Fréttablaðið - 30.09.2020, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 30.09.2020, Blaðsíða 14
Mikilvægt er að drekka mikið af vatni og skola munninn oft með volgu vatni, en ekki ísvatni. MYND/ GETTY Góð munnhirða er alltaf mikilvæg, en hún er enn mikilvægari ef munnþurrkur er til staðar. Munnvatn smyr og skolar munninn, stuðlar að réttu sýrustigi og inni­ heldur verndandi efnasambönd fyrir tennur og umhverfi þeirra. Í munnvatni eru auk þess efnahvat­ ar sem byrja meltingu fæðunnar. Einkenni munnþurrks eru sviði í munni og erfiðleikar við tal, tyggingu og þau geta valdið kyng­ ingarerfiðleikum. Við langvarandi munnþurrk breytist samsetning munnflórunnar, tennur skemmast hraðar og aukin vandamál skapast í slímhúð munns og tannholdi. Þá torveldar munnþurrkur notkun gervitanna, auk þess sem eymsli undan þeim verða tíðari. Orsakir munnþurrks geta verið margvíslegar, svo sem ójafnvægi í vatnsbúskap líkamans, auka­ verkanir í kjölfar lyfjatöku eða sjúkdómar í munnvatnskirtlunum sjálfum. Vandamál tengd munn­ þurrki aukast þegar aldurinn færist yfir, en munnþurrkur er oft talinn einn af fylgifiskum öldrunar. Máltíð lokið með ostbita Góð munnhirða er alltaf mikil­ væg, en hún er enn mikilvægari ef munnþurrkur er til staðar auk þess sem huga verður vel að mataræði. Tannburstun er einfaldasta og áhrifaríkasta leiðin til að fjarlægja sýkla og matarleifar af tönnum. Mælt er með að nota mjúkan tann­ bursta sem endurnýja þarf reglu­ lega og flúortannkrem. Mikilvægt er að hreinsa milli tannanna með tannþræði einu sinni á dag og nauðsynlegt er að beita lagni til að særa ekki viðkvæmt tannholdið. Til að örva munnvatnsfram­ leiðslu er mælt með að tyggja sykurlaust tyggjó, sem einnig fæst f lúorbætt í lyfjabúðum. Einnig eru á boðstólum sykurlausar, munn­ vatnsörvandi bragðtöflur. Mælt er með því að borða mat sem þarf að tyggja og það er góð tannvernd að ljúka máltíð á ostbita. Til að vökva munninn er mikil­ vægt að drekka mikið af vatni og skola munninn oft með volgu Munnþurrk þarf að meðhöndla Eðlileg munnvatnsframleiðsla hefur mikið að segja fyrir góða líðan og viðheldur heilbrigði munns- ins. Ástæða er til að vera í eftirliti hjá tannlækni ef breyting verður á munnvatnsframleiðslu. vatni, ekki ísvatni. Einnig er ráðlagt að nota svokallað gervi­ munnvatn, sem fæst í lyfjabúðum, auk þess sem þar er að finna ýmis önnur hjálparefni við munn­ þurrki, svo sem úða og gel, sem mælt er með að smyrja á munn­ slímhúð, til dæmis fyrir svefn, til að tungan límist síður við góminn. Umrædd efni draga einnig úr óþægindum í slímhúð undir gervi­ tönnum. Gott er að hafa í huga að mýkja varir með varasalva eða vaselíni. Aldrei ætti að nota sætindi til að lina munnþurrk. Gosdrykkir og ávaxtadrykkir, sætt tyggigúmmí, brjóstsykur og annað sælgæti veldur tannskemmdum á undra­ hröðum tíma. Ráðlagt er að tak­ marka neyslu á koffíni og alkóhóli. Sérstök ástæða er til að vera í reglulegu eftirliti hjá tannlækni ef breyting hefur orðið á munn­ vatnsframleiðslu, svo viðhalda megi heilbrigðu ástandi í munn­ holi. Leitið ráða hjá tannlæknum og starfsfólki lyfjabúða varðandi ýmis hjálparefni sem eru í boði í lyfjabúðum til að milda einkenni munnþurrks. Heimild: landlaeknir.is 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.