Austri


Austri - 21.12.1995, Qupperneq 29

Austri - 21.12.1995, Qupperneq 29
Jólin 1995. AUSTRI 29 Ásmundur Helgason frá Bjargi: Jónas á Svínaskála Jónas á Svínaskála við Reyðar- fjörð var mikið umtalaður maður um Austurland og víðar frá því um miðja síðastliðna öld fram undir aldamót. Jónas var fæddur 1. ágúst 1836 á Karlsskála við Reyðarijörð. Foreldr- ar hans voru Símon Arnason frá Keldhólum á Völlum og Kristín Jónasdóttir, bónda í Grófargerði, Péturssonar, hreppstjóra í Sauðhaga. Þegar Jónas var á fyrsta ári, fluttu foreldrar hans að Svínaskála, þar sem hann dvaldist alla ævi síðan. Hann kvæntist 12.júní 1862 Guð- björgu Jónsdóttur bónda í Eskifirði. Þau eignuðust 18 börn og náðu 11 þeirra fullorðinsaldri. Svínaskáli er frá náttúrunnar hendi hrjóstrug harðbalajörð, og var að sögn, þegar Jónas tók þar við búsforráðum, í niðurlægingarástandi. Jónas sá, að við svo búið mátti ekki standa. Hann tók til óspilltra málanna við að slétta túnið, taka burt stórgrýti úr melamóunum út frá túnkraganum og jafna yfir jarðarsvörðinn um leið, grafa ræsi, þar sem það átti við, og loka svo yfir þau, að þar yrði tún. Jónas fylgdist vel með öllum framförum í jarðrækt sem öðru og var óragur að breyta aldagömlum búnaðarháttum. Hann var sá fyrsti af bændum við Reyðarfjörð, sem tók lærðan búfræðing í þjónustu sína við túnasléttur og aðra jarð- vinnslu, enda var hann sá fyrsti eða með þeim fyrstu bændum á Austur- landi, sem hlaut verðlaun fyrir jarðabætur. Honum tókst að fimm- falda töðufeng af Svínaskálatúni meðan hann bjó. Þá húsaði Jónas bæ sinn svo vel, að á þeim árum voru ekki margir bæir betur upp- byggðir og engum haganlegar fyrir komið. Meðan heyhlöður voru byggðar með timburþaki, þóttu þökin fúna skjótt af hitagufu úr heyinu, en hún varð að vatni á trénu. Til að byggja fyrir fúann, lét Jónas tjarga allan efniviðinn á bæði borð, úr koltjöru og þorna áður en reist var. Þetta dugði svo vel, að ekki sá fúablett í neinni borðbrún eftir tugi ára. Þá var Jónas ekki síður athafnamaður við sjóinn, enda varð hann að byggja efnahagsafkomu heimilis síns mest á sjávarafurðum. Svínaskáli er þannig í sveit settur, að ekki voru tiltök að stunda sjó þaðan á árabát fyrr en þá síðara hluta sumars, ef fiskur var genginn í fjörðinn. Jónas var þá til vers með menn sína, fyrst í Seley, síðan á Vattarnestanga. Hann sótti fast sjóinn, svo að ekki þótti heiglum hent að vera með honum, en honum hlekktist aldrei á í sjó- ferðum sínum og hann var alltaf með allra hæstu fiskimönnum í þann tíð, hvaða fisktegund, sem hann stundaði fyrir. Varð honum því oftast gott til mannvals með sér, þar var góð hlutarvon, en sjómenn aðrir en árshjú höfðu í þann tíð hlut af fiski, en ekki kaup. Jónas byrjaði fyrstur manna að hafa gagnvaði (hákarlavaði) með fjórum sóknum eða krókum. en áður voru þeir aðeins „tvísóknaðir". Allur sá útbúnaður á þeim, þ.e.a.s. „millitré“, er fundinn upp af Jónasi. Þessir fjórsóknuðu gagnvaðir reynd- ust strax aflasælli og útrýmdu því fljótlega þeim tvísóknuðu. Þá stundaði Jónas síldveiði með netum á haustin og fram eftir vetri, þegar síld var. Þótti það köld vinna að taka síld úr netum, ef norðan gola var með frosti, en það lét Jónas lítt á sig fá við starf sitt. Allar út- gerðir hans voru vel og veiðilega út- settar, enda var hann með afbrigð- um hagsýnn við hvaða verk sem var. Hann var þjóðhagasmiður bæði á tré og jám. Jónas smíðaði marga báta og breytti þeim frá hinu gamla, lotu- langa skutalagi og hafði stefnin meira hringuð fyrir. Þótti það betra fyrir siglingar. Um tvítugsaldur var Jónas nokk- ur sumur smiður á amerísku hval- veiðaskipi, sem stundaði veiðar út af Austfjörðum. Líkaði Ameríku- mönnum svo vel við hann, að þeir vildu fá hann með sér vestur um haf. En þó boðið væri gott, vildi Jónas ekki taka því. Hann var ein- birni og vildi ekki fara frá foreldr- um sínum. Líka var haft eftir hon- um, að hann kysi helst að vinna ætt- jörð sinni það gagn, sem hann gæti, meðan hann lifði. Það sem kom nafni Jónasar fyrst út um land, var án efa vélaútbúnað- ur, sem hann fann upp og lét ganga fyrir vatnsafli. Vélasamstæður þess- ar gengu fyrir einum vatnskarli (mylluhjóli) en voru settar í sam- band með tannhjólum, sem gripu hvert annað, er slegin voru að og frá, eftir því sem nauðsyn krafði í það og það sinnið. Fimrn voru þau verkfæri, sem mylluhjólið knúði. Þau gátu starfað öll í einu og líka eitt eða lleiri eftir því sem nauðsyn krafði í það og það sinnið. Verkfær- in voru þessi: Tvær