Austri - 21.12.1995, Síða 9
Jólin 1995.
AUSTRI
9
✓
Bókakynning: Ur bók Guðjóns Sveinssonar
Daníel
- Ertu þarna, kvölin. Þú ert svei mér fínn, sagði
amma, gekk til hans og rak í hann nefið, óskaði honum
gleðilegra jóla. - En vertu ekki fyrir. Ég er að ljúka við
sósuna. Svo förum við að borða. Þú gætir lagt hnífa-
pörin á borðið. Það kanntu.
Frændi kom von bráðar innan úr kompu, klæddur
ljósblárri skyrtu og dökkum buxum, nýrakaður með ör-
lítið pappírssnifsi á öðru kjálkabarðinu, hafði rispað sig
við raksturinn. Hann bauð gleðileg jól og tók sér sæti
við borðið. Maturinn, ilmandi rjúpnasteik, var tilbúinn.
Frændi hafði skotist nokkrum sinnum á rjúpnaveiðar
meðan Daníel var í skólanum.
Daníel Bjarnason settist sæmilega
sáttur við hlutskipti sitt. Jólasálmar
ómuðu úr útvarpinu og fluttu boð-
skap kristinna manna inn í litla eld-
húsið í Valdabæ.
„Fæddi hún þá son sinn frumget-
inn, vafði hann reifum og lagði
hann í jötu, af því að það var eigi
rúm fyrir þau í gistihúsinu".
Notaleg ró ríkti meðan presturinn
sagði hina ævafornu sögu er gerðist
á Betlehemsvöllum, þegar litla jóla-
barnið, frelsari manna, leit fyrst
dagsins ljós og dýrð drottins umvafði það, þetta ein-
staka bam, sem átti eftir að marka óafmáanleg spor á
spjöld sögunnar. Og þó rödd prestsins væri lítið eitt
hrjúf, fann Daníel helgi jólanna smjúga inn í sálina.
- Alltaf mælist honum vel, blessuðum, sagði amma.
Daníel beið spenntur eftir að geta farið að opna jóla-
pakkana. Hvað fengi hann að heiman? Frá ömmu og
frænda? Áður en það gerðist, leyfði amma honum að
kveikja á kertunum. Hafði ekki viljað láta kveikja á
þeim fyrr en borðhaldi var lokið. Hún ætlaði að fylgjast
sem best með trénu.
Hin langþráða stund rann upp. Daníel fékk það hlut-
verk að lesa á pakkana.
- Hvað annað, skólagenginn maðurinn, sagði frændi.
Daníel fékk tvo pakka að heiman. Annar var frá
mömmu, Jóa Bogga og Bjarneyju litlu Karítas. Það
voru nýjar síðbuxur, brjóstsykur og bók er hét Sigríður
Eyjafjarðarsól. Hinn pakkinn frá Kidda, Begga og Jóa.
Hann geyrndi súkkulaðiplötu og bók sem nefndist Gosi,
saga af spýtustrák er varð lifandi. I pakkanum leyndist
líka myndin sem Jói tók af Valdabæjarfólkinu um sum-
arið. Daníel horfði lengi á hana. Líkast galdri að sjá
sjálfan sig nákvæmlega eins og maður var. Myndi
þannig geymast alla eilífð, hvert sem maður færi og eft-
ir að maður dæi eins og litla stúlkan með heimalning-
inn. Var hann virkilega svona hallærislegur? Með kýr-
lappir. Amma virkaði minni en honum fannst. Virtist lít-
ið stærri en hann. Stóð sennilega lægra, alvarleg að
vanda og minnti á Gandhi, mann er klæddist undarleg-
um klæðum og var frægur fyrir að svelta sig. Frændi
gnæfði yfir þau, líkur sjálfum sér, alvarlegur og stór-
eygur.
- Þetta er ekki slorlegt, sagði amma. Átti ekki við
myndina, vildi ekki sjá hana, talaði um að það ætti að
banna þessar ólukkans myndavélar, heldur buxurnar.
Fór um þær höndum. Konan, tengdadóttirin Vilborg,
hafði drepið á í bréfi, að hún væri að sauma buxur á
Daníel upp úr klæðisfrakka er séra Þórður hafði fært
henni. - Já, bara rétt sem úr búð. Hún getur saumað,
konan, hún móðir þín. Það verður að segjast.
Frændi kveikti í vindli til hátíðabrigða. Daníel fannst
vindlalykt góð, eins konar jólalykt. Pabbi hafði alltaf
reykt vindla á jólunum.
Fjórir pakkar voru enn eftir við tréð. Þar með pakk-
amir sem Daníel ætlaði að gefa frænda og ömmu. Hann
herti upp hugann og rétti ömmu
hennar pakka.
- Þessi er til þín, amma.
- Til mín! Hver er að gefa mér?
Gamla konan tók við pakkanum
og hagræddi gleraugunum á nefinu.
- Ég, sagði drengurinn lágt.
- Nú dámar mér! Ekki áttu að
vera að gefa mér.
- Jú, jú. Opnaðu hann.
