Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Qupperneq 16
16 EYJAN 2. OKTÓBER 2020 DV Bandarísk stjórnmál eru lituð af sögunni. MYND/GETTY Aðeins er rétt rúmur mán-uður til forsetakosninga í Bandaríkjunum og ljóst að kosningabaráttan er þegar orðin sú litríkasta sem fram hefur farið. Bandarísk stjórn- mál eru mikið til umfjöllunar í íslenskum fjölmiðlum og áhugi Íslendinga á þeim mikill. Það sýndi sig best í því að þús- undir Íslendinga vöktu fram eftir nóttu á þriðjudaginn til að fylgjast með kappræðum forsetaframbjóðendanna Do- nalds Trump og Joes Biden. Kappræðurnar stóðu undir væntingum. Lýsingu CNN á kvöldinu verða ekki gerð góð skil nema á móðurmálinu: „Shitshow.“ Mörgum kann að þykja bandarísk stjórnmál furðuleg framkvæmd. Að 350 milljóna manna þjóð sé á fjögurra ára fresti soðin niður í tvo ein- staklinga í margra mánaða löngu ferli sem lýkur svo daginn eftir fyrsta mánudag fjórða hvers nóvembermán- aðar. Svo þykknar súpan enn frekar þegar það gerist, til dæmis árið 2016, að fram- bjóðandi sigrar án meirihluta atkvæða. Í þessu, eins og svo mörgu öðru, er svarið að finna í sög- unni. Sagan útskýrir kosn- ingakerfið, kosningakerfið út- skýrir tveggja flokka kerfið, og tveggja flokka kerfið út- skýrir frambjóðendurna. Sagan Bandaríkin eru stofnuð á veikum grundvelli. Fyrstu 200 árin var fleira sem sundraði ríkjunum en sameinaði þau. Raunar má segja að tungumál- ið og gjaldmiðillinn hafi verið það eina sem fyrstu 13 ríkin áttu sameiginlegt. Þau byggðu á gjörólíkum efnahagslegum grunni, lífið þar var gjörólíkt, það sem mestu skipti, sýn þeirra á lögmæti þrælahalds var gjörólík. Fyrstu ríkin voru 13, táknuð á bandaríska fán- anum sem 13 hvítar og rauð- ar rendur. Þau ríki komu sér saman um að lýsa yfir sjálf- stæði 1776 og sameiginlega stjórnarskrá 1888. Stjórnarskráin var niður- staða þriggja mikilvægra málamiðlana milli norður- og suðurríkjanna. Allar snéru þær með einum eða öðrum hætti að þrælahaldi. Tryggja þurfti valdajafnvægi milli landshlutanna og stórra og smárra ríkja og þótti því ótækt að ríkin hefðu jafnt at- kvæðavægi. Hins vegar gátu ríkin ekki komið sér saman um hlutfallslegt atkvæðavægi ríkjanna á þinginu heldur. Niðurstaðan varð sú að skipta þinginu í tvær deildir. Full- trúa- og öldungadeild. Ríki fengi þannig úthlutað full- trúum í neðri deild eftir íbúa- fjölda en fjöldi fulltrúa í efri deild var festur í tveimur á hvert ríki, óháð stærð þess. Til þess að frumvarp verði að lögum þurfa báðar deildir að samþykkja það. Önnur málamiðlunin snéri að framkvæmd manntals sem undirstöðu úthlutunar þing- sæta. Suðurríkin óttuðust að fjöldi „frjálsra“ í norðrinu, sérstaklega Massachusetts og Pennsylvaníu, myndi yfir- gnæfa fjölda „frjálsra“ í suðr- inu. Niðurstaðan var að telja „aðra“ sem þrjá fimmtu af heilum, frjálsum manni. Hér var bersýnilega átt við svarta þræla í suðurríkjunum, en þeir voru um 40 prósent af íbúum ríkjanna. Þá var það fest í stjórnar- skrá að kjósa skyldi daginn eftir fyrsta mánudag nóv- embermánaðar. Þetta þótti hæfilegur tími fyrir „frjálsa eignarmenn“ að kjósa. Mánu- dagar þóttu ótækir í gamla landbúnaðarsamfélagi Banda- ríkjanna. Kosningakerfið Það var aldrei ætlun höfunda stjórnarskrárinnar að búa til sterkan þjóðhöfðingja. En það var niðurstaðan engu að síður. Í kosningakerfinu sem stuðst er við þegar þjóðhöfðinginn er valinn eimir hins vegar enn af þeirri hugsun að verið sé að velja sameiningartákn ríkjanna, en ekki þjóðarinnar. Því var sú leið valin að kjósa forseta óbeinni kosningu. Kjörmenn skyldu valdir af ríkinu, og eftir atvikum íbúum þess í kosningum. Fyrstu ára- tugina voru það ríkjaþingin sem völdu fulltrúana. Kosn- ingarnar 1880 voru fyrstu kosningarnar þar sem allir kjörmenn voru kosnir í þeirri mynd sem það er í dag. Samkvæmt upphaflegum bollaleggingum stjórnarskrár- höfunda átti kosningakerfið að virka svo að hver kjörmaður fengi tvö atkvæði og mætti því velja tvo menn. Sá maður sem fengi flest atkvæði yrði for- seti og sá næsti varaforseti. Ef kjörmannakerfið klikkaði skyldi öldungadeildin velja varaforseta og fulltrúadeildin velja forseta. Það er í raun enn þannig í dag. Öldungadeildarþingmenn eru kjörnir til sex ára og er kosið um þriðjung sætanna á tveggja ára fresti. Þeir eru samtals 100, tveir frá hverju ríki. Kjördæmi öldungadeild- arinnar er hvert ríki fyrir sig í heild sinni. Fulltrúadeildar- þingmenn eru kjörnir sam- kvæmt kjördæmaskiptingu hvers ríkis fyrir sig til tveggja ára í senn. Þeir eru í heild 435 og skiptast þau sæti svo til jafnt á ríkin. Þannig fara allar kosningar til alríkisembætta fram á grundvelli einmenn- ingskjördæma. Kjörmannafjöldi ríkis er þá samanlagður fjöldi þingmanna í efri og neðri deildum. Það gerir 535. Washington D.C. hefur frá miðri 20. öld fengið að taka þátt og fær úthlutaða þrjá kjörmenn. Þannig er heildarfjöldi kjörmanna 538, og þarf því 270 kjörmenn til að vinna kosningarnar. Til að fá alla kjörmenn ríkis úthlutaða nægir fram- bjóðanda að fá flest atkvæða í viðkomandi ríki. Þó eru dæmi um vísi að hlutfallskosningu. Þar sem frambjóðanda nægir að fá aðeins einfaldan meiri- hluta í hverju ríki „falla dauð“ þau atkvæði sem eftir standa. Ef frambjóðandi sigrar í ríki með 51 prósent þá telja 49 pró- sentin ekki neitt. Þau hafa ekk- ert vægi. Í kosningunum 2016 atvikaðist það til dæmis í Flór- ída að Trump vann ríkið með 113 þúsund atkvæðum eða rétt rúmt prósent heildarfjölda at- kvæða. Þetta eina prósent olli því að 4,5 milljónir atkvæða Hillary Clinton urðu að engu. Þetta getur leitt til þess að frambjóðandi sigri án þess að meirihluti kjósenda kjósi hann. Þetta hefur gerst fjórum sinnum, tvisvar á 19. öld, árið 2000 (Bush) og árið 2016 (Trump). Þetta kerfi verður líka til þess að þau ríki þar sem mjótt er á munum milli frambjóðenda fær hlut- fallslega meiri athygli enda til mests að vinna þar með minnstum tilkostnaði. Kali- fornía er til dæmis „blátt ríki“ og þó það sé langfjölmennasta ríkið og þar af leiðandi með flesta kjörmenn, fær það al- mennt litla athygli í forseta- kosningum. Þessi ríki eru gjarnan kölluð sveifluríki (e. swing states). FLÓKIÐ KOSNINGAKERFI ÚT- SKÝRIR LITRÍKA BARÁTTU Heimir Hannesson heimir@dv.is Mörgum kann að þykja bandaríska kosningakerfið undarleg smíð. Það er torskilið en skýringar á flóknu eðli þess má finna í sögu þess. Sagan skýrir kerfið, kerfið skýrir flokkana og flokkarnir skýra fólkið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.