Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Síða 30
Lambalæri fyrir helgina
2-3 msk. ferskt timían
2 stk. skarlottulaukur
3 msk. ólífuolía
Sjávarsalt og pipar
Byrjið á því að snyrta lambalærið
og setja það í góðan pott sem má
fara í ofn.
Útbúið marineringuna, setjið ólífu-
olíuna í skál, saxið niður ferskt
timían og raspið niður skarlottu-
lauk með rifjárni. Blandið öllu
saman ásamt því að salta og pipra
blönduna.
Smyrjið blöndunni á lærið og pass-
ið að ná á alla fleti lærisins. Best
er að leyfa lærinu að marinerast í
nokkrar klukkustundir eða yfir nótt.
Setjið lærið í ofninn. Mér finnst
best að hægelda það við 120 gráðu
hita í um 3-4 klukkustundir en það
miðast við 2,5 kílóa læri.
Þegar um 30 mínútur eru eftir af
steikingartímanum er gott að taka
lærið út og setja nokkrar smjör-
klípur yfir það og svo aftur inn í ofn,
þetta gerir yfirborðið stökkt og gott.
Leyfið lærinu að standa aðeins
eða í um 15-20 mínútur þegar það
er tilbúið áður en það er skorið og
borið fram.
Fallegt að setja smá ferskt timían,
bláber eða tómata til skreytingar
og svo bragðast það einnig vel
með lærinu.
Heimagert rauðkál og kartöflugratín
Heimagert rauðkál
½ rauðkálshaus
3 msk. sykur
50 g smjör
1 tsk. salt
Smá rauðvín, ca. 1 msk. (val)
Byrjið á að saxa rauðkálshaus
gróflega og steikið hann upp úr
smjörinu.
Bætið svo salti og sykri við og
hrærið í blöndunni þar til sykurinn
leysist upp.
Leyfið að malla við vægan hita í
um 30-40 mínútur og lengur ef tími
gefst, það verður bara betra.
Kartöflugratín
400-500 g kartöflur
Salt og pipar
150 g rjómi
3 msk. smjör
10 stk. ferskir sveppir (meðal-
stórir)
2 hvítlauksrif
Rifinn ostur
Season All-krydd
Byrjið á að skera sveppina niður í
þunnar sneiðar og steikið á pönnu,
raspið niður hvítlauksgeirana og
blandið saman við. Látið malla sam-
an á pönnunni í nokkrar mínútur.
Skerið kartöflur í sneiðar og raðið í
eldfast mót, saltið og piprið vel.
Hellið rjómanum yfir sveppina á
pönnunni og leyfið að blandast
saman áður en rjómablöndunni er
hellt yfir kartöflurnar og hrært vel í.
Stráið rifnum osti yfir og að lokum
er smá Season All-kryddi stráð yfir,
kartöflurnar settar inn í ofn og bak-
aðar í um 35 mínútur við 180 gráður.
Una í eldhúsinu
Sunnudagssteikin er hefð sem
margir muna eftir. Þá var borðið
dekkað í hádeginu á sunnu-
dögum og besti matur vikunnar
borinn á borð. Oft hægeldað
lambalæri með sultu, rauðkáli og
tilheyrandi kræsingum.
MYNDIR/AÐSENDAR
30 MATUR 2. OKTÓBER 2020 DV