Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Page 8
ÍSLENSKUR HARMLEIKUR Í NOREGI
Blaðamaðurinn Atli Steinn Guðmundsson var viðstaddur aðalmeðferð í sakamáli
vegna fjölskylduharmleiks íslenskra bræðra í smábænum Mehamn í Noregi í fyrra.
H armleikur átti sér stað í smábænum Mehamn í Finnmörku í Norður-
Noregi þann 27. apríl 2019
þegar Íslendingurinn Gísli
Þór Þórarinsson var skotinn
til bana. Málið vakti mikla
athygli hér á landi eftir að
bróðir Gísla, Gunnar Jóhann
Gunnarsson, játaði á sam-
félagsmiðlum að vera sekur í
málinu.
Rammíslenskir aðilar
Atli Steinn Guðmundsson,
blaðamaður Morgunblaðsins,
var viðstaddur þegar málflutn-
ingur fór fram í máli ákæru-
valdsins á hendur Gunnar Jó-
hanni, en aðalmeðferð lauk nú
í vikunni. Atli segir í samtali
við DV að þetta tiltekna mál
sé nokkuð sérstakt þar sem
bæði brotaþoli og gerandi eru
íslenskir.
„Þarna er maður að horfa
á mál þar sem eru rammís-
lenskir aðilar á báða bóga og
maður er þó staddur „erlendis“
þótt ég hafi búið hér í rúm tíu
ár. Þannig að það eru töluvert
önnur formerki á þessu og ég
hefði ekki þvælst hátt í 2.000
kílómetra norður til Finn-
merkur til að sitja réttarhöld í
norsku manndrápsmáli.
Þetta opnar augu manns dá-
lítið og maður hefur aðra sýn.
Eins og það er nú með Íslend-
inga sem smáþjóð þá tökum
við vel eftir því þegar aðrir Ís-
lendingar lenda í einhverjum
hremmingum erlendis, hvort
sem það er að þeir lendi í fang-
elsi eða hverfi eða jafnvel að
þeir séu myrtir. Þá erum við
ein augu og eyru og fyllumst
íslenskri samkennd.“
Réttarhöld í COVID
Atli segir það nokkuð sérstakt
að vera viðstaddur dómsmál í
miðjum kórónuveirufaraldri
og að andrúmsloftið sé óhefð-
bundið.
„Okkur, hópnum sem var
þarna, var dreift í þrjá sali.
Dómurinn sjálfur sat í rétt-
arsal eitt og þar voru í raun-
inni bara málsaðilar og svo
sækjandi og verjandi, rétt-
argæslulögmaður brotaþola
ásamt íslenskum túlki og hér-
aðsdómurum. Svo vorum við
frá fjölmiðlunum í réttarsal
númer tvö og fylgdumst með
gegnum fjarfundabúnað og
svo var þriðji hópurinn í rétt-
arsal þrjú. Þannig að þetta var
náttúrulega allt öðruvísi en
þessi dæmigerðu réttarhöld
þar sem allir sitja oftast inni í
einum sal frá níu til fjögur og
hlusta á málflutning.
En auðvitað var þetta erfitt
fyrir ábyggilega flesta þarna
og sláandi að hlusta á fram-
burðarskýrslu ákærða og
vitnisburði. Margar erfiðar
spurningar bæði frá verjanda
og sækjanda og ekki síst frá
dómaranum honum Kåre
Skognes.“
Ákaflega sorglegt mál
Segir hann ekki auðvelt að
vera viðstaddur málflutning
í jafn alvarlegu máli og hér
um ræðir. „Það er ekki auð-
velt fyrir neinn, síst aðstand-
endur og vini, að fara í gegn-
um rúma viku af upprifjun af
skelfilegum atburði og fara
yfir ótal smáatriði næstum
einu og hálfu ári seinna.
Þannig að auðvitað var þetta
eins og í öllum alvarlegum af-
brotamálum, erfiðar lýsingar
og erfiðar myndir og margar
erfiðar framburðarskýrslur.
Þetta er ákaflega sorglegt
mál, hvaðan sem horft er.“
Ásetningur eða gáleysi
Gunnar Jóhann hefur gengist
við því að hafa farið vopnaður
að heimili bróður síns, undir
áhrifum og fullur af bræði
– en Gísli hafði tekið saman
við fyrrverandi eiginkonu og
barnsmóður Gunnars. Hins
vegar hefur Gunnar ávallt
haldið því fram að um voða-
skot hafi verið að ræða, mann-
dráp af gáleysi, en ákæruvald-
ið heldur því fram að Gunnar
hafi haft ásetning til að bana
bróður sínum.
Nú hefur Atli hlýtt á báðar
hliðar fyrir dómi. Hann tekur
þó ekki afstöðu til þess hvort
um gáleysi eða ásetning hafi
verið að ræða.
„Nú er mjög erfitt fyrir mig
eins og ég kem að málinu, fyrir
hönd fjölmiðla, að taka nokkra
afstöðu í því. Það er erfitt að
gera sér í hugarlund hvað í
rauninni gerðist þarna þar sem
ákærði er í raun einn til frá-
sagnar um sjálfan atburðinn.
Skýrslur frá norsku rann-
sóknarlögreglunni Kripos
sýndu fram á það að hægt
hefði verið að hleypa af skot-
vopninu án þess að taka í
gikkinn og verjandinn, Bjørn
Andre Gulstad, er búinn að
leggja á það gríðarlega áherslu
í löngu máli, hann flutti
þriggja tíma lokaræðu þegar
réttarhöldunum lauk. Hann
talaði um það bil frá klukkan
eitt til fjögur og hann hefur
verið með sterka nærveru og
verið mjög harður í sínum
málflutningi í þessum réttar-
höldum og hamrað endalaust á
því og bent á gögn frá Kripos
um að þarna hljóti að hafa ver-
ið orðið slys.“ Réttarhöldunum
lauk síðastliðinn þriðjudag en
von er á dómsuppkvaðningu
innan þriggja vikna.
„En auðvitað er margt sem
bendir í hina áttina líka eins
og rætt hefur verið, til dæmis
af hálfu réttargæslumanns
brotaþola sem sagði að þú
færir varla með hlaðna hagla-
byssu á vettvang ef þú ætlaðir
ekki að gera neitt. Þannig að
þarna leikast á andstæð sjón-
armið og erfiðar sönnunar-
kröfur og þetta verða áreiðan-
lega miklar vangaveltur hjá
dómendum að kveða upp dóm
í þessu máli á næstu þremur
vikum, það er alveg öruggt
mál. Þetta er erfitt og snúið
mál og engin vitni á staðnum
nema ákærði. Þarna er deilt
um fjölda atriða og málinu
verður ábyggilega áfrýjað.“
Ítrekaðar hótanir
Atli segir þó ekki hægt að líta
fram hjá því að í aðdraganda
harmleiksins hafi Gunnar
ítrekað haft uppi hótanir við
Gísla og fyrrverandi eigin-
konu sína. Svo grófar voru
hótanirnar og áreitið að hann
var dæmdur til að sæta nálg-
unarbanni gegn þeim.
„Þarna voru náttúrulega
stífar vitnaleiðslur og liggja
fyrir margra daga hótanir í
garð Gísla og kærustu hans
sem ekki er hægt að líta fram
hjá. Þar voru beinlínis mann-
drápshótanir sem hafa auðvit-
að mjög mikið að segja svo það
er alveg skiljanlegt að strax
sé ákært fyrir manndráp af
ásetningi. Svo koma tækni-
legar rannsóknir og fram-
burður ákærða á móti sem
benda til þess að þarna hafi
orðið átök um haglabyssu og
hún hafi verið haldin ákveðn-
um galla og verjandi segir að
hafir þú virkilega ákveðið að
drepa einhvern þá skjótir þú
hann varla í fótinn. Þannig að
rökin á báða bóga hafa verið
mörg og þetta er erfitt mál að
því leyti.“
Betrun í fangelsi
Gunnar Jóhann samþykkti
að veita Atla Steini viðtal
fyrir hönd Morgunblaðsins.
Atli hitti hann á hámarksör-
yggisgæsludeild fangelsisins
í Vadsø. Atli segir aðbúnaðinn
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
Til átaka kom milli bræðranna Gunnars og Gísla í bænum Mehamn með þeim afleiðingum að sá síðarnefndi lést. MYND/CAVIGLIA DENIS – HEMIS.FR
Það er alveg
skiljanlegt að
strax sé ákært
fyrir manndráp
af ásetningi.
Atli Steinn
Guðmundsson
blaðamaður á
Morgunblaðinu
8 FRÉTTIR 2. OKTÓBER 2020 DV