Svo snéri hann sér að frænda
með hinn pakkann, en frændi var
horfinn hljóðlaust.
- Hann kemur. Hefur þurft að erinda eitthvað. Opn-
aðu hina pakkana á meðan, sagði amma og losaði jóla-
pappírinn utan af gjöfinni frá Daníel.
Daníel beið eftirvæntingarfullur eftir viðbrögðum
ömmu.
- Þetta var fallega hugsað, drengur minn, að gefa
ömmu þetta líka fíniríið, sagði Karítas við sonarsoninn
og breiddi jólalöberinn á sænginni. Röddin brostin.
Drengurinn virti fyrir sér þessa konu, er hann sótti til
að hluta tilvist sína. Virkaði öðruvísi en venjulega, þar
sem hún laut yfir löberinn, hafði eins og skroppið sam-
an.
- Ertu lasin, amma, spurði
drengurinn og vottaði fyrir
kvíða í röddinni.
Nei, nei. Gamla konan
bandaði hendi og sagðist
vera með árans brjóstsviða
og hvarf fram.
- Taktu upp síðustu pakk-
ana meðan ég fæ mér vatns-
sopa.
Daníel tók upp annan og
las: „Til Daníels Bjarnason-
ar frá Margréti í Nesi.“
Margréti í Nesi! Já, það
stóð þama. Fór ekkert á milli
mála. Daníel svipti pappírnum af. Við blasti bók. Hún
hét Kári litli í skólanum. Daníel rak upp lágt gleðióp og
fletti bókinni.
Amma gekk inn.
- Amma, sjáðu, sjáðu! Þetta er framhald af Kára litla
og Lappa. Daníel var yfir sig hrifinn eins og hann hefði
rekist á gamla vini.
- Já, hún Margrét sendi hann Harald með þetta í gær
og bað að skila að ég ætti að stinga þessu að þér. Hún er
bamgóð hún Margrét. Það er víst. Karítas brá vasaklút
upp að vitunum og snýtti sér. - Sagði þetta kannski ekki
beinlínis jólagjöf. Mér fannst það. Setti þess vegna jóla-
pappír utan um og klóraði á miða. Annars skipta um-
búðir ekki máli, heldur hugurinn er býr að baki, dreng-
ur minn, að gleðja aðra. Það vegur þyngst. Og segir
ekki Bólu-Hjálmar: „Guð á margan gimstein þann, /
sem glóir í mannsorpinu?“ Það vissi Daníel ekki, þekkti
engan Bólu-Hjálmar. Fann aftur á móti að amma var að
komast í sitt eðlilega form. Brjóstsviðinn sjálfsagt horf-
inn.
Einn pakki eftir. Hann var frá ömmu, innihélt spil og
fagurlega prjónaða vettlinga. Á spilunum voru myndir
af fornmönnum, svo sem Gretti, Gunnari á Hlíðarenda
og Helgu fögru. Hjarta Daníels fylltist þakklæti. Hafði
lengi látið sig dreyma um að eignast þessi fallegu spil.
Hann fann einnig að amma hafði lagt sál sína í vettling-
ana, hafði tæpast séð svo fallegt prjónles. Vafalaust
fengist við það meðan hann var í skólanum.
- Vertu ekki að þakka þetta lítilræði, sagði amma þeg-
ar drengurinn lagði handleggina um háls hennar og rak
henni rembingskoss á hrukkótta vangana. Settist á rúm-
ið og snéri sér til veggjar. Ovön kossaflensi og gjafa-
stússi. Það hafði nánast farið framhjá henni, kartnagla-
konunni. Ó, já, farið framhjá, en snertu nú einhverja
þætti svo tók í.
Áskrift að Austra kostar
einungis 500 krónur m/vsk. á
mánuði
5% afsláttur ef greitt er með korti.
Nýir áskrifendur fá fyrsta mánuðinn t’ríann
Áskriftarstmi 471-1984
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin
á árinu.
fl
LYNGÁS 12 - 700 EGILSSTAÐIR - SÍMI 471-2347
HEIMASÍMI 471-2191 - FARSÍMI 854-0665
KT.: 220766-4709 - VSK.NR.: 29023
|-- ------------------------- ------------
Svczdissíqifs tofa máCtfna fattaðra
á jAmsturCancCi
sendir fLustfirðingum ojj
ftéraðsbúum bestujóCa- og
nýársCpeðjur og þakjjar
samstarf op samsCjpti á
árinu sem er að Cíða.
1__________________________
Bestu þakkir fyrir góðar gjafír,
TfL hlýhug og vel unnin störf.
(jCeðiCegjóC og
gczfurííft CgmancCi ár.
Sencíum starfsfóíkj og mðskjptawntm
Sestu jóta- ojj nýársóskjr.
fMeð fökkjyrir
viðskjptin á fiðnu ári.
MIÐÁS
Innréttingar Egilsstöðum
Sendum starfsfólki og viðskiptavinum
bestu jóla- og nýársóskir
Með þökk fyrir viðskiptin á liðnu ári.
FELLABÆ
Búðin
701 Egilsstööum
Sfmi 471-1700 & 471-1329
L
J