Fréttablaðið - 30.09.2020, Side 48
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
dóttir, systir og amma,
Elísabet Sigurjónsdóttir
Sléttuvegi 7,
andaðist á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi 23. september.
Útför hennar verður frá Lindakirkju
fimmtudaginn 1. október kl. 15.00. Þeim sem vildu
minnast hennar er bent á MS félagið.
Sigurjón Agnar Daníelsson
Aníta Sædís Ingimarsdóttir Daði Elísson
Mattína Sigurðardóttir
systur og barnabarn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jóna Ólafsdóttir
Hraunvangi 1,
áður Klukkubergi 41,
Hafnarfirði,
lést 31. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Robert Ólafur Grétar Mckee Helga Margrét Sveinsdóttir
Magnús Ásgeirsson Sigrún Ingjaldsdóttir
Gyða Ásgeirsdóttir
Ásdís Ásgeirsdóttir Guðmundur Helgason
barnabörn og barnabarnabörn.
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar
í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á
timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sæberg Þórðarson
fasteignasali,
Hlaðhömrum 2,
áður Áshamri, Mosfellsbæ,
lést á Vífilsstöðum þann 15. september. Útför hans fer
fram frá Guðríðarkirkju þann 2. október kl. 13.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktar- og
líknarsjóð Oddfellowa.
Magný Kristinsdóttir
Hekla Karen Sæbergsdóttir Friðrik Guðmundsson
Hulda Katla Sæbergsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi, langalangafi og
langalangalangafi,
Hörður Reynir Hjartarson
Hveragerði,
lést á heimili sínu Ási,
sunnudaginn 27. september.
Helgi Harðarson
Hjörtur Lárus Harðarson G. Svava Guðmundsdóttir
Ingibjörg Pála Harðardóttir Þórður Rúnar Þórmundsson
Lilja Hafdís Harðardóttir Frank Þór Franksson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Theodór S. Ólafsson
vélstjóri og fyrrv. útgerðarmaður,
Bessahrauni 6 í Vestmannaeyjum,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands í
Vestmannaeyjum þann 16. september sl.
Útförin mun fara fram frá Landakirkju föstudaginn
2. október kl. 13.00.
Margrét Sigurbjörnsdóttir
Þorbjörg Theodórsdóttir Haukur Logi Michelsen
Hafþór Theodórsson Hanna R. Björnsdóttir
Júlíanna Theodórsdóttir Ingólfur Ingólfsson
Bára Theodórsdóttir Tommy Westman
Björk Theodórsdóttir
Harpa Theodórsdóttir Örvar G. Arnarson
og fjölskyldur.
Elsku pabbi okkar,
tengdapabbi, afi og langafi,
Erling Andreassen
flugvirki,
lést á Landspítalanum á Hringbraut
miðvikudaginn 23. september síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 2. október
klukkan 13.00 og verður henni streymt á slóðinni
www.facebook.com/groups/erlingandreassen
Ásta Andreassen Ásgeir H. Bjarnason
Erna Andreassen Þráinn Jóhannsson
Sverrir Andreassen Brynja Andreassen Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Björn Ágúst Magnússon sendi mynd af íslenskum hestum til National Geographic í Bandaríkjunum og fékk orðsendingu um að hún hefði hitt ritstjórann David
Y. Lee í hjartastað, hann hefði sett hana
í f lokk uppáhaldsmynda. „Það er vissu-
lega heiður fyrir mig að ritstjóri í þessu
virta útgáfufyrirtæki kunni svona vel að
meta það sem ég er að gera,“ segir Björn
Ágúst.
Að hans sögn hefur ljósmyndun verið
yndi hans og ánægja síðustu 23 árin, eða
allt frá því að hann fékk fyrstu mynda-
vélina í jólagjöf árið 1997. „Þá byrjaði
ballið,“ segir hann glettinn og bætir við:
„Ég gæti kannski lifað á ljósmyndun en
ég hef líka mjög gaman af að matreiða
og ákvað samt að verða ekki matreiðslu-
maður því þá mundi ég líklega missa
ánægjuna sem ég hef af því að elda og
fengi heldur ekki að njóta matarins
sjálfur.“
Hestamyndina tók Björn Ágúst uppi
í Hvalfjarðarsveit. „Ég er sveitastrákur,
alinn upp á Eystri-Leirárgörðum og á
Vestri-Leirárgörðum er hrossaræktarbú.
Það er stutt á milli bæjanna og þar býr
gott fólk. Ég þurfti að stoppa til að opna
hlið, sá hestana og skýjafarið og tók
þessa mynd. Fremst er Vár og myndin
heitir það.“
Björn Ágúst kveðst eiga fullt af mynd-
um víða að. „Ég hef ferðast mikið. Var til
dæmis í Afríku í nóvember í fyrra og
hef farið ótal sinnum til Danmerkur.
Mamma býr þar og ég er mömmu-
strákur! Hún skellti sér í nám þegar hún
var á svipuðum aldri og ég er núna og
hefur starfað á bráðamóttöku í tuttugu
ár. Á COVID-tímum get ég ekki heimsótt
hana en við tölum saman í oft í viku.“
Nú er Björn Ágúst að koma sér upp
eigin ljósmyndasíðu. „Ég heiti Björn eftir
afa og Ágúst eftir langafa og það stytt-
ist í að síðan bjornagust.is fari í loftið.
Ég hef lítið komið mér á framfæri en á
National Geographic er netsamfélag og
þar er gott að fá endurgjöf á myndirnar.
Það er margt sem fylgir myndatökum
því með þeim skynjar maður heiminn
á nýjan hátt. Mér finnst gaman að segja
sögur og það vil ég að mínar myndir geri.
Ég hef þroskast og þróast og myndirnar
með.“ gun@frettabladid.is
Vil að myndir segi sögur
Hestamynd Björns Ágústs Magnússonar heillaði David Y. Lee, ritstjóra National
Geographic, sem setti hana í heiðursflokk. Myndin heitir Vár eftir aðalfyrirsætunni.
„Það er stormur og frelsi í faxins hvin,“ orti Einar Ben og rifjast upp þegar horft er á myndina Vár. MYND/BJÖRN ÁGÚST MAGNÚSSON
Björn segir styttast í að myndasíðan bjornagust.is fari í loftið. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Það er margt sem fylgir mynda-
tökum því með þeim skynjar
maður heiminn á nýjan hátt.
Merkisatburðir
1966 Útsendingar íslenska sjónvarpsins hefjast. Fyrstur á
skjáinn er Vilhjálmur Þ. Gíslason útvarpsstjóri. Ása Finns-
dóttir er þula fyrsta kvöldið.
1994 302 metra löng brú yfir Kúðafljót er tekin í notkun.
Við það styttist hringvegurinn um átta kílómetra.
1996 Eldgos hefst undir Vatnajökli, milli Bárðarbungu og
Grímsvatna.
2005 Umdeildar skopteikningar af Múhameð spámanni
birtast í danska dagblaðinu Jyllandsposten.
3 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT