Fréttablaðið - 17.09.2020, Síða 26
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Max Mara er gamalgróið ítalskt fjölskyldufyrir-tæki. Þar hafa löngum
verið hannaðar gæðaullarkápur
sem hafa verið vinsælar um allan
heim. Max Mara verslanir eru í 90
löndum. Achille Maramotti setti á
stofn The House of Max Mara árið
1951 en þá hafði hann starfað við
fatahönnun frá árinu 1947. Achille
var einn fyrsti hönnuður heims
til að fjöldaframleiða vandaðar
tískuflíkur. Mörg undirmerki hafa
orðið til í framhaldinu og má þar
nefna Sportmax, Sportmax Code,
Weekend Max Mara, Marella,
Pennyblack, iBlues, Max & Co og
Marina Rinaldi. Árið 2013 varð
Jennifer Garner fyrsti frægi tals-
maðurinn fyrir Max Mara. Þá voru
settar í gang herferðir í fræg tísku-
tímarit á borð við Vogue, Harper’s
Bazaar, Elle, InStyle og fleiri.
Upphafsmaðurinn sjálfur, Achille,
sem var fæddur árið 1927 nam sín
fræði í Róm og síðar í Parma. Hann
var einn ríkasti maður heims árið
2005 samkvæmt Forbes en hann
lést það sama ár. Börn hans tóku
við fyrirtækinu og sonur hans,
Luigi Maramotti er stjórnarfor-
maður þess í dag.
Haust- og vetrartíska Max
Mara 2020-2021 var sýnd á tísku-
vikunni í Mílanó í febrúar en það
var síð asta tískuvika þessa árs.
COVID-19 hefur lokað fyrir allar
slíkar sýningar það sem af er árinu.
Á sýningunni voru þessar fallegu
yfirhafnir sýnd ar sem nú eru
komnar í verslanir. Kasmír-kápur,
hlýjar og fallegar, settu svip sinn
á sýninguna enda eru ullarkápur
mjög vinsælar í haust. Hér á mynd-
unum má sjá tískukápurnar frá
Max Mara.
Hlýjar og haustlegar kápur
Tískumerkið Max Mara er þekkt fyrir fallegar kápur og þær voru margar
glæsilegar þegar fyrirtækið kynnti haust- og vetrartísku sína fyrir 2020-2021.
Skemmtileg blá kápa með hettu.
Frekar óvenjulegt snið en fallegt.
Klassísk Max Mara kápa úr kasmír-
ull. Svona flík fer aldrei úr tísku.
Skemmtilega röndótt kápa sem
hentar vel í vetrarkuldanum.
Hlý-
leg slá
fyrir veturinn
frá Max Mara.
MYNDIR/GETTY
Þessi
kápa er
eins og fal-
legur pels.
Fallegur
ullarjakki sem
hentar jafnt við
gallabuxur og fín
pils.
Þessi fallega
hnésíða kápa er úr
kasmír og er mjög
falleg á litinn.
Þessi fallega kápa minnir
á gömlu Álafossúlpurnar.
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R