Fréttablaðið - 30.09.2020, Page 20
[E]ftir því sem ég
best veit er þessi
áætlaði, vegni fjármagns-
kostnaður sambærilegur við
það sem gerist
erlendis.
Guðmundur Ingi
Ásmundsson,
forstjóri Lands-
nets
Við getum alltaf
keppt á sterkum
grundvelli til lengri tíma þó
að markaðsaðstæður séu
erfiðar núna.
Tómas Már
Sigurðsson, for-
stjóri HS Orku
Þórður
Gunnarsson
thg@frettabladid.is
Hægt er að byggja u pp f lut n i ng s -kerfi Landsnets án þess að það þurfi að leiða til mikilla g jaldsk rárhæk k-
ana á næstu árum. Til að svo megi
verða þarf að dreifa fjárfestingum
fyrirtækisins yfir lengri tíma. Öllu
mikilvægara er þó að breyta reikni-
reglu Orkustofnunar um veginn
fjármagnskostnað Landsnets, sem
myndar grundvöll verðlagningar
fyrirtækisins. Þetta er mat Harðar
Arnarsonar, forstjóra Landsvirkj-
unar.
Í síðustu viku sagði Bjarni Bjarna-
son, forstjóri Orkuveitu Reykja-
víkur, að óráðlegt væri að Lands-
net réðist í fjárfestingar upp á 90
milljarða króna á næstu 10 árum
til uppbyggingar á f lutningskerfi
raforku á Íslandi. „ Sumir stórnot-
endur rafmagns á Íslandi eru þegar
við sársaukamörk þegar kemur að
raforkukostnaði og það er einsýnt
að hækkandi f lutningskostnaður
myndi þýða minni kaup á raforku.
Þá þarf Landsnet að hækka verð-
skrána, sem myndi enn frekar draga
úr eftirspurn. Þarna gæti myndast
spírall sem ekki endaði vel,“ sagði
Bjarni í síðustu viku.
Hörður telur að Landsnet geti
byggt upp flutningskerfið án þess
að hækka gjaldskrá: „Gjaldskráin
er of há sem stendur. Það sýnir
sig auðvitað best í því að arðsemi
Landsnets er töluvert meiri en
Landsvirkjunar, en það markast
af því að tekjumörk Landsnets eru
metin of hátt.“
Landsvirkjun sendi Orkustofnun
síðast erindi vegna reiknireglu
vegins fjármagnskostnaðar Lands-
nets fyrr á þessu ári. Í erindi Lands-
virkjunar kemur fram að álag sem
lagt er ofan á áhættulausa vexti í
Bandaríkjadölum miðast við tíu
ára hlaupandi meðaltal skulda-
tryggingaálags (CDS) Íslands með
tveggja ára töf. „Hið langa meðaltal
aftur í tímann gerir það að verkum
að áhrifa frá árunum eftir efna-
hagsáfallið 2008 gætir enn í CDS
álaginu. Núverandi notendur flutn-
ingskerfisins njóta því ekki góðs af
lægra CDS undanfarin ár. Í tilfelli
Landsnets þá er langstærstur hluti
þeirra lána tekinn á síðustu árum og
ber ekki þessi sögulegu CDS meðal-
töl,“ segir í erindi Landsvirkjunar til
Orkustofnunar.
Landsvirkjun bendir jafnframt
á að sé litið til raunverulegs vaxta-
kostnaðar Landsnets, hafi munur-
inn á honum og reiknuðum, vegn-
um fjármagnskostnaði samkvæmt
Orkustofnun, legið á bilinu 1,9 til
3,4 prósent á árunum 2011 til 2019. „
Þetta ofmat á vaxtakostnaði Lands-
nets má rekja til þeirrar aðferða-
fræði sem er skilgreind í reglu-
gerðinni [...] Þetta svigrúm leiðir til
þess að gjaldskrá Landsnets verður
óþarflega há, enda er raunverulegur
vaxtakostnaður fyrirtækisins mun
lægri.“
Loks er bent á í erindi Lands-
virkjunar að verðskrá Landsnets
byggi á „á 10 ára gömlum veruleika
hrunáranna, í stað þess að taka mið
af markaðsaðstæðum eins og þær
eru núna.“
Af þessum sökum er ávöxtunar-
krafan á eigið fé Landsnets um 9,1
prósent, en til samanburðar bendir
Landsvirkjun á að íslenskra ríkið
geri 7 til 8 prósenta ávöxtunarkröfu
á Landsvirkjunar í Bandaríkjadöl-
um og 6,5 prósenta kröfu í krónum
á Íslandsbanka og Landsbanka.
