Fréttablaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 36
BÍLAR
Tvinnbíllinn fer í
178 hestöfl en hann
verður boðinn með nýju
hraðanæmu beinskipt-
ingunni.
Nissan hefur forsýnt nýja 400Z
sportbílinn með myndasyrpu
á netinu, af bíl sem þeir kalla Z
Proto. Bíllinn er með V6-bensín-
vél með tveimur forþjöppum og
afturdrifi og hefur því alla burði til
að vera hinn skemmtilegasti bíll.
Því miður er þó sagt í meðfylgjandi
fréttatilkynningu að bíllinn verði
ekki boðinn í Evrópu. Eru ástæð-
urnar sem tilgreindar eru þær
að sportbílamarkaður í Evrópu
fari minnkandi. Einnig réttlæti
strangari mengunarreglur í Evr-
ópu ekki að setja bílinn á markað
þar og er það ekki talið gróðavæn-
legt fyrir Nissan. Búast má því við
að aðal markaðssvæði hans verði í
Bandaríkjunum.
Ekki í boði í Evrópu
Nýr 400Z verður beinskiptur.
Hyundai-merkið kynnti á
þriðjudaginn nýja kynslóð
Tucson, en bíllinn hefur fengið
algera endurhönnun frá botn-
plötu og upp úr. Í fyrsta lagi er
bíllinn með endurhönnuðu
útliti, sem verður einkenn-
andi fyrir Tucson. Auk þess
hafa verið gerðar breytingar á
undirvagni og tæknibúnaði til
að bíllinn geti keppt í lúxus, en
helstu keppinautar hans eru
nokkrir eins og Toyota RAV4,
Kia Sportage og Peugeot 3008.
Útlitið kom fyrst í ljós á Vision T
tilraunabílnum, en framendinn
er sérstakur með grilli sem rennur
saman við aðalljósin, sem verða
ósýnileg þegar slökkt er á þeim.
Línurnar í nýjum Tucson eru líka
mun skarpari en áður og aftur-
ljósin ná hliða á milli. Bíllinn er
aðeins stærri en fyrirrennarinn og
munar mest um að hjólhaf er 10
mm lengra. Þýðir það meira fóta-
rými og allt að 620 lítra farangurs-
rými. Endurhönnunin nær einnig
til innréttingar, sem er með lægra
mælaborði til að auka útsýni.
Tveir 10,25 tommu litaskjáir
eru allsráðandi í mælaborði og
miðjustokk. Auk Apple CarPlay og
Android Auto er komið innbyggt
Google og Apple Calendar, þar sem
er hægt að skipta á milli notenda
með einföldum hætti. Upplýsinga-
kerfið talar við símann á ýmsa
vegu, til dæmis sendir það vegvísi
í farsímann til að notandinn geti
komist á áfangastað fótgangandi
ef hann þarf að leggja langt frá
ákvörðunarstað.
Bæði vélbúnaður og fjöðrun
nýs Tucson eru endurhönnuð,
en nú verður hægt að velja um
stillanlega dempara fyrir dýrari
útgáfur hans. Minnsta vélin í
boði er 1,6 lítra bensínvél sem
skilar 148 hestöflum við sex gíra
beinskiptingu. Þrjár gerðir mildra
Endurhannaður Hyundai Tucson kynntur
Suzuki hefur kynnt til sögunnar
annan bíl sinn sem er afsprengi
samstarfs framleiðandans við
Toyota. Bíllinn heitir Swace og er
byggður að miklu leyti á Toyota
Corolla Touring Sports. Bílnum
svipar líka mjög til Corolla-bílsins,
þó að átt hafi verið við grill,
stuðara og ljósabúnað til að breyta
aðeins útlitinu. Hægt verður að
velja um sjö liti sem eru einkenn-
andi fyrir Suzuki. Það sama má
segja um innanrými sem kemur að
öllu leyti frá Toyota, nema leður-
innrétting þegar hún er í boði.
Bíllinn verður með snjallstýri og
átta tommu upplýsingaskjá sem
styður bæði Apple CarPlay og
Android Auto. Tvinnbúnaðurinn í
Swace kemur líka beint frá Toyota
en bíllinn verður með 1,8 lítra
bensínvél og 71 hestafls rafmótor.
