Austri - 21.12.1995, Page 31
Jólin 1995.
AUSTRI
31
Kuldaleg gisting
Frásögnin sem hér fer á eftir er skráð af Pálma Hannessyni, rektor
og birtist hún í bókinni Mannraunir, sem gefín var út í minningu hans
árið 1959. Þátturinn greinir frá kaupstaðarferð sem Jóhann Helgason
fór frá Hjarðarhaga á Jökuldal til Vopnafjarðar fyrir rúmum 70 árum,
en þá var hann vinnumaður hjá Þorvaldi Hjarðar. Jóhann Helgason
kvæntist síðar Bergrúnu Arnadóttur og voru þau lengst af b úsett á
Osi á Borgarfirði- eystra. Þau hjón eignuðust 14 börn og eiga fjölda
afkomenda um land ailt. Jóhann andaðist 10. febrúar 1972.
Jóhann er maður nefndur. Hann
er Helgason, bóndi í Njarðvík
eystra, Jónssonar, Sigurðssonar,
fræðimanns þar. Jóhann er fæddur í
Njarðvík 29.desember 1891 og al-
inn þar upp síðan til fullorðinsára.
Vorið 1920 réðst hann vinnumaður
til Þorvalds Benediktssonar, bónda
að Hjarðarhaga á Jökuldal, og var
hjá honum næsta ár. Nú er þess að
geta, að Jökuldalur liggur mjög til
vesturs, allt upp um Skjöldólfsstaði.
Norðan við dalinn verða heiðalönd
mikil og heita ýmsum nöfnum eft-
ir bæjum. Hallar þeim öllum upp að
Smjörvatnsheiði, en hún er hálend-
ishryggur, um 700 m hár, er liggur
suður frá Smjörfjöllum allt til Sand-
fells. Vegur liggur utanvert um
heiðina milli Fossvalla í Jökulsár-
hlíð og Háreksstaða eða Gunn-
laugsstaða í Vopnafirði. Hann er um
45 km langur. Jafnan hefur
Smjörvatnsheiði verið talin erfið
leið og hættuleg á vetur, því að
snjóþungt er þar og illvirðasamt,
enda er umgerð orðin þar lítil hin
síðari ár. Símalínan var lögð yfir
heiðina árið 1906, en hún hélst illa,
einkum austanvert á háheiðinni. Var
þá horfið að því ráði að fjölga
staurum, svo að ekki urðu nema 25
m á milli þeirra, en það dugði eigi
að heldur, og var símalínan flutt út
á Hellisheiði árið 1914. Þó var
fjórði hver staur látinn standa sem
vegvísir. Þegar síminn var lagður,
var sæluhús reist á heiðinni við suð-
urenda Smjörfjalla, en þar eru
vatnaskil. Ymsir þeirra, er gistu í
sæluhúsinu, þótt ust verða varir við
einhverja ókyrrð þar, einkum ef
þeir voru einir.
I þann tíma, er hér segir frá, sóttu
Jökuldælingar flestir verslun á
Vopnafjörð. Fóru þeir ekki alfara-
leið, ofan Jökuldal og upp frá Foss-
völlum, heldur út heiðar, enda er
það miklum mun skemmra. Var oft-
ast haldið upp frá Hofteigi, um
Vegups og Afangabrekkur, en kom-
ið á þjóðveginn skammt frá sælu-
húsinu.
Þorvaldur í Hjarðarhaga hafði
allmikið umleikis og þurfti margt í
kaupstað að sækja. Lét hann Jóhann
Helgason annast lestaferðir bæði
fyrir sig og aðra, og fór hann því oft
til Vopnafjarðar um sumarið og
haustið. Leið svo fram á vetur. Þá
var það einhverju sinni, að Þorvald-
ur kom að máli við Jóhann og bað
hann að fara fyrir sig norður á
Vopnafjörð að sækja baðlyf. Tók
Jóhann því vel og bjóst til ferðar.
