Austri


Austri - 21.12.1995, Page 15

Austri - 21.12.1995, Page 15
Jólin 1995. AUSTRI 15 BÆTT HEILSA og betra líf Umsjón: Sigurborg Kr. Hannesdóttir, sími 471-2143 Þakklæti á jólum Flestir kannast sjálfsagt við jóla- lagið fallega „Gleði- og friðarjól“. Við íslendingar reiknum áreiðan- lega öll með því að jólin okkar í ár verði friðarjól. Að ekki verði nein átök eða götubardagar. Að enginn þurfi að óttast um líf sitt af þeim sökum á þessum tíma sem er okk- ur svo heilagur. En þetta er ekki sjálfsagt, þvf svo margar þjóðir heims búa við stríðsátök. Fólk eins og þú og ég óttast um líf sitt og sinna nánustu og opnar augun hvern morgun í óvissu um hvort það muni enn draga lífsanda að kvöldi. Um leið og við hugsum til þessara meðbræðra okkar, skulum við leyfa okkur að vera þakklát fyrir að búa við frið. Við gleymum svo oft að vera þakklát. A hverjum degi er svo ótal margt sem við höfum ástæðu til að þakka fyrir. Við getum þakk- að fyrir það að fá að opna augun að morgni, þakkað fyrir að fá að vera með okkar nánustu, þakkað fyrir allt það góða í líftnu okkar og þakkað allt bæði smátt og stórt. Ef þú einsetur þér að ganga í gegnum heilan dag í þakklæti, þá finnur þú muninn á líðan þinni að kvöldi. Við lifum í heimi þar sem svo margt riðar til falls. Atök milli þjóða, slæm umgengni okkar við náttúruna og misskipting efnis- legra gæða. Allt er þetta til marks um að það getur ekki allt verið eins og það á að vera. Eitthvað þarf að laga. Við, sem búum hinn vestræna heim höfum lifað þannig að við þurfum alltaf að fá meira og meira. Græðgin hefur verið okkar leiðar- ljós. En núna er engu líkara en við séum að byrja að átta okkur á, að við verðum ekki endilega ham- ingjusamari þó við fáum meira. Og það er einmitt þess vegna sem þessi heimur á von. Jólin eru dæmi um hátíð sem lengi vel hefur orðið græðginni að bráð. Jólagjafir hafa orðið stöðugt stærri, auglýsingarnar fleiri, matur- inn meiri og dýrari og meiru eytt í jólahald sem skilar ekki endilega meiri jólagleði í sama hlutfalli. Kannski er þetta líka aðeins að breytast. En raunveruleg breyting verður ekki fyrr en við verðum þakklát fyrir það sem við höfum, í stað þess að vilja stöðugt meira. Þess vegna er svo tilvalið að nota jólatímann til að rækta með sér þakklæti. Og mundu að þakka fyr- ir alla litlu hlutina, það eru þeir sem skipta svo miklu þegar upp er staðið. Eða hver er ljúfasta jóla- endurminningin? Hvort snýst hún um jólin þegar þú fékkst stóru dýru jólagjöfina sem þig langaði svo í, eða tilfinningarnar sem vakna þeg- ar þú finnur lyktina af hangikjötinu í pottinum og manst eftirvænting- una frá bemskujólum? Jólin eru oft kölluð hátíð barn- anna. Það þýðir ekki endilega að öllum þeim sem komnir eru yfir fermingaraldur beri að slökkva á jólagleðinni. Síður en svo. Það er nefnilega bam í okkur öllum. Barn sem við leyfum svo alltof sjaldan að njóta sín í okkar daglega amstri. Vekjum barnið innra með okkur um jólin og leiðum það okkur við hönd inn í jólaljósin og jólagleð- ina. Og umfram allt verum þakk- lát. GLEÐILEG JÓL Heimsins besta kjöt Saga þessi gerðist sumarið 1995, þá dvaldi Steinarr Magnússon við söngnám í Vínarborg ásamt konu sinni Önnu Sólveigu Arnadóttur og t veim börnum þeirra Rósu Sól- veigu og Magnúsi Ivari. Eins og gefur að skilja fengu þau heim- sóknir heiman frá Islandi. Þar á meðal var Sigríður Eymundsdóttir móðir Steinarrs. Eins og mæðrum er líkt, tók hún eitt og annað með sér, einkum eitthvað matarkyns, þar á meðal tvö væn frosin lamba- læri. Eitthvað átti Sigríður bágt í fríhöfninni þegar út kont, kunni ekki á kerf- ið og hafði ekki við hendina þarlenda smámynt. En einmitt þar sem hún stendur yfir farang- urshrúgunni