kornmölunar- kvarnir, sem sagt var, að hefðu get- að malað 10 til 12 tunnur af rúgi á sólarhring, hjólsög, sem sagt var, að hefði getað flett sex álna löngu borði og 6-8 þumlunga breiðu á fimm mínútum, fjórða var hverfi- steinn, en það fimmta rennibekkur. Á þeim árum fluttist allt korn til landsins ómalað. Pétur Hafstein amtmaður hafði sagnir af þessari vélasamstæðu Jónasar og sendi mann til að skoða hana og gefa skýrslu um smíði hennar og allan útbúnaðinn. Skýrsla sú kom svo út í Norðra eða Norðanfara. I viður- kenningu fyrir þennan útbúnað sinn voru honum greiddar 200 ríkisdalir. Jónas var mjög bókhneigður mað- ur og átti gott safn af fræðibókum, en sagt var að lítið hafi hann gert að því að Iesa „eldhúsrómana“ . Hann las dönsku sem móðurmál sitt og ensku allvel. Hann átti og drýgstan þátt í því að stofnað var lestrarbókasafn á Eski- firði, sem að dómi kunnugra manna var það besta á Austurlandi í þá daga, þar sem saman komnar voru allar bestu bækurnar, sem Island á. En nokkrir menn, sem litu öðrum augum á þetta en Jónas, gátu komið því til leiðar, að bókasafn þetta var leyst upp og selt nokkrum árum eft- ir fráfall Jónasar. Þá tók Jónas virkan þátt í að koma upp myndarlegu barnaskóla- húsi á Eskifirði, eftir því sem þá tíðkaðist, með tveim kennslustofum. Svo var lestrarbókasafninu komið fyrir í öðrum enda þess á neðri hæð. Jónas var afkastamikill og óskipt- ur að hverju sem hann gekk, hataði alla hálfvelgju og undirhyggju. Hann var ósérhlífinn í verki og eins í fjármálum. Þegar hann vildi koma áhugamálum sínum fram, mátti með sanni segja um hann eins og Egill Skallagrímsson sagði um Arinbjörn hersi: „Hinns fégrimmr, es í Fjörð- um býr.“ Aldrei mun Jónas hafa þótt sýna meiri dugnað og ósérplægni en 1884, þegar byggja átti frfkirkjuna. Þá vildu timbursölukaupmenn á Austfjörðum ekki selja söfnuðinum efni í kirkjuna. Tók hann sér þá far til Noregs með síldarflutningaskipi og fékk kirkjuna smíðaða þar. Enda þótti hann sókndjarfur í því máli frá fyrstu byrjun þess. Hann byrjaði á sveitaverslun 1885, en það fyrirtæki heppnaðist ekki, enda var við ramman reip að draga, þar sem verslunin á Austfjörðum átti hlut að máli á þeim árum. Kaupmenn á Eskifirði fengust þá ekki svo mikið um það, þó að menn skulduðu þeim nokkra tugi króna, en þá hina sömu menn töldu þeir sér undirgefna, enda dirfðust þeir ekki að skipta við aðra en þann, sem átti skuldarreikning hjá þeim. Að öðrum kosti greiða hvern eyri, áður en skipt var um viðskiptamann. Líka mun það hafa viljað loða við, þegar kjósa átti menn í einhverja stöðu, að þá töldu kaupmenn sig sjálfsagða til að leiðbeina þeim, sem þeir áttu ein- hverjar krónur hjá, við valið á manni eða mönnum í stöðuna. Það var því varla von á, að efna- litlum bónda heppnaðist að koma á verslunarviðskiptum, sem væru til bóta, í því umhverfi. En þó varð þessi viðleitni Jónasar því valdandi, að fleiri og fleiri vöknuðu til alvar- legrar umhugsunar fyrir bættri verslun, svo ekki liðu mörg ár frá því Jónas varð að hætta við verslun sína, þar til Pöntunarfélag var stofn- að á Eskifirði fyrir allan Reyðar- fjörð . Jónas fékkst allmikið við smá- skammtalækningar á efri árum sín- um, og þótti honum heppnast það vel. Líka þótti honum takast vel við allar ígerðir, sem svo oft er illur vættur í holdi sjómanna. Sjómenn hans sögðu, að hann hefði jafnan haft með sér í ver þau sóttvarnar- meðul, er þá voru þekkt hér. Á þessum árum hafði Jónas á hendi um langt skeið stjórn hrepps- mála. Lagði hann meðal annars kapp á að gera vegi sem besta um hreppinn. Taldi hann greiðar sam- göngur um sveitina eitt af því allra nauðsynlegasta fyrir afkomu fjöld- ans. Allar vegagerðir, sem hann sá um, lét hann gera þannig, að grafið væri frárennsli, svo að vatn gæti ekki komist á veginn, enda entust allir vegir, sem hann sagði fyrir um gerð á, bæði vel og lengi. Jónas þótti nokkuð einþykkur í ýmsum málum og var því af sumum samtíðarmönnum sínum talinn sér- vitur. Hann var misskilinn af fjölda manns, en það kom til af því hvað hann var langt á undan meirihluta samtíðarmanna sinna. Þessi dugnað- ar og hugvitsmaður lést 7.apríl 1891, tæpra 55 ára að aldri, þá þrot- inn að heilsu. Var sannarlega sjón- arsviptir að honum í heimbyggð hans, því að fáum mönnum var hann líkur að framtaki og vitsmun- um. Sendum viðskiptavinum okkar og öðrum Austfirðingum bestu óskir um gleðileg jól og farsœld á komandi ári. Þökkum viðskipti liðins árs. Nesprent Neskaupstað

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.