Fréttablaðið - 17.09.2020, Page 17
Ég er ekki faraldsfræðingur og hef heldur engar lausnir varðandi efnahagsleg áhrif
veirunnar. Tilefni þessara skrifa er að
í umræðu síðustu daga um aðgerðir
á landamærum Íslands vegna
COVID-19 kom fram að lífið gangi
nú að mestu sinn vanagang í Boston á
austurströnd Bandaríkjanna. Ég hef
enga reynslu af því að búa í Boston en
ég hef reynslu af því að búa í annarri
borg á austurströnd Bandaríkjanna
á tímum COVID-19, sem valdið hefur
dauða tæplega 200.000 Bandaríkja-
manna.
Ég og fjölskylda mín búum í
Silver Spring í Montgomery-sýslu í
Maryland, sem er í næsta nágrenni
við Washington DC. Hér hefur
margt verið gert til að reyna að hefta
útbreiðslu veirunnar sem veldur
COVID-19. Almennir skólar hafa
verið lokaðir frá því 16. mars og
verða lokaðir áfram a.m.k. þar til í
janúar 2021. Þetta er gríðarleg frelsis-
skerðing fyrir börnin og hefur áhrif
á möguleika margra foreldra til að
stunda vinnu. Það er ekki í boði að
borða inni á veitingastöðum. Kvik-
myndahús, bingó og önnur afþreying
innanhúss er lokuð en líkamsræktar-
stöðvar geta nú hleypt inn takmörk-
uðum fjölda gesta – 1 á hverja 20 fer-
metra og eru þeir þá með grímur við
æfingar. Það er reyndar ólöglegt að
vera án grímu utan heimilisins nema
utandyra þar sem hægt er að halda
2 metra fjarlægð við annað fólk eða
þegar því er ekki viðkomið innan-
húss eins og hjá tannlækni.
Við hjónin vorum heima mán-
uðum saman en fáum nú takmark-
aðan tíma á vinnustaðnum til að
sinna tilraunavinnu og skiptumst þá
á við annað starfsfólk. Skrifstofufólk
á okkar vinnustöðum hefur unnið
heima frá því um miðjan mars og
svo verður áfram ótímabundið. Við
munum seint kalla þetta vanagang
á lífinu.
Montgomery-sýsla telur rétt rúm-
lega 1 milljón íbúa, sem sé tæplega 3
sinnum íbúafjöldi Íslands. Alls eru
20.766 staðfest tilfelli af COVID-19
í sýslunni frá 17. mars og af þeim
hafa 789 manns látist (3,8%). Fólk
sem var einhverjum kært. 12,6%
jákvæðra hafa verið 70 ára og eldri
og í þeim hópi er dánarhlutfallið
22,4%. Aðgerðirnar hafa klárlega
skilað árangri en þrátt fyrir alla
þessa röskun á daglegu lífi er meðal-
tal smita fyrir júlí og ágúst, eftir að
náðist að fletja hæsta kúfinn, um 81
smit á dag. Dánarhlutfallið er lægra
en í vor en það er samt sem áður 1,7%.
Það þýðir að við höfum enn ekki náð
að klára fyrstu bylgju faraldursins.
Nýjustu tölur sýna að í gær greind-
ust 140 ný tilfelli í sýslunni (myndi
samsvara 48 miðað við höfðatölu á
Íslandi), 62 eru á spítala vegna sjúk-
dómsins þar af 19 á gjörgæslu og 2
létust. Allan þennan tíma, í 26 vikur
samf leytt, hafa nýgreind tilfelli
aðeins 4 sinnum verið færri en 50 á
sólarhring. Það mun svo koma í ljós
hvað gerist ef slakað verður á sótt-
vörnum of snemma.
Lífið og COVID-19 í Montgomery-sýslu í Maryland
Björg Guð-
mundsdóttir
sameinda
líffræðingur
Árangur af tvöföldu skimuninni á
landamærum Íslands er ótvíræður.
Það er ljóst að Montgomery-sýsla
er ekki eyja og það gengur ekki að
láta alla sem koma inn í sýsluna fara
í próf, í sóttkví í 5 daga og fara svo
aftur í próf. Það er ekkert annað í boði
en að íbúar sýslunnar fari áfram eftir
þessum stífu reglum og það gengur
misvel. Einstaklingar í áhættuhóp-
um lokast æ meira af eftir því sem
f leiri haga sér eins og faraldurinn
sé yfirstaðinn. Sumir kjósa sem sé
að vera partur af vandanum en ekki
lausninni. Snör og vel ígrunduð við-
brögð íslenskra sérfræðinga og yfir-
valda og það frelsi sem aðgerðirnar á
landamærunum hafa leitt til, standa
okkur ekki til boða. Leiðið kannski
hugann til okkar í Montgomery-sýslu
ef þið getið farið á tónleika (eða getið
haldið tónleika), næst þegar þið setj-
ist inn á veitingastað, eða það sem
mikilvægast er, næst þegar barnið
ykkar kemst í skólann og þið farið til
vinnu. Mynduð þið vilja skipta?
Snör og vel ígrunduð við-
brögð íslenskra sérfræðinga
og yfirvalda og það frelsi
sem aðgerðirnar á landa-
mærunum hafa leitt til,
standa okkur ekki til boða.
Opið virka daga frá kl. 8.30 - 18 og á laugardögum frá kl. 11 - 14.
Espressó-kaffivél,
EQ.6
Fullt verð: 219.900 kr.
Afmælisverð: TE 651319RW
169.900 kr.
Glæsileg vél sem útbýr tvo kaffibolla
í einu með einum hnappi. Hraðvirk
upphitun. Hljóðlát kaffikvörn úr
keramík. Snertiskjár með myndum.
Þrýstingur: 15 bör. Hreinsar
mjólkurkerfi með gufu eftir hverja
notkun.
Kælir: 213 lítrar. Frystir: 94 lítrar.
„hyperFresh“-skúffa sem tryggir lengur
ferskleika grænmetis og ávaxta.
H x b x d: 186 x 60 x 65 sm.
Kæli- og frystiskápar,
iQ300
Fullt verð: 129.900 kr.
Fullt verð: 149.900 kr.
Afmælisverð (stál, kámfrítt):
Afmælisverð (hvítur):
KG 36VVI32
KG 36VUW20
99.900 kr.
117.900 kr.
Bow
Vegglampar
Fullt verð: 10.500 kr.
Afmælisverð: 60801-01/15
8.500 kr.
Ryksuga, iQ300
Fullt verð: 22.900 kr.
Afmælisverð: VSC 3A210A
17.900 kr.
Hljóð: 79 dB. Skilar hámarks-
afköstum með lágmarks-orkunotkun.
Vinnuradíus: 10 metrar.
Afmælisverð:
Uppþvottavél,
iQ300
Fullt verð: 129.900 kr.
SN 436S01NS
99.900 kr.
14 manna. Sex kerfi, þar á meðal
hraðkerfi á 65° C (klukkustund). Þrjú
sérkerfi, meðal annars tímastytting og
kraftþvottur á neðri grind. Hljóð: 44 dB.
Hnífaparaskúffa. „aquaStop“-flæðivörn.
Orkuflokkur
Blandari
Fullt verð: 29.900 kr.
Afmælisverð: MMB 66G5M
23.900 kr.
900 W. „ThermoSafe“ gler sem þolir
heita og kalda drykki.
Atom
Hangandi ljós
Fullt verð: 39.900 kr.
Afmælisverð: AN15906-15
29.900 kr.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17F I M M T U D A G U R 1 7 . S E P T E M B E R 2 0 2 0