víkur sér að henni er- lendur mað- ur, einn af farþegunum úr flugvél- inni og spyr: „Vantar þig ekki vagn undir farangurinn?" Lét ekki sitja við orðin tóm heldur fór og sótti vagn og hvarf síðan. Því er víst þannig farið að þegar fólk sækir vagn þá verður að láta pening detta í kassa svo vagn- inn losni úr stæðinu og svo þegar honum er skilað aftur skilar pen- ingurinn sér aftur. En Sissa, eins og hún er alltaf kölluð, sá vel- gjörðarmann sinn ekki meir og komst með allan sinn far- angur þangað sem Steinarr beið. Stefán Bjarnasson Isinn borðaður með bestu lyst. ALVEG MEIRIHATTAR fL' t’l I A u s t m a t Austmat Reyðarfirði Kjötvinnsla - Heildsala - Vörudreifing. Sissa dvaldi hjá ungu fjölskyld- unni í tvær vikur í góðu yfirlæti. Annað kjötlærið matreiddi Anna Sólveig meðan Sissa var hjá þeim og buðu þau söngkennaranum í mat. Bar ekki á öðru en honum felli maturinn mjög vel. Tíminn leið fljótt og Sissa hélt aftur af stað heim til Reykjavíkur. Víkur nú sögunni til hjónanna Jóns Gunnarssonar og Eyglóar Magnúsdóttur búsett í Reykjavík, sem dvöldu um tíma í Kaupmanna- höfn með börn sín Þorbjörgu og Gunnar. Hjónin eru bæði sér- menntuð, Eygló hjúkrunarfræðing- ur og Jón sjúkraliði og unnu bæði á sjúkrastofnun. En víkjum nú örlítið að náms- ferli Jóns sem nam leiklist og réð- ist til starfa hjá Þjóðleikhúsinu og skilaði með sóma mörgum hlut- verk um á sviði. Svo var ráðinn nýr þjóðleikhússtjóri, Stefán Baldurs- son, sem hóf störf með því að segja upp hópi leikara og starfsfólki, þar á meðal Jóni. Stóð hann nú á tíma- mótum og varð að finna sér annað starf. En þá birtist honum í draumi að best mundi fara á því að hann lærði hjúkrun og lauk hann því námi um síðustu áramót. Og starfar nú sem sjúkraliði eins og áður er getið. Þegar störfum þeirra hjóna lauk á sjúkrahúsum í Kaupmannahöfn, tóku þau saman farangur sinn og koinu honum fyrir í bílnum og lögðu síðan af stað með börnin sem leið liggur til Vínarborgar, höfuðborgar Austur- ríkis. Þar heimsóttu þau Steinarr Magnús- son og fjölskyldu. Þess skal getið að Steinarr er bróðir Eyglóar. Dvöldu þau þar í viku og bar margt skemmtilegt til tíðinda. Svo hagaði til þarna í ná- grenninu að ítölsk hjón koma á vorin og setja upp ísbúð, að einhverju leyti utan húss. Þeg- ar haustar taka þau allt saman aftur og halda heim til Ítalíu. í íbúðinni á næstu hæð fyrir ofan þau Stein- arr búa miðaldra hjón og eins og gefur að skilja hafa þar orðið gagn- kvæm kynni. Einn daginn skeður það, á meðan Jón og fjölskylda dvöldu hjá þeim, að maðurinn af efri hæðinni kemur niður og býður Steinarri og fjölskyldu að koma í ísbúðina og þiggja ís í boði þeirra. Steinarr varð hálf vandræðalegur, þakkað boðið en sagðist vera með gesti. Hann svaraði að bragði: „Þið takið þá bara með ykkur.“ Og út í ísbúðina marseraði tíu manna hóp- ur. ísinn var víst ekkert smáræði, borinn var fram í stórum skálum og kryddaður með allskonar góð- gæti. Setið var lengi að spjalli. Tveim dögum síðar buðu þau Steinarr og Anna Sólveig hjónun- um af efri hæðinni í mat. Þar var steikt íslenskt lambalæri með leggnum í og viðeigandi meðlæti. Maðurinn af loftinu dáðist mikið að hvað kjötið var gott og sagðist vera búinn að vera í flestum heims- álfum, þar á meðal á Nýja-Sjálandi og borðað þeirra lambakjöt, sem sér fyndist bara vont. Hann kvaðst aldrei á ævinni hafa borðað svona gott kjöt og sagði þetta heimsins besta kjöt. Það var lengi borðað og maðurinn búinn að ná í lærlegginn, narta utan af honum kjötið og að síðustu sleikti hann legginn. Já, svona fannst Austurríkismanninum íslenska lambakjötið gott. Stefán Bjarnason, Flögu

x

Austri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.