Fréttablaðið - 30.09.2020, Qupperneq 14
Mikilvægt er að
drekka mikið
af vatni og
skola munninn
oft með volgu
vatni, en ekki
ísvatni. MYND/
GETTY
Góð munnhirða er
alltaf mikilvæg, en
hún er enn mikilvægari
ef munnþurrkur er til
staðar.
Munnvatn smyr og skolar munninn, stuðlar að réttu sýrustigi og inni
heldur verndandi efnasambönd
fyrir tennur og umhverfi þeirra. Í
munnvatni eru auk þess efnahvat
ar sem byrja meltingu fæðunnar.
Einkenni munnþurrks eru sviði
í munni og erfiðleikar við tal,
tyggingu og þau geta valdið kyng
ingarerfiðleikum. Við langvarandi
munnþurrk breytist samsetning
munnflórunnar, tennur skemmast
hraðar og aukin vandamál skapast
í slímhúð munns og tannholdi. Þá
torveldar munnþurrkur notkun
gervitanna, auk þess sem eymsli
undan þeim verða tíðari.
Orsakir munnþurrks geta verið
margvíslegar, svo sem ójafnvægi
í vatnsbúskap líkamans, auka
verkanir í kjölfar lyfjatöku eða
sjúkdómar í munnvatnskirtlunum
sjálfum. Vandamál tengd munn
þurrki aukast þegar aldurinn
færist yfir, en munnþurrkur er
oft talinn einn af fylgifiskum
öldrunar.
Máltíð lokið með ostbita
Góð munnhirða er alltaf mikil
væg, en hún er enn mikilvægari ef
munnþurrkur er til staðar auk þess
sem huga verður vel að mataræði.
Tannburstun er einfaldasta og
áhrifaríkasta leiðin til að fjarlægja
sýkla og matarleifar af tönnum.
Mælt er með að nota mjúkan tann
bursta sem endurnýja þarf reglu
lega og flúortannkrem. Mikilvægt
er að hreinsa milli tannanna með
tannþræði einu sinni á dag og
nauðsynlegt er að beita lagni til að
særa ekki viðkvæmt tannholdið.
Til að örva munnvatnsfram
leiðslu er mælt með að tyggja
sykurlaust tyggjó, sem einnig fæst
f lúorbætt í lyfjabúðum. Einnig eru
á boðstólum sykurlausar, munn
vatnsörvandi bragðtöflur. Mælt er
með því að borða mat sem þarf að
tyggja og það er góð tannvernd að
ljúka máltíð á ostbita.
Til að vökva munninn er mikil
vægt að drekka mikið af vatni
og skola munninn oft með volgu
Munnþurrk þarf að meðhöndla
Eðlileg munnvatnsframleiðsla hefur mikið að segja fyrir góða líðan og viðheldur heilbrigði munns-
ins. Ástæða er til að vera í eftirliti hjá tannlækni ef breyting verður á munnvatnsframleiðslu.
vatni, ekki ísvatni. Einnig er
ráðlagt að nota svokallað gervi
munnvatn, sem fæst í lyfjabúðum,
auk þess sem þar er að finna ýmis
önnur hjálparefni við munn
þurrki, svo sem úða og gel, sem
mælt er með að smyrja á munn
slímhúð, til dæmis fyrir svefn, til
að tungan límist síður við góminn.
Umrædd efni draga einnig úr
óþægindum í slímhúð undir gervi
tönnum. Gott er að hafa í huga að
mýkja varir með varasalva eða
vaselíni.
Aldrei ætti að nota sætindi til að
lina munnþurrk. Gosdrykkir og
ávaxtadrykkir, sætt tyggigúmmí,
brjóstsykur og annað sælgæti
veldur tannskemmdum á undra
hröðum tíma. Ráðlagt er að tak
marka neyslu á koffíni og alkóhóli.
Sérstök ástæða er til að vera í
reglulegu eftirliti hjá tannlækni
ef breyting hefur orðið á munn
vatnsframleiðslu, svo viðhalda
megi heilbrigðu ástandi í munn
holi. Leitið ráða hjá tannlæknum
og starfsfólki lyfjabúða varðandi
ýmis hjálparefni sem eru í boði í
lyfjabúðum til að milda einkenni
munnþurrks.
Heimild: landlaeknir.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R