Síðan lagði hann af stað árla dags,
og var þá full vika til jóla. Tíðarfar
hafði verið heldur hagstætt um hríð,
og var gangfæri gott. Hélt Jóhann
sem leið liggur út fyrir ofan Hof-
teig, en síðan á fjall upp, og segir
ekki af ferðum hans, fyrr en hann
kom á Vopnafjörð. Þar tók hann
baðlyfin, eins og ætlað var, setti
þau í poka sinn, er hann bar á baki,
og vó þá byrðin urn 70 pund. Ekki
hafði hann öðrum erindum að sinna
í kaupstaðnum, en með því að
skammt var liðið á kvöld, sneri
hann þegar heimleiðis og kom að
Egilsstöðum í Vopnafirði seint á
vöku. Mundi dagleið hans þá vera
orðin allt að 70 km löng. Að Egils-
stöðum bjó Gísli Sigurður Helga-
son, og var Jóhann honum nokkuð
kunnugur, en þó einkum Benedikt,
syni hans, síðar bónda að Hofteigi
og fræðimanni. Gisti Jóhann þar í
góðu yfirlæti. Næsta morgun var
komið á hríðarveður af norðvestri
og útlit ískyggilegt. Taldi Gísli
bóndi ófæru að leggja á fjallið að
svo búnu og vildi láta Jóhann bíða
betra veðurs, en hann var ófús þess
að setjast um kyrrt, og varð það úr,
að hann færi um daginn að Gný-
stöðum, innsta bæ í Sunnudal, svo
að hann ætti skemmra heim að
sækja, þegar úr raknaði um veðrið.
I þann mund, er hann kom þangað,
brast á glórulaus norðanhríð, er
hélst óslitið í næsturn tvo daga, og
varð Jóhann að sitja þar veðurteppt-
ur, hvort sem honum líkaði betur
eða verr. Að morgni þriðja dags var
veður nokkru hægara í byggð. en
hríðarjagandi til fjalla og útlit Ijótt.
Vildi Jóhann nú ekki bíða lengur og
bjóst til ferðar í skyndi. Bóndinn á
Gnýstöðum, Guðjón A. Jónsson,
latti hann mjög fararinnar, en það
kom fyrir ekki, enda leið nú fast að
jólum, og þóttist Jóhann vita, að
heimafólk í Hjarðarhaga tæki að
undrast um sig. Segir bóndi þá, að
hann verði að fara til baka, uns
hann nái símalínunni, og féllst Jó-
hann á þetta. Síðan skiljast þeir, og
heldur Jóhann út og upp
hlíðarbrekkurnar í átt til þjóðvegar-
ins. Þá var klukkan að ganga átta
um morguninn. Ekki hafði hann þó
lengi farið, er stórhríð brast á, finn-
ur þó símalínuna eftir nokkum tíma
og leggur svo á heiðina. Eftir því
sem ofar dró og lengra leið á dag-
inn, fór veðrið versnandi. Þó var
frost eigi hart. Átti Jóhann undan að
sækja fyrst og skilaði því drjúgum
áfram. Þó var hríðin svo svört, að
ekki sá milli staura, og varð hann
því að gæta sín að missa þeirra
ekki. Skömmu eftir hádegi kom
hann að sæluhúsinu, en ekki vildi
hann setjast þar að fyrir neina muni.
Hafði hann orðið þar dagþrota í
lestaferð um haustið og orðið að
gista, en þótt ógott um. Hestana
hafði hann bundið úti undir vegg,
en búist um inni sjálfur með hund
sinn. En er hann ætlaði að taka á sig
náðir, trylltust hestarnir og þó
hundurinn enn meir. Fór Jóhann þá
á kreik og þóttist sjá mann standa í
dyrunum. Sá leystist þó sundur og
hvarf sem í reyk. Nú vildi hann
ekki hætta til að hitta þennan félaga
aftur, er zhann var einn síns liðs í
skammdegishríð. Raunar var hon-
um þegar orðið ljóst, að ekki tæki
hann heim að Hjarðarhaga þann
daginn, en hugðist fylgja veginum
að Fossvöllum.
Um sæluhúsið sveigir
Smjörvatnsheiðarvegur og liggur
þaðan mjög svo í austur allt til
byggða. Er lengi fyrst um mikla
flatneskju að fara á háheiðinni, en
síðan tekur við löng brekka, er
Biskupsbrekka heitir og nær hún
niður undir Laxá. Stauralínan lá yfir
rnestan hluta háheiðarinnar, og
hugðist Jóhann fylgja henni, meðan
hún entist, en síðan Laxá, er ofan
kæmi, að Fossvöllum. Hélt hann nú
áfram för sinni, en eftir skamma
stund óx veðrið enn, svo sem kæm-
ist það í algleyming. Hafði Jóhann
nú vindinn á vinstri hlið og kafað i
snjóinn, því að færðin versnaði
mjög. er austur kom á heiðina. Sá
hann naumast út úr augunum fyrir
hríðarkófi, og gerðist æ erfiðara að
finna staurana. Þótti honum sem
seint mundi sækjast heiðin við slíkt
atlæti, enda þyngdi byrðin eigi sem
minnst. Kom þar að lokum, að hon-
um varð ljóst, að naumast mundi
hann ná Fossvöllum, nema veður
batnaði, en litlar líkur voru til þess.
Verður það nú ráð hans að skilja
eftir byrðina og slá síðan nokkuð
undan veðrinu í þeirri von, að hann
fyndi Hauksstaði eða aðra bæi á
Jökuldal, og þóttist hann öruggur
um stefnu, ef veðurstaða breyttist
ekki. Hitt var honum ljóst, að gjalda
yrði hann varhuga við því að verða
vestan við dalinn, því að þar er
heiðamegin mikið, eins og áður
segir, og væri honum bani búinn, ef
hann villtist þangað. Batt hann nú
bagga sinn við staur, en tók úr hon-
um áður tösku með nesti og smá-
dóti. Heldur hann nú áfram, og ger-
ist ekki fleira í um sinn. Þótti hon-
um nú auðveldara en áður, þar sem
hann var laus við pokann og þurfti
hvorki að keppa eins við vindinn né
leita leiðarmerkja. Þegar liðið var
að jöfnu báðum nóni og miðaftni,
kom hann í þrengsli nokkur eða
sund milli tveggja hæða. Veit hann
þá ekki fyrri til en hann rekst út í
krap og fellur við, svo að hann
blotnar í hendur og fætur. En þegar
hann er upp staðinn, þykist hann
sjá, að hann sé kominn út í upp-
bólginn læk, og hefur það að líkind-
um verið Laxá, neðanvert á Laxár-
dal. Jóhann sér nú, að eigi muni
hann áfram halda um sinn, fyrst
hann sé blautur orðinn, og tekur
það ráð að grafa sig í fönn, leitar nú
fyrir sér að einhverju afdrepi og
finnur loks snjóhengju. Þar rótar
hann til með höndum og fótum og
gerir sér þannig holu inn í hengj-
una. Síðan skríður hann inn í skúta
þennan og lætur fenna að sér.
Göngustaf sínum stakk hann í
skaflinn skammt frá í þá stefnu, er
hann hugði rétta vera til byggða,
svo að gæti áttað sig, ef vindstaða
skyldi breytast, meðan hann væri í
fönninni. Lá hann nú þarna í holu
sinni eða húkti á fjórum fótum og
þótti langt, enda var þar bæði
þröngt og kalt fyrst í stað. Reyndi
hann að iða, eins og honum var
unnt, og söng sem mest hann mátti
til þess að halda á sér hita. Rýmkaði
því heldur um hann og hlýnaði, er
frá leið. Töskuna hafði hann hjá sér
og neytti nokkurs af frosnu kjöti, en
hvort tveggja var, að óhægt var um
að sýsla, enda fann hann lítt til
hungurs. Loks tók hann eftir því, að
dregið hafði mjög úr veðurhljóðinu.
Hélt hann þá, að veður hefði batn-
að, og reis upp. Ekki hafði þó til
betra brugðið, og var enn sótsvört
hríð, en fönnin ofan á honum var
orðin svo þykk, að lítt gat að heyra
hríðardyninn í gegnum hana. Lagð-
ist Jóhann fyrir aftur og sópaði að
sér snjónum, en nú var allt torveld-
ara en áður, því að hann hafði
blotnað og holan fyllst af snjó.
Gekk honum því illa að halda á sér
hita, og gerðist líðanin allt annað en
góð. Ekki sá hann þó ástæðu til
æðru, en söng allt hvað af tók. Leið
svo nóttin. Árla næsta morguns
þótti honum enn sem lægt hefði
nokkuð og fór á kreik. Allt var þó
óbreytt um veðrið og enn dimmt af
nótt. En nú þótti Jóhanni svo kom-
ið, að hann mætti ekki haldast við
lengur í snjónum, enda hafði hann
verið þar um 14 klukkustundir og
lengst af legið á fjórum fótum. Hélt
hann nú af stað, og var færi orðið
léttara en daginn áður, því að fönn-
ina hafði rekið saman í skafla, en
rifið til á milli. Ekki virtist honum
veðurstaða hafa breyst, og heldur
hann nú enn í sömu stefnu. Um há-
degisbil rakst hann á fjárhús og
þekkti, að hann var kominn að beit-
arhúsum frá Hauksstöðum. Þau eru
snertuspöl út frá bænum, gegnt
Giljum. Ekki þótti honurn aðkoman
góð, því að húsin stóðu opin og
skeflt inn í krær. Stóðu sauðir þar
inni í snjónum, en aðrir fenntir úti
undir veggjum. Hafði eigi verið far-
ið á húsin tvo undanfarna daga og
enn ókomið þennan dag. Ekki tafði
Jóhann lengi við húsin, en hélt
heim að Hauksstöðum, og var
honum tekið þar af hinni mestu
alúð. Hríð var enn á og hélst allan
þennan dag. Vildi bóndi því eigi
láta Jóhann fara lengra, en ekki var
við það komandi. Þó tafði hann
góða stund, fékk þurr plögg og mat,
en síðan kaffi. Að því búnu hélt
hann heim að Hjarðarhaga og kom
þangað eftir sex stunda ferð. Eftir
nýárið fór Jóhann að vitja pokans,
og var hann óskemmdur á sínum
stað.
Fyrir nokkrum árum heyrði ég
ávæning af sögu þessari. Síðar
sagði Jóhann mér hana sjálfur, og
fer hún því ekki annarra á milli. Jó-
hann Helgason er meðalmaður á
hæð og þéttvaxinn, sterkur að afli
sem þeir Njarðvíkingar margir og
ekki líklegur til þess að láta sér
smámuni fyrir brjósti brenna. Ekki
varð honum meint af ferð þeirri, er
hér er sagt frá, enda var hann á
besta aldri, 29 ára, er hún var farin.
Hann býr nú að Osi í Borgarfirði
eystra.
Senduni viðsfýiptavinum okfcar og öðrum
SLustfirðingum Sestu jóla- og nýársóskri.
‘Þökfcum viðskiptin á árinu
sem er að ííða.
ÍJ
#
TÍSKUVÖRUR - SNYRTIVÖRUR
Oskum viðskiptavinum
okkar gleðilegra jóla
ogfarsældar á nýju ári með
þökkfyrir viðskiptin
á árinu. 2 a
Endurskoðun hf.
Fagradalsbraut 11
Egilsstöðum
® 471-1112 Fax 471-2201
Hjónin Bergrún Arnadóttir og Jóhann Helgasson