Fréttablaðið - 30.09.2020, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 30.09.2020, Blaðsíða 9
Í dag undirrita 16 lyfja- fyrirtæki og stofnun okkar mikilvægan samning. Heimurinn er á tímamótum í vísindum: Öruggt og áhrifa-ríkt COVID-19 bóluefni verður líklega tilbúið snemma á næsta ári. Í rauninni verða mögu- lega f leiri bóluefni tiltæk. Þessi þróun mun loks gefa heimsbyggð- inni tækifæri til að útrýma ógn heimsfaraldursins – og koma heim- inum aftur í eðlilegt horf. Af því að við getum bólusett gegn sjúkdómnum munu stjórnvöld vera fær um að aflétta fjarlægðarráðstöf- unum. Fólk mun ekki lengur þurfa að ganga með grímur. Efnahagur heimsins mun taka við sér af fullum krafti. Útrýming sjúkdómsins gerist þó ekki af sjálfu sér. Til að ná markmið- inu þarfnast veröldin fyrst þriggja hluta: getunnar til að framleiða milljarða skammta af bóluefni, fjármögnunar til að borga fyrir þá og kerfis til að dreifa þeim. Framleiðslugeta á bóluefni Eins og staðan er núna er megnið af bóluefni gegn COVID-19 ætlað fyrir auðugri þjóðir heims. Þær hafa samið við lyfjafyrirtæki og tryggt sér rétt til að kaupa milljarða skammta þegar þeir  verða fram- leiddir. En hvað með þjóðir heims með lágar og lægri meðaltekjur, allt frá Suður-Súdan til Níkaragva til Mjan- mar? Þessar þjóðir eru heimkynni næstum helmings heimsbyggðar- innar og þær hafa ekki kaupmátt til að gera stóra samninga við lyfjafyrirtæki. Í núverandi ástandi munu þessi lönd mest geta náð til um 14 prósenta íbúa sinna. Ný líkön frá Northeastern- háskólanum í Boston skýra hvað mun gerast ef dreifing bóluefnis er svo ójöfn. Rannsakendur könnuðu tvenns konar atburðarás. Í  fyrri atburðarásinni eru bóluefni afhent löndum miðað við fjölda íbúa. Hin er nær því sem er nú að gerast: 50 rík lönd fá fyrstu 2 milljarða skammta bóluefnis. Í þessari atburðarás heldur veiran áfram að dreifast óhindruð í fjóra mánuði í þremur fjórðu hlutum heimsins og næstum tvöfalt f leiri látast. Þetta væri gífurlegur siðferðis- brestur. Fyrirbyggja má COVID-19 með bóluefni og enginn ætti að þurfa að deyja úr sjúkdómi sem unnt er að fyrirbyggja aðeins vegna þess að heimaland þeirra getur ekki tryggt framleiðslusamning. Ekki þarf einu sinni að velta sanngirni fyrir sér til að sjá vandamálið við „aðeins ríkar þjóðir“-atburðarásina. Í þessari atburðarás yrðum við öll eins og Ástralía og Nýja-Sjáland. Löng tímabil hafa liðið í báðum löndum með aðeins örfáum til- fellum innan landamæra, en efna- hagur þeirra er enn lamaður vegna þess að viðskiptalönd þeirra eru lokuð. Stöku sinnum leggur svo nýr smitberi leið sína yfir Suður-Kyrra- hafið og veldur nýju hópsmiti sem breiðist út. Skólum og skrifstofum er lokað á ný. Jafnvel með offramboði á bólu- efni eiga auðugar þjóðir á hættu að smit brjótist út á nýjan leik því ekki velja allir að láta bólusetja sig. Eina leiðin til að útrýma sjúkdóms- ógninni á einum stað er að útrýma henni alls staðar. Að agnúast út í auðugar þjóðir er ekki besta leiðin til að gæta jafn- ræðis í dreifingu  bóluefnis. Það er fullkomlega skiljanlegt að þær leitist við að vernda íbúa sína.  Í stað þess verðum við að auka fram- leiðslugetu heimsins á bóluefni verulega. Þannig getum við náð til allra, sama hvar fólk býr. Merkilegar framfarir hafa þegar náðst á þessu sviði þegar kemur að lyfjum til lækninga. Lyfjafyrirtæki hafa samþykkt að auka framleiðslu- getu með því að nota verksmiðjur hvert annars. Lyfið Remdesivir var til dæmis búið til af fyrir- tækinu Gilead en auka skammtar verða nú framleiddir í verksmiðjum Pfizer-lyfjaframleiðandans. Ekkert fyrirtæki hafði nokkurn tíma leyft samkeppnisaðila að nota verk- smiðjur sínar á þennan hátt og nú sjáum við svipaða samvinnu þegar kemur að bóluefnum. Í dag undirrita 16 lyfjafyrir- tæki og stofnun okkar mikilvægan samning. Fyrirtækin samþykktu meðal annars að hafa samvinnu um framleiðslu á bóluefni og hraða henni á áður óþekktan hátt til að tryggja að samþykktum bóluefnum verði dreift víðs vegar eins fljótt og auðið er. Fjármögnun á bóluefni Til viðbótar við framleiðslugetu á bóluefni þurfum við einnig fjár- magn til að greiða fyrir milljarða skammta fyrir fátækari þjóðir. Hér getur ACT-hraðallinn hjálpað. Það er framtak sem styrkt er af samtök- um eins og Gavi og Alþjóðasjóðnum (e. The Global Fund). Þrátt fyrir að ekki hafi allir heyrt af því hefur ACT á síðustu tveimur áratugum aflað sér sérfræðiþekkingar á fjármögn- un bóluefna, lyfja og greiningar. Lyfjafyrirtæki hafa gert f jár- mögnunina auðveldari, með því að afsala sér gróða af mögulegu COVID-19 bóluefni og samþykkt að framleiða það á hagkvæmasta mögulega máta. Einnig er þó þörf á opinberri fjármögnun. Bretland er góð fyrirmynd fyrir aðrar auðugar þjóðir. Það hefur lagt hraðlinum til nægt fjármagn svo útvega megi líklega hundruð millj- óna bóluefnisskammta. Ég vona að aðrar þjóðir verði jafn gjafmildar. Dreifikerfi fyrir bóluefni Að endingu þetta: Jafnvel þegar heimurinn er kominn með getu og skipulega fjármögnun, munum við þurfa að styrkja heilbrigðiskerfin – starfsmenn og innviði – sem geta raunverulega komið bóluefni til fólks um víða veröld. Margt má læra af viðvarandi átaki gegn lömunarveiki. Einhver frægasta ljósmyndin af aðgerðum gegn lömunarveiki á Indlandi var af heilbrigðisstarfsfólki sem stóð í röð. Það hélt bóluefniskælum hátt yfir höfði sér meðan það óð í gegnum mittisdjúpt flóðvatn á leið sinni til afskekkts þorps. Að greina COVID-19 tilfelli í fátækustu heims- hlutum mun þarfnast álíka hóps heilbrigðisstarfsmanna – fólks sem getur náð til staða þangað sem engir vegir liggja. Með góðri skimun geta þessir starfsmenn einnig verið í við- bragðsstöðu ef einhver annar sjúk- dómur stingur sér niður úr leður- blöku – eða fugli – yfir í manneskju. Með öðrum orðum, með útrým- ingu COVID-19 getum við líka byggt upp kerfið sem mun draga úr skaða vegna næsta heimsfaraldurs. Með því að rannsaka sögu heims- faraldra hef ég lært að þeir skapa óvæntan kraft þegar kemur að bæði eiginhagsmunum og fórn- fýsi: Heimsfaraldrar eru sjaldgæf tilfelli þar sem eðlishvöt þjóðar til að vernda sjálfa sig og hvötin til að hjálpa öðrum ber að sama brunni. Eiginhagsmunirnir og svo fórnfýsin – að sjá til þess að fátækar þjóðir hafi aðgang að bóluefni – eru það sama. Aðsend grein Bill Gates birtist í dag í dagblöðum víða um heim. Áætlun í þremur hlutum til að útrýma COVID-19 Bill Gates HENSON LAGERSALA Aðeins í 8 da ga! 1. okt 2. okt. 3 . okt 4. okt 5. okt 6. okt 7. ok t 8. okt. Opið frá kl. 11 -18 Staðsetning : Brautarho lt 24 Það er ánægjulegt að sjá og meta framgang byggðaáætlunar það sem af er og ég tel að vel hafi tekist til bæði við framkvæmd og fyrirkomulag áætlunarinnar. Vel hefur gengið að samþætta byggða- sjónarmið við aðrar stefnur og áætl- anir ríkis og sveitarfélaga: byggða- gleraugun eru nú sett upp á f leiri stöðum en áður hefur verið. Vissu- lega mætti vera meira fjármagn úr að spila en það fé sem til ráðstöf- unar er hefur verið vel nýtt. Einnig hefur tekist vel til við að virkja marga aðila þvert á hrepps- mörk, stjórnsýslustig og mála- f lokka, og sveitarstjórnarstigið er mun betur tengt við framkvæmd byggðaáætlunar en áður. Það var hárrétt ákvörðun að samþætta byggða- og sveitarstjórnarmál undir einum ráðherra. Þegar horft er yfir sviðið og farinn veg tel ég full- ljóst að sveitarstjórnar- og byggða- mál verði ekki aðskilin héðan í frá. Loftbrúin (Skoska leiðin) er ein mikilvægasta byggða- og sam- gönguaðgerð síðari ára. Loftbrúin veitir 40% afslátt af heildarfargjaldi fyrir allt að sex flugleggi á ári og er markmiðið að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni sem búa fjarri höf- uðborginni að miðlægri þjónustu. Ljóst er að hér er um mikið rétt- lætismál að ræða fyrir þá sem búa fjarri höfuðborginni og bæði vilja og þurfa að sækja þjónustu þangað. Það er því sérstaklega ánægjulegt að Loftbrúin sé nú orðin að veruleika og komin til framkvæmda. Í byrjun sumars hélt byggða- málaráð góðan umræðufund um endurskoðun byggðaáætlunar, hvar við stöndum og hvert beri að stefna til framtíðar. Það var mjög gott að fá yfirlit yfir byggðastefnu og aðgerðir á Norðurlöndunum. Við endurskoðun byggðaáætlunar er mikilvægt að skoða sérstaklega hvaða aðgerðir eru að skila árangri og byggja áfram á þeim verkefnum sem hafa þótt reynast vel. Um leið er ljóst að sveitar- stjórnarfólk um land allt lætur sig byggðamál varða og það þurfum við líka að gera hér á höfuðborgar- svæðinu. Byggðastefna á að ná til landsins alls, en ekki bara til veik- ustu byggðarlaganna eins og áður var. Það er mikilvægt fyrir okkur sem munum nú bera ábyrgð á því fyrir hönd ráðherra og ríkisstjórnar að endurskoða byggðaáætlun og tryggja að hún verði það verkfæri sem byggðir landsins hafa þörf fyrir. Við höfum úr miklu að moða og höldum glöð til móts við verkefnið. Að lokum vil ég hvetja alla lands- menn, nær og fjær, til að taka þátt í því opna samráðsferli sem nú stendur yfir. Mótum saman nýja og öfluga byggðastefnu fyrir landið. Öflug byggðastefna Ágúst Bjarni Garðarsson formaður byggðamála- ráðs S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M I Ð V I K U D A G U R 3 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.