Síðastnefndu þrjú fyrirtækin eru
þó öll í samkeppnisrekstri, ólíkt
Landsneti. „Landsvirkjun telur
tímabært að endurskoða forsendur
tekjuramma sérleyfishafa [innsk.
Landsnets] með það að markmiði
að aðlaga þær að þeim veruleika
sem íslenskur raforkumarkaður býr
við. Að öðru óbreyttu er hætt við að
samkeppnishæfni íslenskra orku-
fyrirtækja verði verulega skert.“
Vilja meiri sveigjanleika
Guðmundur Ingi Ásmundsson,
forstjóri Landsnets, segir að ávöxt-
unarkrafa eiginfjár Landsnets sé
ákvörðuð af öðrum en fyrirtækinu
sjálfu. „Auðvitað höfum við haft
okkar skoðanir á þessu, en það er
Orkustofnun sem ákveður þetta,“
segir hann. Guðmundur bendir
á að uppbygging f lutningskerfis
raforku sé langtímaverkefni, en
jafnframt séu fyrir hendi skýr
markmið um að halda gjaldskrá
stöðugri. „Á síðustu árum hefur
gjaldskrá f lutnings til stórnotenda
lækkað að raunvirði. Þegar það
koma sveif lur eins og við sjáum
nú í tenglum við COVID-19, þá er
auðvitað tilefni til að skoða hvort
eigi að búa þannig um hnútana að
Landsnet hafi meira svigrúm til að
bregðast við aðstæðum.“ Landsnet
geti f lutt innheimtu tekna um
allt að 10 prósent milli ára til að
bregðast við breyttum aðstæðum á
mörkuðum, en fram til ársins 2011
var svigrúmið töluvert meira.
Hvað varðar reiknaðan, veginn
fjármagnskostnað Landsnets, þá
segir Guðmundur að núverandi
fyrirkomulag hafi búið til nauð-
synlegan stöðugleika í rekstri
Landsnets. „Það má auðvitað deila
um hvort notkun meðaltals CDS-
álags til 10 ára sé besta leiðin, en
eftir því sem ég best veit er þessi
áætlaði, vegni fjármagnskostnaður
sambærilegur við það sem gerist
erlendis. Núverandi reikniregla
vinnur auðvitað með okkur þegar er
vaxtalækkunarfasi um heim allan,
en það snýst svo við þegar vextir
fara að hækka á ný. En lykilatriðið
fyrir okkur er að sá stöðugleiki sem
við höfum haft í rekstrinum síðan
núverandi reikniregla var tekin upp
hefur skipt sköpum.“
Ótekin orka ekki óseld
Samorka, samtök orku- og veitufyr-
irtækja Íslandi, sendi frá sér grein-
ingu á dögunum um að virkja þyrfti
töluvert mikið á næstu þremur ára-
tugum svo að orkuskipti á Íslandi
geti átt sér stað og að vægi hreinna
orkugjafa yrði aukið sem skyldi,
einkum í samgöngum. Í samtali við
Fréttablaðið hélt Bjarni Bjarnason
því fram að næg orka væri til staðar
á Íslandi til að knýja allan bílaflota
landsmanna með rafmagni, enda
kallaði það á um það bil 3,5 prósent
af því rafmagni sem framleitt er í
dag á Íslandi. Í augnablikinu væri
um það bil 7,5 prósent umfram-
magn í kerfinu.
