Fréttablaðið - 17.09.2020, Qupperneq 18
FÓTBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið hefur leik á ný í undankeppni
EM í kvöld þegar Lettar heimsækja
Laugardalsvöll, tíu mánuðum eftir
að liðin mættust síðast og Ísland
vann öruggan 6-0 sigur ytra. Ísland
má ekki misstíga sig í kvöld því
hvert stig skiptir máli í baráttunni
við Svía, bronsliðið frá síðasta HM
um toppsæti riðilsins. Þá getur stig
skilið að hvort að Ísland færi beint
inn á EM eða í umspil, ef annað sæti
reynist veruleikinn þegar undan-
keppninni lýkur í byrjun desember.
Ísland er með fullt hús stiga eftir
þrjá leiki í F-riðli og markatöluna
11-1. Búast má við að Lettarnir
reyni að tefja í von um að drepa
flæði leiksins og stigið varið fram í
rauðan dauðann en raunveruleik-
inn er að þetta er skyldusigur fyrir
íslenska liðið ef þær ætla sér að gera
atlögu að sæti á EM.
„Þetta verður þolinmæðisvinna
og það skiptir mestu máli að halda
áætlun og reyna að skora mark
snemma til að fá þær framar á völl-
inn,“ segir Sif Atladóttir, miðvörður
landsliðsins, um leikinn en hún er
ekki með hópnum enda á enda-
sprett meðgöngu þessa dagana.
„Við þurfum að finna plássið á
bak við varnarblokkirnar þeirra.
Við erum með leikmenn sem geta
klárað þetta á nokkra mismunandi
vegu en það skiptir öllu að sýna
þolinmæði.“
Þegar Ísland mætti Lettlandi
síðasta haust náði Ísland að brjóta
ísinn snemma og var þá ljóst í hvað
stefndi. Stelpurnar okkar létu slakar
vallaraðstæður á Daugava-vellinum
í Lettlandi ekki fara í taugarnar á sér
heldur gengu frá leiknum á fimm-
tíu mínútum með fjórum mörkum.
Undir lokin náði Margrét Lára Við-
arsdóttir að kóróna sigurinn með
sjötta marki Íslands, sem reyndist
síðasta mark hennar á knattspyrnu-
ferlinum, en hún lagði skóna á hill-
una stuttu síðar.
Líkt og Sif er Fanndís Friðriks-
dóttir sem skoraði tvívegis fyrir
Ísland í Lettlandi fjarverandi vegna
óléttu. Líklegt er að Anna Björk
Kristjánsdóttir taki stöðu Sifjar við
hlið Glódísar Perlu Viggósdóttur í
vörn Íslands, en stærra spurningar-
merki er hver tekur stöðu Fanndís-
ar. Agla María Albertsdóttir kemur
til greina en þjálfarateymið gæti
einnig nýtt tækifærið til að gefa
Sveindísi Jane Jónsdóttur fyrsta leik
sinn í íslensku treyjunni eftir frá-
bæra frammistöðu með liði Breiða-
bliks undanfarnar vikur.
Stærra prófið verður í næstu
viku þegar hið ógnarsterka lið Svía
kemur í heimsókn. Þar fær Ísland
færi á að gera atlögu að toppsæti
riðilsins og beinum þátttökurétti á
fjórða Evrópumótinu í röð. Leikur-
inn gegn Lettum gæti því verið fínn
leikur fyrir Stelpurnar okkar til
að skerpa á nokkrum hlutum eftir
langa fjarveru.
„Fólk reiknar kannski með því
að þetta sé hálfgerður æfingaleikur
í kvöld en stelpurnar hlusta ekkert á
það. Þær vita að við þurfum fyrst og
fremst að vinna leikinn. Það er erfitt
að bera þessa leiki saman, það verð-
ur hlutverk okkar að stjórna leikn-
um í kvöld en gegn Svíum verða það
þær sem stýra umferðinni. Þetta eru
tveir mjög ólíkir leikir og það er er
þvi erfitt að fara í einhverjar leikir
tilraunir. Fyrst og fremst er gott
fyrir liðið að fá keppnisleik í kvöld
fyrir leikinn gegn Svíum og vonandi
ná að stilla saman strengi og finna
taktinn aftur í alvöru keppnisleik.“
kristinnpall@frettabladid.is
Skyldusigur fyrir Stelpurnar
Ísland mætir Lettum í undankeppni EM í kvöld í fyrsta keppnisleik kvennalandsliðsins í tíu mánuði.
Leikurinn í kvöld gæti reynst liðinu vel til að stilla saman strengi fyrir stórleikinn gegn Svíum eftir helgi.
Ef Elín Metta Jensen
kemur við sögu verður hún
25. konan sem nær 50
landsleikjum fyrir Ísland.
Ásta Eir, Hlín,
Agla María
og Elín Metta
fagna marki
Elínar gegn Sló-
vakíu síðasta
haust sem
reyndist sigur-
mark leiksins.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
NBA Rúmlega ári eftir að hafa leitt
Toronto Raptors til sigurs í úrslita-
keppni NBA-deildarinnar, átti
Kawhi Leonard í stökustu vand-
ræðum þegar hann og liðsfélagar
hans voru sendir í sumarfrí af liði
Denver Nuggets, aðfaranótt mið-
vikudags. Með Leonard og Paul
George átti Clippers að vera komið
með púslin sem þurfti til að landa
loksins meistaratitli, en þeir voru
manna verstir þegar Clippers réði
ekkert við lið Nuggets á lokasprett-
inum. Eftir að hafa haltrað í gegnum
Dallas Mavericks í fyrstu umferð
úrslitakeppninnar var staðan væn-
leg þegar Clippers komst 3-1 yfir, en
drengirnir frá Denver gáfust ekki
upp og unnu þrjá leiki í röð til að
bjarga tímabili sínu.
Clippers hefur alltaf verið í
skugga stóra bróður í Los Angeles,
Los Angeles Lakers, síðan félagið
flutti búferlum frá San Diego í Borg
Englanna árið 1984. Liðið deilir
höll með Lakers, þar sem fátækleg
afrek Clippers eiga ekki roð í sex-
tán meistaratitla Lakers, þar af átta
meistaratitla síðan Clippers f lutti
til Los Angeles. Fyrir tíu árum náði
Clippers loksins að smíða saman
stjörnulið líklegt til atlögu og náði
að standa í nágrönnunum, en upp-
skeran var heldur rýr. Tveir Kyrra-
hafsriðilstitlar voru allur árangur-
inn sem náðist, áður en liðið var
leyst upp og reynt á ný.
Félaginu tókst að landa stærsta
bitanum á markaðnum í fyrra,
þegar Leonard samþykkti tilboð
Clippers gegn því að félagið myndi
einnig semja við Paul George. Clip-
pers borgaði fúlgur fjár fyrir George
og sendi í hina áttina efnilegan
leikmann, Shai Gilgeous-Alexand-
er, ásamt fimm valréttum í fyrstu
umferð nýliðavalsins sem er haldið
á ári hverju. Með því voru skilaboð-
in skýr, það átti að vinna titil sem
fyrst með tveimur reynslumiklum
stjörnum við þrítugsaldur á kostn-
að næstu ára. Á sama tíma sendu
nágrannarnir í Lakers sömu skila-
boð með því að semja við Anth ony
Davis á kostnað framtíðar valrétta
í nýliðavalinu.
Það stefndi því allt í blóðuga
baráttu milli liða sem deildu
keppnishöll, um hvort liðið fengi
að vera fulltrúi Vesturdeildarinnar í
úrslitum NBA áður en Clippers féll á
prófinu, enn einu sinni, undir stjórn
Doc Rivers. Í annað sinn á fimm
árum var Clippers með pálmann
í höndunum og þurfti aðeins að
vinna einn leik til viðbótar í und-
anúrslitum Vesturdeildarinnar en
kastaði frá sér miðanum með því að
tapa þremur leikjum í röð. – kpt
Gömul saga og ný að Clippers falli á prófinu þegar á reynir
Kawhi komst lítt áleiðis sóknarlega í oddaleiknum. MYND/GETTY
FÓTBOLTI Íslandsmeistarar KR
mæta í dag eistnesku meisturunum
í Flora Tallinn ytra, í annarri umferð
undankeppni Evrópudeildarinnar.
Um er að ræða hreinan úrslitaleik
um hvort liðið fer áfram og mætir
Linfield frá Norður-Írlandi eða
Floriana frá Möltu í þriðju umferð.
KR á því fínan möguleika á að kom-
ast í lokastig undankeppninnar
fyrir Evrópudeildina, þar sem stærri
og sterkari lið bætast við hópinn.
Árangur íslenskra liða í Evrópu-
keppnum undanfarin ár hefur
valdið vonbrigðum og er Ísland
fyrir vikið komið í 50. sæti á styrk-
leikalista UEFA. Það er síðasta sætið
sem veitir fjórum liðum Evrópusæti
á hverju ári og er því hætt við því
að aðeins Íslandsmeistarar, bikar-
meistarar og silfurlið Íslandsmóts-
ins komist í Evrópukeppni ef KR
dettur út í dag en breytingin tekur
ekki gildi strax.
Með góðum árangri í næstu Evr-
ópuleikjum gæti KR skilað íslensku
deildarkeppninni ofar á styrkleika-
lista UEFA eða styrkt stöðu Íslands í
50. sæti sem myndi framlengja því
að Ísland væri með fjögur Evrópu-
sæti í bili. Það ættu því mörg lið að
fylgjast spennt með stöðu mála í
Tallinn í dag. – kpt
Íslensk félög
treysta á KR
FÓTBOLTI Arsenal gekk frá sölunni
á Emiliano Martinez til Aston Villa
í gær og leggur nú allt kapp á að
ganga frá kaupunum á Rúnari Alex
Rúnarssyni, markverði Dijon. Skytt-
urnar hafa til hádegis á morgun til
að ganga frá kaupunum til þess að
Rúnar geti verið í leikmannahópi
Arsenal gegn West Ham um helgina.
Rúnar æfði með liði Dijon í gær
á meðan félögin ganga frá formsat-
riðunum vegna félagaskipta mark-
mannsins til Arsenal. Hjá Arsenal
hittir Rúnar fyrir spænska mark-
mannsþjálfarann Inaki Cana sem
vann með KR-ingnum þegar þeir
voru hjá Nordsjælland.
Talið er að Arsenal greiði 1,5
milljónir evra fyrir Rúnar, sem
samdi við franska félagið Dijon
árið 2018. Um leið verður landsliðs-
markvörðurinn fjórði Íslendingur-
inn sem semur við Skytturnar frá
Lundúnum. – kpt
Reyna að landa
Rúnari í hvelli
Doc Rivers er fyrsti
þjálfarinn sem hefur þrisvar
fallið úr leik í úrslitakeppni
NBA eftir að hafa leitt 3-1.
1 7 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT