Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Síða 16
16 EYJAN 2. OKTÓBER 2020 DV
Bandarísk stjórnmál eru lituð af sögunni. MYND/GETTY
Aðeins er rétt rúmur mán-uður til forsetakosninga í Bandaríkjunum og ljóst
að kosningabaráttan er þegar
orðin sú litríkasta sem fram
hefur farið. Bandarísk stjórn-
mál eru mikið til umfjöllunar í
íslenskum fjölmiðlum og áhugi
Íslendinga á þeim mikill. Það
sýndi sig best í því að þús-
undir Íslendinga vöktu fram
eftir nóttu á þriðjudaginn til
að fylgjast með kappræðum
forsetaframbjóðendanna Do-
nalds Trump og Joes Biden.
Kappræðurnar stóðu undir
væntingum. Lýsingu CNN á
kvöldinu verða ekki gerð góð
skil nema á móðurmálinu:
„Shitshow.“
Mörgum kann að þykja
bandarísk stjórnmál furðuleg
framkvæmd. Að 350 milljóna
manna þjóð sé á fjögurra ára
fresti soðin niður í tvo ein-
staklinga í margra mánaða
löngu ferli sem lýkur svo
daginn eftir fyrsta mánudag
fjórða hvers nóvembermán-
aðar. Svo þykknar súpan enn
frekar þegar það gerist, til
dæmis árið 2016, að fram-
bjóðandi sigrar án meirihluta
atkvæða.
Í þessu, eins og svo mörgu
öðru, er svarið að finna í sög-
unni. Sagan útskýrir kosn-
ingakerfið, kosningakerfið út-
skýrir tveggja flokka kerfið,
og tveggja flokka kerfið út-
skýrir frambjóðendurna.
Sagan
Bandaríkin eru stofnuð á
veikum grundvelli. Fyrstu 200
árin var fleira sem sundraði
ríkjunum en sameinaði þau.
Raunar má segja að tungumál-
ið og gjaldmiðillinn hafi verið
það eina sem fyrstu 13 ríkin
áttu sameiginlegt. Þau byggðu
á gjörólíkum efnahagslegum
grunni, lífið þar var gjörólíkt,
það sem mestu skipti, sýn
þeirra á lögmæti þrælahalds
var gjörólík. Fyrstu ríkin voru
13, táknuð á bandaríska fán-
anum sem 13 hvítar og rauð-
ar rendur. Þau ríki komu sér
saman um að lýsa yfir sjálf-
stæði 1776 og sameiginlega
stjórnarskrá 1888.
Stjórnarskráin var niður-
staða þriggja mikilvægra
málamiðlana milli norður- og
suðurríkjanna. Allar snéru
þær með einum eða öðrum
hætti að þrælahaldi. Tryggja
þurfti valdajafnvægi milli
landshlutanna og stórra og
smárra ríkja og þótti því
ótækt að ríkin hefðu jafnt at-
kvæðavægi. Hins vegar gátu
ríkin ekki komið sér saman
um hlutfallslegt atkvæðavægi
ríkjanna á þinginu heldur.
Niðurstaðan varð sú að skipta
þinginu í tvær deildir. Full-
trúa- og öldungadeild. Ríki
fengi þannig úthlutað full-
trúum í neðri deild eftir íbúa-
fjölda en fjöldi fulltrúa í efri
deild var festur í tveimur á
hvert ríki, óháð stærð þess.
Til þess að frumvarp verði að
lögum þurfa báðar deildir að
samþykkja það.
Önnur málamiðlunin snéri
að framkvæmd manntals sem
undirstöðu úthlutunar þing-
sæta. Suðurríkin óttuðust að
fjöldi „frjálsra“ í norðrinu,
sérstaklega Massachusetts
og Pennsylvaníu, myndi yfir-
gnæfa fjölda „frjálsra“ í suðr-
inu. Niðurstaðan var að telja
„aðra“ sem þrjá fimmtu af
heilum, frjálsum manni. Hér
var bersýnilega átt við svarta
þræla í suðurríkjunum, en þeir
voru um 40 prósent af íbúum
ríkjanna.
Þá var það fest í stjórnar-
skrá að kjósa skyldi daginn
eftir fyrsta mánudag nóv-
embermánaðar. Þetta þótti
hæfilegur tími fyrir „frjálsa
eignarmenn“ að kjósa. Mánu-
dagar þóttu ótækir í gamla
landbúnaðarsamfélagi Banda-
ríkjanna.
Kosningakerfið
Það var aldrei ætlun höfunda
stjórnarskrárinnar að búa til
sterkan þjóðhöfðingja. En það
var niðurstaðan engu að síður.
Í kosningakerfinu sem stuðst
er við þegar þjóðhöfðinginn
er valinn eimir hins vegar
enn af þeirri hugsun að verið
sé að velja sameiningartákn
ríkjanna, en ekki þjóðarinnar.
Því var sú leið valin að kjósa
forseta óbeinni kosningu.
Kjörmenn skyldu valdir af
ríkinu, og eftir atvikum íbúum
þess í kosningum. Fyrstu ára-
tugina voru það ríkjaþingin
sem völdu fulltrúana. Kosn-
ingarnar 1880 voru fyrstu
kosningarnar þar sem allir
kjörmenn voru kosnir í þeirri
mynd sem það er í dag.
Samkvæmt upphaflegum
bollaleggingum stjórnarskrár-
höfunda átti kosningakerfið að
virka svo að hver kjörmaður
fengi tvö atkvæði og mætti því
velja tvo menn. Sá maður sem
fengi flest atkvæði yrði for-
seti og sá næsti varaforseti.
Ef kjörmannakerfið klikkaði
skyldi öldungadeildin velja
varaforseta og fulltrúadeildin
velja forseta. Það er í raun enn
þannig í dag.
Öldungadeildarþingmenn
eru kjörnir til sex ára og er
kosið um þriðjung sætanna
á tveggja ára fresti. Þeir eru
samtals 100, tveir frá hverju
ríki. Kjördæmi öldungadeild-
arinnar er hvert ríki fyrir sig
í heild sinni. Fulltrúadeildar-
þingmenn eru kjörnir sam-
kvæmt kjördæmaskiptingu
hvers ríkis fyrir sig til tveggja
ára í senn. Þeir eru í heild 435
og skiptast þau sæti svo til
jafnt á ríkin. Þannig fara allar
kosningar til alríkisembætta
fram á grundvelli einmenn-
ingskjördæma.
Kjörmannafjöldi ríkis er þá
samanlagður fjöldi þingmanna
í efri og neðri deildum. Það
gerir 535. Washington D.C.
hefur frá miðri 20. öld fengið
að taka þátt og fær úthlutaða
þrjá kjörmenn. Þannig er
heildarfjöldi kjörmanna 538,
og þarf því 270 kjörmenn til
að vinna kosningarnar.
Til að fá alla kjörmenn
ríkis úthlutaða nægir fram-
bjóðanda að fá flest atkvæða í
viðkomandi ríki. Þó eru dæmi
um vísi að hlutfallskosningu.
Þar sem frambjóðanda nægir
að fá aðeins einfaldan meiri-
hluta í hverju ríki „falla dauð“
þau atkvæði sem eftir standa.
Ef frambjóðandi sigrar í ríki
með 51 prósent þá telja 49 pró-
sentin ekki neitt. Þau hafa ekk-
ert vægi. Í kosningunum 2016
atvikaðist það til dæmis í Flór-
ída að Trump vann ríkið með
113 þúsund atkvæðum eða rétt
rúmt prósent heildarfjölda at-
kvæða. Þetta eina prósent olli
því að 4,5 milljónir atkvæða
Hillary Clinton urðu að engu.
Þetta getur leitt til þess
að frambjóðandi sigri án
þess að meirihluti kjósenda
kjósi hann. Þetta hefur gerst
fjórum sinnum, tvisvar á 19.
öld, árið 2000 (Bush) og árið
2016 (Trump). Þetta kerfi
verður líka til þess að þau ríki
þar sem mjótt er á munum
milli frambjóðenda fær hlut-
fallslega meiri athygli enda
til mests að vinna þar með
minnstum tilkostnaði. Kali-
fornía er til dæmis „blátt ríki“
og þó það sé langfjölmennasta
ríkið og þar af leiðandi með
flesta kjörmenn, fær það al-
mennt litla athygli í forseta-
kosningum. Þessi ríki eru
gjarnan kölluð sveifluríki (e.
swing states).
FLÓKIÐ KOSNINGAKERFI ÚT-
SKÝRIR LITRÍKA BARÁTTU
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is
Mörgum kann að þykja bandaríska kosningakerfið undarleg smíð.
Það er torskilið en skýringar á flóknu eðli þess má finna í sögu þess.
Sagan skýrir kerfið, kerfið skýrir flokkana og flokkarnir skýra fólkið.