Hörður segir mikilvægt að gera
greinarmun á óseldri og ótekinni
orku úr íslenska raforkukerf-
inu. „Við erum skuldbundin til
að afhenda þá orku sem hefur verið
samið um. Þó að það sé umfram-
orka í kerfinu núna, vegna þess
að viðskiptavinir eru ekki að full-
nýta samninga sína, þá getum við
ekki afhent hana nýjum viðskipta-
vinum. Á árinu 2018 var raforku-
kerfið á Íslandi fullselt, það er ekki
lengra síðan en þá. Síðan hefur
skollið á kreppa sem kemur mjög
niður á allri hrávöruframleiðslu og
stóriðjan á Íslandi er ekki undan-
skilin þar. Þó að það sé tímabundin
niðursveifla í orkunotkun nú, er ég
mjög bjartsýnn á raforkueftirspurn
á Íslandi til lengri tíma litið og tel
að eftirspurn muni aukast á næstu
árum og áratugum.“
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri
HS Orku, tekur í svipaðan streng:
„Það er dýfa í eftirspurn núna, enda
eru tvö kísilver úti og gagnaverin
hafa dregið mjög úr orkukaupum
sínum. Gagnaverin eru kvik og elta
bara lægsta kostnaðinn og geta fært
sig hratt a milli landa, enda endur-
nýja þau allan tækjabúnað á 18
mánaða fresti að jafnaði. Ég held að
til lengri tíma ættum ekki að eltast
við slíka viðskiptavini.“
Tómas segir að nákvæmlega núna
sé orkuverð á Íslandi ekki sam-
keppnishæft við ákveðin önnur
svæði, eins og til dæmis Noreg
og Svíþjóð. „Þar hefur átt sér stað
ákveðin offjárfesting í raforkufram-
leiðslu og þar að auki er vatnsstaðan
í uppistöðulónum hærri en hún
hefur verið í mörg ár. Það ýtir verð-
inu niður til skemmri tíma. En það
er hættulegt að taka alltaf punkt-
stöðu og taka langtímaákvörðun
út frá skammtímastöðu. Rétt eins
og þegar menn tóku punktstöðuna
2018, sáu verðin í Noregi og töldu sig
geta rukkað hærra verð hér heima,
er ekki rétt að taka aftur punkt-
stöðu núna og taka afdrifaríkar
ákvarðanir út frá því. Við getum
alltaf keppt á sterkum grundvelli til
lengri tíma þó að markaðsaðstæður
séu erfiðar núna.“
Svartsengi stækkað
HS Orka tilkynnti nýlega að fyrir-
ætluð væri stækkun á uppsettu afli
Reykjanesvirkjunar úr 100 mega-
vöttum í 130. Stækkunin snýr að
því að nýta betur affallsvarma
núverandi virkjunar og því ekki
þörf á nýjum borholum. Samkvæmt
útboðsgögnum HS Orku eru verk-
lok áætluð síðla árs 2022. „Eftir að
vinnunni við Reykjanesvirkjun
lýkur ætlum við að ráðast í stækkun
á Svartsengi líka. Við teljum okkur
geta bætt við 30 megavöttum af
uppsettu afli þar, sem myndi auka
afkastagetu um liðlega 40 prósent.
Þar verður gömlum túrbínum skipt
út fyrir nýjar til að nýta borholurn-
ar betur.
Telur mögulegt að Landsnet fjárfesti í
flutningskerfi án gjaldskrárhækkana
Samkvæmt kerfisáætlun Landsnets eru fjárfestingar upp á 90 milljarða króna á döfinni á næstu tíu árum. Forstjóri Landsvirkjunar
telur að hægt sé að ráðast í fjárfestingarnar án gjaldskrárhækkana. ef forsendum reiknireglu um fjármagnskostnað Landsnets
verður breytt. Forstjóri Landsnets segir málið ekki í höndum fyrirtækisins. HS Orka hyggur á stækkun virkjunar við Svartsengi.
Landsvirkjun segir í erindi sínu til Orkustofnunar að raunverulegur fjármagnskostnaður Landsnets sé miklu lægri en stofnunin áætlar.
3 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN