Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Síða 21
FÓKUS 21DV 2. OKTÓBER 2020 AUÐUR JÓNSDÓTTIR Auður er flestum landsmönnum kunn fyrir skemmtilegar skáldsögur sínar. Hún hefur einnig starfað sem blaðamaður, en það mætti segja að það starf hafi verið henni í blóð borið þar sem móðir hennar skrifaði fyrir ýmsa fjölmiðla eins og Mannlíf og Ríkisútvarpið. Auður hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir skáldverk sín og má þá helst nefna Stjórnlausa lukku, Skrýtnastur er maður sjálfur, Tryggðarpant, Stóra skjálfta og Þjáningar- frelsið, en þær voru meðal annars tilnefndar til Íslensku bókmenntaverð- launanna og þau verðlaun fékk hún svo fyrir Fólkið í kjallaranum. Sú bók var jafnframt tilnefnd af Íslands hálfu til Bókmenntaverðlauna Norðurlanda- ráðs 2006 og Ósjálfrátt til sömu verðlauna 2013. Kvikmynd var gerð eftir skáldsögu hennar Stóra skjálfta sem frumsýnd verður á næsta ári. Auður er 47 ára gömul og þykir alveg hrikalega fyndin og skemmtileg. Það leiðist engum í kringum Auði. Hún er margverðlaunuð snilld! DÓRA JÓHANNSDÓTTIR Dóra Jóhannsdóttir er leikkona og leikstjóri. Hún er einnig stofnandi spunaleikhópsins Improv Ísland. Í fyrra var hún yfirhandritshöfundur Áramótaskaup- sins. Hún hefur einnig haldið námskeið í sketsaskrifum. Dóra varð fertug á árinu og á einn son. Dóra er mikill húmoristi svo leiðinlegir vonbiðlar geta átt sig. KRISTÍN PÉTURSDÓTTIR Kristín Pétursdóttir er leikkona að mennt og sló fyrst í gegn í kvikmyndinni Órói. Hún lék í sjónvarpsþáttunum Fólkið í blokkinni árið 2013 og kvikmyndinni Bergmál sem kom út í fyrra. Ef þú horfðir á fyrsta þátt Euro- garðsins um síðustu helgi þá sástu Kristínu bregða fyrir sem samfélagsmiðlastjörnunni Sollu Reynis. Kristín Péturs á soninn Storm og nýtur mikilla vin- sælda á samfélagsmiðlum. GUÐRÍÐUR TORFADÓTTIR Gurrý einkaþjálfari er einna þekktust úr sjónvarpsþáttunum Biggest Looser og rekur í dag sína eigin fjarþjálfun á gurry.is. Eins og þeir sem hafa séð þættina með Gurrý vita þá er hún grjóthörð, eldklár, drulludugleg og því þýðir ekkert fyrir metnaðarlausa menn eða menn sem nenna ekki að hreyfa sig að reyna að hreyfa við henni. ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR Ljósmyndarinn Ásta Kristjánsdótt- ir þykir ein sú færasta á landinu en hún hefur myndað margar fallegustu forsíður tískutíma- rita hérlendis og hafa myndir birst eftir hana í indverska og ítalska Vogue svo fátt eitt sé nefnt. Hún starfaði lengi sem fyrirsæta og kom að stofnun fyrirsætuskrifstofunnar Eskimo á Íslandi, Rússlandi og Indlandi. Ásta er sinn eigin herra og rekur ljósmyndastúdíóið Studio8. Auk þess er hún að koma á laggirnar ís- lenskri snyrtivörulínu sem kallast Oil of Iceland. ELÍN METTA JENSEN Elín Metta er ein fremsta íþróttakona Íslands og hefur í mörg ár verið í fremstu röð í fótboltanum. Hún er lykil- maður í íslenska landsliðinu og hefur verið hluti af því liði síðan árið 2012. Hún spilar með liði Vals í Pepsi-deild kvenna og var með markahæstu leikmönnunum árið 2019 og markahæst árið 2018. Ekki nóg með að hún brilleri innan vallarins heldur er hún jafn snjöll að utan hans. Hún var efst í inntökuprófinu í læknisfræði við HÍ árið 2018 og hóf læknisnám sama ár. Sem sagt – algjör sleggja! SILJA ÚLFARSDÓTTIR Silja er fyrrverandi afreksíþróttakona í frjálsíþróttum. Hún er margfaldur Íslandsmeistari í spretthlaupum og vekur aðdáun hvert sem hún fer. Silja er þúsundþjalasmiður og hefur starfað sem sölu- og markaðsstjóri, íþrótta- fréttamaður og þjálfað afreksmenn á öllum aldri. Hún er í dag hlaupa- þjálfari og hefur verið að þjálfa fólk í gegnum samfélagsmiðla á tímum COVID. Silja er 39 ára og móðir tveggja drengja. MYND/ERNIR MYND/SAGA SIG MYND/SIGTRYGGUR ARI MYND/AÐEND MYND/HANNA MYND/SIGTRYGGUR ARI MYND/ELÍSA BET D A V ÍÐ S D Ó T T IR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.