Fréttablaðið - 02.10.2020, Page 4
Ríkisstjórnin ætlar sér stóra hluti á síðasta vetri kjörtímabilsins
Heilbrigðisráðherra
hyggst efna loforð sitt um
afnám refsinga fyrir vörslu
neysluskammta fíkniefna
eftir áramót.
100%
endurgreiðsla virðisauka-
skatts af vinnu við íbúðar-
húsnæði verður framlengd
út árið 2021.
Þú hringir í síma 517 5500
eða sendir póst á
lyfsalinn@lyfsalinn.is
Fáðu lyn send frítt heim
GLÆSIBÆ / OPIÐ 08:30-18:00 mán.- fös.
Sími 517 5500 / lyfsalinn@lyfsalinn.is
VESTURLANDSVEGI / OPIÐ 10:00-22:00 alla daga
Sími 516 5500 / vesturlandsvegur@lyfsalinn.is
URÐARHVARFI / OPIÐ 08:30-18:00 mán.- fös.
Sími 516 5505 / urdarhvarf@lyfsalinn.is
og þér líður betur
FJÁRLÖG
Hvað þýðir fjárlagafrumvarpið fyrir þig?
9 milljörðum verður veitt
til vegaframkvæmda, þar af
4,8 milljörðum í stórátak og
2,6 í fækkun einbreiðra brúa.
Aukið fjármagn
fer í að minnka
greiðslu þátttöku
almennings í heil-
brigðiskerfinu, alls
800 milljónir króna.
Nýtt þriggja þrepa tekjuskatts-
kerfi. Ráðstöfunartekjur láglauna-
fólks hækka um 120 þúsund á ári.
Bensíngjald mun hækka um 2,5%.
Fjárheimild á
næsta ári fyrir sjúkra-
þjálfun, iðjuþjálfun og
talþjálfun er áætluð
5,8 milljarðar og
lækkar um 83,3
milljónir króna frá
gildandi fjárlögum að
frátöldum almennum
launa- og verðlags-
breytingum.
Jákvætt fyrir
heimilin
Neikvætt fyrir
heimilin
Örorkulífeyrir hækkar
um 3,6 prósent og verður
265.044 krónur fyrir skatt.
Er það 86 þúsund krónum
undir lágmarkstekjum.
Útgjöld ríkisins vegna lengingar fæðingarorlofs í 12
mánuði munu aukast
um 1,9 milljarða og
verða 19 milljarðar á næsta ári.
Vöru gjöld
af bensíni,
á fengis gjald,
tóbaks gjald og
olíu gjald munu
hækka um
2,5 prósent á
næsta ári.
Framlög til
atvinnuleysis
bóta hækka um
23 milljarða
króna.
Þingið geti breytt stjórnarskránni
„Þessi sam kunda getur tekist á við stór og mikil væg
mál og breytt stjórnar skrá með skyn sam legum
hætti með al manna hags muni að leiðar ljósi,“ sagði
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í stefnuræðu
sinni á Alþingi í gær.
Þannig gæti þingið sett inn í stjórnar skrána
á kv æði um að auð lindir sem ekki eru háðar einka
eignar rétti verði þjóðar eign og fleiri á kvæði, til
dæmis um um hverfis og náttúru vernd, þjóðar
at kvæða greiðslur og þjóðar frum kvæði. „Ég vona
sannar lega að þingið standist þetta próf og taki
hina efnis legu um ræðu um málið. Ég vil ekki að
þetta mál festist í hjól förum liðinna ára og ára tuga.
Við höfum nú tæki færi til að horfa til fram tíðar og
taka góðar á kvarðanir fyrir komandi kyn slóðir.“
Samfylking leiði næstu ríkisstjórn
„Á tímum lofts lags ham fara og heims far aldurs
höfum við ekki efni á því að leyfa hug mynda fræði
Sjálf stæðis flokksins og fjár mála stefnu hægri
manna að ráða för. Það er ein fald lega allt of mikið í
húfi,“ sagði Logi Einarsson, formaður Samfylkingar
innar, í umræðum á Alþingi í gær. Hlutverk flokksins
sé að leiða saman þau öfl sem vilji fylkja sér um
vinnu, vel ferð og græna fram tíð og mynda græna
fé lags hyggju stjórn eftir næstu þingkosningar.
