Austri


Austri - 21.12.1995, Page 32

Austri - 21.12.1995, Page 32
32 AUSTRI Jólin 1995. Arndís Þorvaldsdóttir: Einu sinni var Þegar mér verður hugsað til jóla- undirbúnings og jólahalds á bernskudögum, staldrar hugurinn við minningu frá jólaföstu, Eg er sex til sjö ára gömul, stödd út á hlaði á bernskuheimili mínu í ein- um af dölum Borgarfjarðarhéraðs. Það er hreinviðri og snjóföl á jörðu. Við sjóndeildarhring blasa við Hafnarfjall og Skarsheiði, sem fjar- lægðin gefur að jafnaði bláan lit. I dag falda fjöllin hvítu og þau eru undra falleg í bláleitri skammdegis- birtunni. Þegar ég lít upp í hlíðina ofan við bæinn, sé ég að æmar eru að koma heim á húsin. Þær renna í eina slóð og minna á perlur á festi. Nokkrar eru mislitar og þær hvítu virðast blakkar á lagðinn í fann- hvítri mjöll inni. En það er fleira á hreyfingu þar efra. I neðri Dýja- brekkunni greini ég óreglulega þúst. Hún færist hægt nær og nær og stefnir á reykingarkofann sem kúrir ofarlega í túninu. Tilsýndar er þetta að sjá, eins og hrísköstur á gangi, en þegar nær dregur kemur í ljós að undir bagganum gengur aldraður maður. Hann varpar af sér byrðinni við reykingarkofann og þó að hann sé laus við okið stendur hann enn hálfboginn, því bak hans er fyrir löngu kreft, afleiðing veikinda og þrældóms. Hann heitir Jón As- mundsson og svo langt sem ég man hefur hann verið á heimili foreldra minna og er fyrir löngu orðinn einn af föstu punktunum í tilvera þriggja ungra systra. Hann gegnir ýmsum störfum svo sem fjósverkum og lestarkennslu með trúmennsku og alúð að leiðarljósi. Eitt starf er hon- um þó þekkara en önnur, enda um mikið vandaverk að ræða, sem ekki er á allra færi. Hann hefur um árabil haft á sinni könnu að annast reyk- ingu á kjöti og öðrum matvælum. Þessi embættisstörf ná orðið langt út fyrir heimilið, því hvert haust tekur hann að sér kjöt í reykingju fyrir vini og kunningja, jafnvel úr öðrum sóknum. Eg hraða mér á vettvang. Það er mikill heiður að fá að hjálpa Jóni við embættisstörfin í reykingarkofanum og þó að aldur minn sé ekki hár þekki ég af eigin raun að aðstoð mín er vel þegin við ýmsa minni háttar snúninga. Hrískösturinn er bundinn saman með snæri og ég horfi á gamla manninn glíma við að leysa hnúta, með lopnum og hnýttum fingrum. A meðan tautar hann ýmislegt fyrir munni sér sem ekki er beinlínis í anda þeirrar hátíðar sem að höndum fer. Vasahnífurin er ekki langt und- an, en hér er maður af kynslóð sem ekki sker ótilneydd á spotta. Að lokum rakna hnútarnir, snærið er undið upp í hönk sem hverfur ofan í vasa á gömlum og snjáðum nank- insjakka. Inn í kofanum er eymur, af brendu hrísi og hangikjöti, sann- kölluð jólalykt. I rjáfrinu hanga læri, frampartar, bjúgu, rúllupylsur og magálar. Eg hjálpa Jóni við að taka bárajámsplötumar ofan af eld- stæðinu. I hlóð unum nórir nú að- eins örlítil glóð. Eg ber að taðflögur og rifið hrís. A meðan hefur gamli maðurinn lífgað við eldinn, sem eitt augna blik logar svo glatt, að það birtir í kofanum. En meistarinn er starfi sínu vaxinn, fljótlega hefur hann falið eldinn og örmjó reyk jar- súla stígur til lofts. Þegar við höfum gengið vel og vendilega frá öllu, göngum við til bæjar. Uti er rökkvað. Glottleitur máni nemur við fjallsbrún og á dimmbláum himninum kvikna stjörnurnar hver af annarri. I eldhúsinu eiga mamma og elsta systir mín annríkt við jóla- undirbúninginn. Kolavélin er rauð- glóandi. Það er verið að baka smákökur til jólanna. Eg fæ að smakka bæði gyðingakökur og hálf- mána, sem renna ljúflega í munni, þrátt fyrir að þær hafi aðeins hafa brennst í ofninum. Eftir kvöldmat- inn er komið að árvissum atburði, sem hlakkað hefur verið til frá því í byrjun jólaföstu. I kvöld fáum við systurnar að skoða jólakortin hans Jóns. Það er mikið safn. A langri ævi hefur hann haldið saman öllum kortum sem honum hafa borist og geymir þau í kistu ásamt fleiri dýr- gripum. Við systurnar setjumst hjá honum og bíðum eftirvæntingar- fullar eftir því, að hann ljúki upp kistunni. Athöfnin er alltaf með sama sniði. Hann opnar kistuna há- tíðlegur í fasi og og tekur upp pink- il sem vafinn er í brúnan pappír og leysir utan af honum seglgarns- spotta. Síðan lætur hann kortinn ganga á milli okkar, eitt og eitt í senn. A meðan við skoðum myndirnar á kortunum rifjar hann gjarnan upp kynni sín af sendandanum og grein- ir frá ættartengslum. Svona hefur þetta gengið fyrir sig ár eftir ár, en vekur þó alltaf sömu tilhlökkun og eftirvæntingu. Þegar við höfum lok- ið við að skoða kortin biðjum við Jón að fara með Gilsbakkaþulu, sem er gamalt grýlukvæði í anda kvenréttinda. A meðan Grýla gamla liggur og hvílir lúin bein í helli sín- um í Gilsbakkagili, þveitist Leppalúði um alla sveit og falast eftir óþekkum bömum þeim hjúun- um til viðurværis. Sem betur fer eru bara þæg og góð börn í sveitinni og hann hrökklast að lokum matarlaus til síns heima og hungur verður þeim hjúunum að aldurtila. Vett- vangur þulunnar er nágrannasveitin Hvítársíða, sem liggur handan við Síðufjallið dökka. Þangað hef ég aldrei komið, en ég loka augunum og fylgist í huganum með þrauta- göngu Lúða bæ frá bæ. Það er ekki frítt við, að í lokin finni ég til sam- úðar með þessum leiðu hjúum sem engin vill rétta hjálparhönd. Það er komin háttatími. Eftir að hafa hlust- að á hrollvekjandi grýlukvæði um samskipti trölla og manna, er ör- uggt og notalegt að skríða í holuna fyrir ofan stóru systur. Að morgni rís nýr dagur sem færir okkur enn nær langþráðri jólahátíð. Oskum viðskiptavinum okkar og Austfirðingum öllum gleðilegra jóla og farsœldar á komandi ári með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða. Súnbúðin Hafnarbraut 6 Neskaupstað Búnaðarbanki s Islands hefur um árabil þjónað íbúum á Austurlandi. Starfsfólk Búnaðarbankans þakkar viðskiptin a arinu og óskar ykkur gleðilegra jóla Búnaðarbankinn Egilsstöðum 471 1203 Við óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla ogfarsældar á nýju ári. DALVÍK, SÍMI 466 1670

x

Austri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.