Sjálfskiptingin er CVT og upptakið
11,1 sekúnda í hundraðið, og þar
sem CO2 gildi hans er aðeins 99
g/km má búast við að hann verði
á góðu verði þegar hann kemur á
markað. Hann kemur á markað
seint á þessu ári í Evrópu en ekki
fyrr en á næsta ári hérlendis,
að sögn Sonju G. Ólafsdóttur,
markaðsstjóra Suzuki.
Suzuki Swace kemur hér á markað 2021
Honda mun nota bílasýninguna
í Peking í lok mánaðarins til að
kynna nýjan raf bíl merkisins. Bíll-
inn er ætlaður á markað í Asíu og
er á tilraunastigi en líklegt þykir
að hann sé á leið í framleiðslu. Á
tölvugerðri myndinni má sjá að
hann er mun nýtískulegri í útliti
en Honda E, með hvössum línum
og ljósum. Bíllinn hefur ekki
fengið nafn ennþá, en hann verður
kynntur í lok september.
Honda kynnir
annan rafbíl sinn
Innréttingin í Tucson er lægri en áður til að auka útsýni út úr bílnum.
Framendi bílsins er með alveg nýju útliti og framljósin renna saman við grillið á skemmtilegan máta.
Njáll
Gunnlaugsson
njall@frettabladid.is
tvinnútfærslna með 48 volta kerfi
verða í boði. Með 1,6 lítra vélinni
fer tvinnbíllinn í 178 hestöfl en
hann verður boðinn með nýju
hraðanæmu beinskiptingunni,
sem er án kúplingspedala. Einnig
er hægt að fá bílinn með sjö þrepa
sjálfskiptingu og tvinnútfærslu
með 134 hestafla dísilvél. Alvöru
tvinnbíll verður í boði frá upphafi,
einnig með 1,6 lítra vélinni og að
þessu sinni 59 hestafla rafmótor.
Sú útgáfa skilar 227 hestöflum og
350 Newtonmetra togi. Búast má
við tengiltvinnútgáfu á næsta ári.
Verð hefur ekki verið kynnt enn þá
en verður kynnt á næstu vikum, að
sögn Ragnars Steins Sigþórssonar,
sölustjóra Hyundai. „Við áætlum
að fá fyrstu kynningareintökin
í lok nóvember, ef COVID lofar“
sagði Ragnar enn fremur.
Suzuki Swace er mjög áþekkur Corolla Touring Sports í útliti, þrátt fyrir
nokkrar breytingar á grilli, stuðara og fram- og afturljósum.
Nýtískulegt útlit minnir á Accord.
Swace er annar bíll
Suzuki í samstarfi
merkisins við Toyota, en
Suzuki A-Cross er sá
fyrsti.
Skipulagsyfirvöld Keflavíkurflugvallar auglýsa hér með tillögu að
breytingu á aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar, í samræmi við 36. gr.
skipulagslaga svo og breytingu á deiliskipulagi NA-svæðis Keflavíkur-
flugvallar í samræmi við 43. gr. skipulagslaga.
Tillögurnar eru aðgengilegar á heimasíðu Isavia,
isavia.is/skipulag-i-kynningu. Einnig verða tillögurnar til sýnis á
skrifstofu Isavia í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og aðalskipulagstillagan
hjá Skipulagsstofnun að Borgartúni 7b frá og með 17. september 2020
til og með 30. október 2020. Meginbreyting skipulagsáætlana felur
í sér heimild fyrir nýjum þjónustuvegi milli Reykjanesbrautar
og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta gefst kostur á að gera
athugasemdir við tillögurnar.
Frestur til að gera athugasemdir rennur út 30. október 2020.
Skila skal skriflegum athugasemdum og /eða ábendingum til:
Skipulagsfulltrúi Keflavíkurflugvallar,
Flugstöð Leifs Eiríkssonar, 235 Keflavíkurflugvelli
eða á netfangið sveinn.valdimarsson@isavia.is.
A U G L Ý S I N G U M T I L L Ö G U R A Ð B R E Y T I N G U
Á A Ð A L S K I P U L A G I K E F L A V Í K U R F L U G V A L L A R
2 0 1 3 - 2 0 3 0 O G B R E Y T I N G U Á D E I L I S K I P U L A G I
N A - S V Æ Ð I S K E F L A V Í K U R F L U G V A L L A R
1 7 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R24 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð