Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Side 21
FÓKUS 21DV 2. OKTÓBER 2020
AUÐUR JÓNSDÓTTIR
Auður er flestum landsmönnum kunn fyrir skemmtilegar skáldsögur
sínar. Hún hefur einnig starfað sem blaðamaður, en það mætti segja að
það starf hafi verið henni í blóð borið þar sem móðir hennar skrifaði fyrir
ýmsa fjölmiðla eins og Mannlíf og Ríkisútvarpið. Auður hefur hlotið ýmsar
viðurkenningar fyrir skáldverk sín og má þá helst nefna Stjórnlausa lukku,
Skrýtnastur er maður sjálfur, Tryggðarpant, Stóra skjálfta og Þjáningar-
frelsið, en þær voru meðal annars tilnefndar til Íslensku bókmenntaverð-
launanna og þau verðlaun fékk hún svo fyrir Fólkið í kjallaranum. Sú bók var
jafnframt tilnefnd af Íslands hálfu til Bókmenntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs 2006 og Ósjálfrátt til sömu verðlauna 2013. Kvikmynd var gerð eftir
skáldsögu hennar Stóra skjálfta sem frumsýnd verður á næsta ári. Auður
er 47 ára gömul og þykir alveg hrikalega fyndin og skemmtileg. Það leiðist
engum í kringum Auði. Hún er margverðlaunuð snilld!
DÓRA JÓHANNSDÓTTIR
Dóra Jóhannsdóttir er leikkona og leikstjóri. Hún er
einnig stofnandi spunaleikhópsins Improv Ísland. Í
fyrra var hún yfirhandritshöfundur Áramótaskaup-
sins. Hún hefur einnig haldið námskeið í sketsaskrifum.
Dóra varð fertug á árinu og á einn son. Dóra er mikill
húmoristi svo leiðinlegir vonbiðlar geta átt sig.
KRISTÍN PÉTURSDÓTTIR
Kristín Pétursdóttir er leikkona að mennt og sló fyrst í
gegn í kvikmyndinni Órói. Hún lék í sjónvarpsþáttunum
Fólkið í blokkinni árið 2013 og kvikmyndinni Bergmál
sem kom út í fyrra. Ef þú horfðir á fyrsta þátt Euro-
garðsins um síðustu helgi þá sástu Kristínu bregða
fyrir sem samfélagsmiðlastjörnunni Sollu Reynis.
Kristín Péturs á soninn Storm og nýtur mikilla vin-
sælda á samfélagsmiðlum.
GUÐRÍÐUR TORFADÓTTIR
Gurrý einkaþjálfari er einna þekktust úr sjónvarpsþáttunum Biggest Looser
og rekur í dag sína eigin fjarþjálfun á gurry.is. Eins og þeir sem hafa séð
þættina með Gurrý vita þá er hún grjóthörð, eldklár, drulludugleg og því
þýðir ekkert fyrir metnaðarlausa menn eða menn sem nenna ekki að hreyfa
sig að reyna að hreyfa við henni.
ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR
Ljósmyndarinn Ásta Kristjánsdótt-
ir þykir ein sú færasta á landinu
en hún hefur myndað margar
fallegustu forsíður tískutíma-
rita hérlendis og hafa myndir
birst eftir hana í indverska og
ítalska Vogue svo fátt eitt sé
nefnt. Hún starfaði lengi sem
fyrirsæta og kom að stofnun
fyrirsætuskrifstofunnar Eskimo
á Íslandi, Rússlandi og Indlandi.
Ásta er sinn eigin herra og rekur
ljósmyndastúdíóið Studio8. Auk
þess er hún að koma á laggirnar ís-
lenskri snyrtivörulínu sem kallast Oil of
Iceland.
ELÍN METTA JENSEN
Elín Metta er ein fremsta íþróttakona Íslands og hefur
í mörg ár verið í fremstu röð í fótboltanum. Hún er lykil-
maður í íslenska landsliðinu og hefur verið hluti af því
liði síðan árið 2012. Hún spilar með liði Vals í Pepsi-deild
kvenna og var með markahæstu leikmönnunum árið
2019 og markahæst árið 2018. Ekki nóg með að hún brilleri
innan vallarins heldur er hún jafn snjöll að utan hans. Hún
var efst í inntökuprófinu í læknisfræði við HÍ árið 2018 og hóf
læknisnám sama ár. Sem sagt – algjör sleggja!
SILJA ÚLFARSDÓTTIR
Silja er fyrrverandi afreksíþróttakona í frjálsíþróttum. Hún er margfaldur
Íslandsmeistari í spretthlaupum og vekur aðdáun hvert sem hún fer. Silja er
þúsundþjalasmiður og hefur starfað sem sölu- og markaðsstjóri, íþrótta-
fréttamaður og þjálfað afreksmenn á öllum aldri. Hún er í dag hlaupa-
þjálfari og hefur verið að þjálfa fólk í gegnum samfélagsmiðla á tímum
COVID. Silja er 39 ára og móðir tveggja drengja.
MYND/ERNIR
MYND/SAGA SIG
MYND/SIGTRYGGUR ARI
MYND/AÐEND MYND/HANNA
MYND/SIGTRYGGUR ARI
MYND/ELÍSA
BET D
A
V
ÍÐ
S
D
Ó
T
T
IR