Fréttablaðið - 30.09.2020, Blaðsíða 26
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Umsjónarmaður gönguferð-anna er Kolbrún Björnsdótt-ir, lærður leiðsögumaður
með óbilandi ást á útiveru. Hún
segir stemninguna í hópnum góða
og að vinaböndin styrkist með
hverri gönguferð. Verkefnið var
sett á ís í vetur vegna COVID eins
og annað starf Ferðafélagsins, en
fór svo aftur af stað nú um miðjan
september.
„Þannig að segja má að við
séum nýbyrjuð aftur og bjóðum
öll áhugasöm með okkur,“ segir
Kolbrún.
„Hugsanlega hefur þetta ástand
einhver áhrif en þá er gott að hafa
í huga að það er fátt betra fyrir
okkur en að hreyfa okkur úti í
náttúrunni. Nema þá að hreyfa
okkur úti í náttúrunni í skemmti-
legum félagsskap. Það styrkir svo
sannarlega ónæmiskerfið.“
Kolbrún segir hópinn ótrúlega
skemmtilegan. Fólkið kemur úr
ólíkum áttum en á það sameigin-
legt að njóta þess að vera úti.
„Allir þátttakendurnir eru í
góðu gönguformi, við göngum
allaveganna frekar rösklega og
stundum líður mér eins og ég þurfi
að hafa mig alla við,“ segir Kolbrún
hlæjandi.
„En það þarf enginn að óttast
að vera skilinn eftir, við erum alls
ekki að flýta okkur og njótum þess
líka að spjalla. Þetta eru fyrstu
göngurnar mínar með þessum
hópi og ég get með sanni sagt að
ég hlakka til hverrar göngu. Mér
finnst eins og ég sé að eignast fullt
af skemmtilegum vinum sem eru
fullir af visku. Ég kem allaveganna
aldrei að tómum kofanum ef það
er eitthvað sem ég er að velta fyrir
mér og það er eiginlega magnað
hversu mikil þekking er innan
hópsins, á öllu á milli himins og
jarðar. Þetta eru reynsluboltar í
lífinu sem eru alger forréttindi að
fá að ganga með.“
Frábær hreyfing og yndislegt
fólk og félagsskapur
Einn af þátttakendunum í göngu-
hópnum er Steinunn Steinarsdótt-
ir. Steinunn er vanur göngugarpur
en hún er félagi í Ferðafélagi
Íslands og hefur í gegnum árin
farið í lengri og styttri gönguferðir
með félaginu.
„Ég er fyrir stuttu byrjuð að
taka þátt í þessum gönguferðum
eldri borgara. Ég tek þátt í þeim
vegna þess að þær henta eldra fólki
mjög vel hvað gönguleið og hraða
snertir,“ segir Steinunn og bætir
við að þær séu líka á góðum tíma.
„Félagsskapurinn er frábær,
þetta er yndislegt fólk og skemmti-
legt. Það er mikið spjallað og
hlegið og auðvitað leyst úr heims-
málum hinnar líðandi stundar.“
Steinunn segir að gönguhópur-
inn gefi sér frábæra hreyfingu og
útivist sem henti henni mjög vel.
„Og ekki síst félagsskap og nær-
veru annarra, sem er okkur öllum
nauðsynleg til að líða vel,“ bætir
hún við.
Nærvera
annarra
nauðsynleg
til að líða vel
Gönguferðir eldri og heldri hafa verið
haldnar af Ferðafélagi Íslands af og
til í tíu ár og hafa þær verið með fjöl-
breyttu sniði. Í haust hittist hópurinn
tvisvar í viku og gengur saman, ýmist
í Elliðaárdal eða Öskjuhlíð.
Eldri og heldri gönguhópur Ferðafélags Íslands nýtur náttúru og góðs félagsskapar tvisvar í viku.
Kolbrún er leiðsögumaður hópsins sem hún segir mjög
skemmtilegan, en þátttakendur koma úr öllum áttum.
Steinunn gengur mikið á fjöll, en hún er nýfarin að taka
þátt í gönguferðum eldri borgara með Ferðafélaginu.
Hópurinn hittist tvisvar í viku,
á mánudögum og fimmtudögum
klukkan 10. Á mánudögum við
Árbæjarlaug og á fimmtudögum
við Perluna.
„Við förum ólíkar leiðir um
svæðið og veljum þær aðeins eftir
veðri,“ segir Kolbrún.
„Og svo framarlega sem enginn
í hópnum er að flýta sér, þá nýtum
við okkur það stundum ef veður
er gott að ganga aðeins lengur en
þessar 60-90 mínútur sem gert er
ráð fyrir.“
Í ferðunum fræðist hópurinn í
leiðinni um svæðið sem er gengið á.
„Ég þekki nú aðeins til í Árbæn-
um, þar sem ég ólst þar upp, en á
svæðinu í kringum Perluna höfum
við meðal annars nýtt þau fjöl-
mörgu skilti sem þar er að finna og
segja frá sögu svæðisins,“ útskýrir
Kolbrún.
„En svo erum við að spá í að
færa okkur örlítið á milli staða.
Okkur langar allaveganna að
heimsækja aðeins stígana í Heið-
mörk.“
Kolbrún segir einfalt að vera
með í gönguhópnum en fyrir þau
sem hafa áhuga á að vera með í
þessum skemmtilega félagsskap,
eru allar upplýsingar um hann á
heimasíðu Ferðafélags Íslands og
hægt er að skrá sig þar, eða með
því að hringja á skrifstofu FÍ.
Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is
Svörum fyrirspurnum fúslega í síma 515 1100
eða á heilbrigdi@rekstrarland.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
83
08
8
ABENA ÞVAGLEKAVÖRUR
FÁST Í REKSTRARLANDI
samþykktar af Sjúkratryggingum Íslands og Ríkiskaupum
OPIÐ ALLA
VIRKA DAGA
KL. 8–17.
Abena hjálparvörurnar við þvagleka eru alhliða
lausnir fyrir alla þá sem glíma við þvagleka.
Sérfræðingar okkar aðstoða við rétt val og veita
persónulega og faglega þjónustu. Skírteinishafar
geta leitað beint til Rekstrarlands.
Við komum vörunum heim til notenda.
4 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U REFRI ÁRIN