„Við stöndum and spænis gríðar lega flóknum
verk efnum sem verða ekki öll leyst á stuttum
tíma. En fyrsta skrefið er að skipta um kúrs, snúa
skútunni frá hægri og hrista af okkur gamal dags
kreddur um það hvernig ríkis fjár mál virka og
hvernig verð mæti verða til,“ sagði Logi.
STJÓRNMÁL Stefnt er að heildarend-
urskoðun fjölda stórra lagabálka á
síðasta þingi þessa kjörtímabils sem
sett var í gær. Samkvæmt þingmála-
skrá ríkisstjórnarinnar sem birt
var í gærkvöldi verður frumvarp til
nýrra jafnréttislaga lagt fram strax
í október, en þau eiga að koma í
stað laga frá 2008 um jafna stöðu
og jafnan rétt kvenna og karla. Þá
verður einnig mælt fyrir nýjum
lögum um stjórnsýslu jafnréttis-
mála. Frumvarp til nýrra laga um
fæðingar- og foreldraorlof verður
einnig lagt fram í þessum mánuði
auk nokkurra frumvarpa á sviði
barnamála, þar á meðal ný heildar-
lög um barnavernd.
Í janúar mun fjármálaráðherra
mæla fyrir nýjum heildarlögum
um skipan opinberra framkvæmda
og fasteignaumsýslu ríkisins, auk
endurskoðunar á lagaákvæðum
um lánaumsýslu ríkissjóðs og ríkis-
ábyrgðir sem koma á til þingsins
eftir áramót.
Heimsfaraldurinn setur svip á
þingmálaskrána en þar er meðal
annars vikið að endurskoðun laga
um almannavarnir og sóttvarna-
laga. Heilbrigðisráðherra mun
einnig mæla fyrir tillögu um að sett
verði á fót landsráð um mönnun og
menntun í heilbrigðiskerfinu.
Ný skipalög og heildarlög um
áhafnir skipa eru á þingmála-
skránni, auk nýrra sérlaga um
f lugvelli og nýrra heildarlaga um
loftferðir. Þá verður frumvarp um
heildarendurskoðun fjarskiptalaga
endurflutt.
Fjölmargar breytingar eru fyrir-
hugaðar á lögum tengdum refsi-
vörslukerfinu.
Heilbrigðisráðherra hyggst efna
loforð sitt um afnám refsinga fyrir
vörslu neysluskammta og dóms-
málaráðherra mun mæla fyrir
breytingum á nokkrum ákvæðum
almennra hegningarlaga, þar á
meðal um umsáturseinelti, kyn-
ferðislega friðhelgi og bann við
töku og birtingu á nærgöngulu og
kynferðislegu efni, endurskoðun
ákvæðis um mansal, þyngri refsing-
ar fyrir kynþáttafordóma og fleira.
Þá er stefnt að því að bæta rétt-
arstöðu brotaþola í refsivörslu-
kerfinu, endurskoða ákvæði um
bætur fyrir ólöglega handtöku og
sambærilegar íþyngjandi ráðstaf-
anir og tryggja betur eftirlit með
störfum lögreglu. Einnig er stefnt
að því að endurskoða lagaákvæði til
samræmis við dóma Mannréttinda-
dómstólsins um tvöfalda refsingu í
skattamálum.
Dómsmálaráðherra boðar einn-
ig frumvarp um útvíkkun á kæru-
leiðum til Hæstaréttar auk annarra
breytinga á lögum um dómstóla og
lögum um lögmenn. Þar á meðal um
endurmenntun, námsleyfi og notk-
un fjarfundabúnaðar við meðferð
dómsmála. adalheidur@frettabladid.is
Frá umræðu um stefnuræðu forsætisráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
2 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð