Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Qupperneq 30
Lambalæri fyrir helgina 2-3 msk. ferskt timían 2 stk. skarlottulaukur 3 msk. ólífuolía Sjávarsalt og pipar Byrjið á því að snyrta lambalærið og setja það í góðan pott sem má fara í ofn. Útbúið marineringuna, setjið ólífu- olíuna í skál, saxið niður ferskt timían og raspið niður skarlottu- lauk með rifjárni. Blandið öllu saman ásamt því að salta og pipra blönduna. Smyrjið blöndunni á lærið og pass- ið að ná á alla fleti lærisins. Best er að leyfa lærinu að marinerast í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt. Setjið lærið í ofninn. Mér finnst best að hægelda það við 120 gráðu hita í um 3-4 klukkustundir en það miðast við 2,5 kílóa læri. Þegar um 30 mínútur eru eftir af steikingartímanum er gott að taka lærið út og setja nokkrar smjör- klípur yfir það og svo aftur inn í ofn, þetta gerir yfirborðið stökkt og gott. Leyfið lærinu að standa aðeins eða í um 15-20 mínútur þegar það er tilbúið áður en það er skorið og borið fram. Fallegt að setja smá ferskt timían, bláber eða tómata til skreytingar og svo bragðast það einnig vel með lærinu. Heimagert rauðkál og kartöflugratín Heimagert rauðkál ½ rauðkálshaus 3 msk. sykur 50 g smjör 1 tsk. salt Smá rauðvín, ca. 1 msk. (val) Byrjið á að saxa rauðkálshaus gróflega og steikið hann upp úr smjörinu. Bætið svo salti og sykri við og hrærið í blöndunni þar til sykurinn leysist upp. Leyfið að malla við vægan hita í um 30-40 mínútur og lengur ef tími gefst, það verður bara betra. Kartöflugratín 400-500 g kartöflur Salt og pipar 150 g rjómi 3 msk. smjör 10 stk. ferskir sveppir (meðal- stórir) 2 hvítlauksrif Rifinn ostur Season All-krydd Byrjið á að skera sveppina niður í þunnar sneiðar og steikið á pönnu, raspið niður hvítlauksgeirana og blandið saman við. Látið malla sam- an á pönnunni í nokkrar mínútur. Skerið kartöflur í sneiðar og raðið í eldfast mót, saltið og piprið vel. Hellið rjómanum yfir sveppina á pönnunni og leyfið að blandast saman áður en rjómablöndunni er hellt yfir kartöflurnar og hrært vel í. Stráið rifnum osti yfir og að lokum er smá Season All-kryddi stráð yfir, kartöflurnar settar inn í ofn og bak- aðar í um 35 mínútur við 180 gráður. Una í eldhúsinu Sunnudagssteikin er hefð sem margir muna eftir. Þá var borðið dekkað í hádeginu á sunnu- dögum og besti matur vikunnar borinn á borð. Oft hægeldað lambalæri með sultu, rauðkáli og tilheyrandi kræsingum. MYNDIR/AÐSENDAR 30 MATUR 2. OKTÓBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.