent
til þess að þörf sé á að efla fræðslu
og ráðgjöf á þessu sviði. Vekja þarf
konur til að hafa áhuga á þeim
tækifærum sem felast í hlutabréfa-
markaðinum og fjárfestingum og
oft hefur verið rætt um að í kvenna-
hópum sé ekki að finna áhuga eða
umræður um fjárfestingar. Kven-
fjárfestar hafa verið minna sýnilegir
og í raun eru fáar kvenfyrirmyndir á
þessum vettvangi.
Alls konar mýtur hafa verið
í gangi varðandi konur og fjár-
festingar, til fæmis að konur væru
áhættufælnar, að þær færðu ábyrgð
yfir til karlmanna, aðrir tækju
ákvarðanir fyrir konur, þær væru
vísar til að gera mistök og f leira.
En er þetta endilega rétt? Þetta og
f leira verður rætt á málþinginu í
dag þann 17. september í samvinnu
Félags kvenna í atvinnulífinu FKA
og Íslandsbanka.
Uppselt er á málþingið en áhuga-
sömum er bent á beint streymi frá
viðburðinum á fka.is.
F.h. fræðslunefndar FKA
Að vera alvöru hreyfiafl
á fjármálamarkaði
Sigrún Björk
Jakobsdóttir
framkvæmda
stjóri Isavia
Innanlands
flugvalla ehf.
Við höfum treyst sérfræðing-
unum hvað varðar viðbrögð
við COVID-19 og það hefur
skilað góðum árangri. Af
hverju gerum við ekki hið
sama fyrir loftslagið?
Alls konar mýtur hafa verið
í gangi varðandi konur og
fjárfestingar, til dæmis að
konur væru áhættufælnar,
að þær færðu ábyrgð yfir
til karlmanna, aðrir tækju
ákvarðanir fyrir konur, þær
væru vísar til að gera mistök
og fleira.
1 7 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð