Fréttablaðið - 02.10.2020, Síða 6
NORÐURLAND Byggðaráð Norður
þings hefur ákveðið að styrkja
Krabbameinsfélag Akureyrar og
nágrennis um 250 þúsund krónur.
Félagið sendi út neyðarkall fyrir
skemmstu vegna bágrar fjárhags
stöðu.
Félagið hafði þegar leitað til
sveitarfélaganna í Eyjafirði, sem eru
á þeirra eigin þjónustusvæði. Höfn
uðu bæði Akureyrarbær og Fjalla
byggð því að styrkja félagið sem
hefur einnig leitað til fyrirtækja á
svæðinu.
Þjónustusvæði Krabbameins
félags Akureyrar og nágrennis nær
austur til Fnjóskadals en Þingey
ingar eiga eigið félag, Krabbameins
félag SuðurÞingeyinga, sem stofnað
var árið 1968. Einnig hefur verið
leitað til Krabbameinsfélags Íslands
um stuðning en það félag hefur stutt
við bakið á Akureyringum um
langa hríð.
Félagið veitir þeim sem greinst
hafa með krabbamein og aðstand
endum þeirra stuðning, meðal ann
ars í formi viðtala hjá fagaðilum og
námskeiða. Eins og kom fram í máli
Mörtu Kristínar Jónsdóttur, stað
gengils framkvæmdastjóra, í síð
ustu viku mun rekstrarfé félagsins
klárast í febrúar að óbreyttu. – khg
Krabbameinsfélag
Akureyrar sendi út neyðar-
kall fyrir skemmstu vegna
bágrar fjárhagsstöðu.
REYKJAVÍK Starfsmenn borgarinnar
hafa á tíu mánaða tímabili notið
veitinga fyrir rúmar 800 þúsund
krónur á Vinnustofu Kjarvals. Þetta
kemur fram í svari borgarritara við
fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur,
borgarfulltrúa Miðflokksins, sem
lögð var fram á fundi borgarráðs í
júní á þessu ári.
Starfsmenn á skrifstofu Reykja
víkurborgar hafa aðgang að Vinnu
stofu Kjarvals, sem er vinnu og
samkomurými við Austurvöll, í
gegnum sérstakan samning sem
borgin hefur gert við eigendur
vinnustofunnar. Reykjavíkurborg
greiðir alls 1,6 milljónir króna fyrir
ársaðgang starfsfólksins. Kostnað
urinn sem um ræðir í svari við fyrir
spurn Vigdísar er umfram aðgangs
kostnað. Í aðgangi að vinnustofunni
felst kaffi úr vél og kolsýrt vatn en
greitt er fyrir sérgerða kaffidrykki,
gosdrykki og aðrar veitingar, þar
með talið áfenga drykki.
Samkvæmt svari borgarritara er
um að ræða kostnað vegna veitinga
á starfsdögum, starfsþróunarsam
tala, funda, námskeiða og ráðstefna
á tímabilinu 1. nóvember 2019 til 31.
ágúst 2020, hjá þeim starfseiningum
borgarinnar sem eru með aðgangs
kort, samtals 821.088 krónur.
Mestan kostnað má rekja til
Þróunar og nýsköpunarsviðs, um
270 þúsund krónur, því næst til
Skrifstofu borgarstjóra og borgar
ritara, tæpar 155 þúsund krónur, og
rúmar 120 þúsund krónur til Menn
ingar og ferðamálasviðs. Minnstan
kostnað, 1.800 krónur, má rekja til
Umhverfis og skipulagssviðs. Þá
er Velferðarsvið með kostnað upp
á rúmar 120 þúsund krónur vegna
jólaboðs en sviðið er ekki með
aðgangskort á Vinnustofu Kjarvals
„og því er ekki um umframkostnað
að ræða“.
Samkvæmt borgarritara var
aðstaðan á vinnustofunni vel nýtt
þar til kórónaveirufaraldurinn skall
á en hefur ekki verið notuð í jafn
miklum mæli eftir að samkomu
takmarkanir tóku gildi. Samningur
borgarinnar og vinnustofunnar
rennur út í nóvember á þessu ári en
um eins árs tilraunaverkefni er að
ræða. Þá verður metið hvort verk
efninu verði haldið áfram. – bdj
Starfsfólk borðað og drukkið fyrir hundruð þúsunda á Kjarval
Listería hefur ekki
fundist í lokaafurð-
inni eftir að september gekk
í garð.
Björn Hembre,
forstjóri Arnarlax
FISK VINNSL A „ Arnarlax hefur
til skamms tíma séð aukningu í
jákvæðum sýnum en vinnur kerfis
bundið með listeríu dag hvern til
að hafa stjórn á henni,“ segir Björn
Hembre, forstjóri fiskeldisfyrir
tækisins Arnarlax, sem glímt hefur
við enduteknar listeríusýkingar í
vinnslustöð sinni á Bíldudal.
Að sögn Dóru S. Gunnarsdóttur,
sviðstjóri neytendaverndar og fisk
eldis hjá Matvælastofnun (MAST),
hefur hjá Arnarlaxi verið um að
ræða listeríu monocytogene sem
sé sú tegund listeríu sem valdið geti
sýkingum. Dóra segir Arnarlax eins
og önnur slík fyrirtæki sjálft annast
sýnatöku og tilkynna til Matvæla
stofnunar í hvert skipti sem listería
greinist í framleiðsluumhverfinu
eða í hráefni sjálfu sem er ferskur
lax.
„Við höfum verið að fá töluvert af
tilkynningum í sumar. Þegar það
gerist erum við í samskiptum við
fyrirtækið og þeir upplýsa okkur
um til hvaða aðgerða þeir grípa. Þeir
hafa gripið til mjög umfangsmikilla
aðgerða hvað varðar þrif og endur
bætur. Síðasta tilkynningin sem
kom var vegna sýnis frá 26. ágúst,“
segir Dóra. Arnarlax hafi stöðugt
unnið að lausn vandans og lagt fram
lýsingu á því. Líti út fyrir að hafa tek
ist það, í bili að minnsta kosti.
Bæði Dóra og Björn, forstjóri Arn
arlax, benda á að listeríu monocyto
gene sé að finna úti í náttúrunni.
„Þess vegna getur hún og mun
koma inn á alla framleiðslustaði
sem taka inn hrávöru utan frá. Þegar
list ería finnst er erfitt að segja til
um hvernig hún barst inn í vinnslu
húsið,“ undirstrikar Björn.
Hjá Arnarlaxi er að sögn Björns
unnið eftir sundurliðaðri áætlun til
að hindra að listería komi upp.
„Þegar við uppgötvum listeríu í
framleiðslunni þá tilkynnum við
það til MAST eins og okkur ber
skylda til. Öll tilfelli í bæði fram
leiðslunni og í vinnslustöðinni hafa
verið tilkynnt. Við eigum einnig
í samtali við viðskiptavini okkar
þegar þetta gerist til að koma í veg
fyrir að framleiðslan fari til reyking
ar eða í sushi,“ útskýrir forstjórinn.
Aðspurð hvaða hætta fólki stafi af
listeríu monocytogene segir Dóra að
bakterían fjölgi sér helst í reyktum
og gröfnum laxi á geymslutímanum
í kæli en ekki í ferskum laxi. „Hún
getur verið hættuleg fyrir viðkvæma
neytendur. Það er þá í matvælum
sem eru tilbúin til neyslu, hún er
ekkert hættuleg í hráum fiski sem
við ætlum að sjóða,“ segir Dóra.
Björn segir sömuleiðis að list
ería monocytogene getir valdið
skaða hjá vissum hópum. „Það er til
dæmis hjá barnshafandi konum og
fólki með skert ónæmiskerfi. Þess
vegna er mælst til þess að þessir
hópar borði ekki reyktan eða hráan
lax. Á sama hátt er fólki ráðlagt að
borða ekki hrátt svínakjöt vegna
trichinaeinnihalds,“ útskýrir Björn.
Sem fyrr segir hefur verið aukn
ing í listeríusýkingum hjá Arnar
laxi. „Við tökum nú fjölda sýna
daglega, bæði úr framleiðsluum
hverfinu og úr framleiðslunni. List
ería hefur ekki fundist í lokaafurð
inni eftir að september gekk í garð,“
segir Björn. „Þetta hefur ekki haft
nein markverð áhrif á starfsemina,“
svarar forstjórinn síðan aðspurður
um tjón sem listeríusýkingar hafi
valdið Arnarlaxi. gar@frettabladid.is
Arnarlax reynir að vinna bug
á ítrekuðum listeríusýkingum
Forstjóri Arnarlax segir endurteknar listeríusýkingar í vinnslustöð laxeldisfyrirtækisins á Bíldudal ekki
hafa haft umtalsverð áhrif á starfsemina. Matvælastofnun segir töluvert hafa borist af tilkynningum í
sumar frá Arnarlaxi sem gripið hafi til aðgerða. Listería er fyrst og fremst hættuleg fyrir viðkvæma hópa.
Alvarleg áhrif fyrir
viðkvæma hópa
Listeria monocytogenes
getur orsakað sjúkdóm bæði hjá
mönnum og dýrum og kallast
þessi sjúkdómur listeriosis.
Einkenni sjúkdómsins eru mild
flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti
og stundum ógleði og niður-
gangur. Alvarlegri einkenni eru
heilahimnubólga í ungbörnum,
blóðeitrun og getur sjúkdómur-
inn einnig valdið fósturláti. Í ein-
staka tilfellum getur bakterían
valdið dauða, þá er yfirleitt
um að ræða einstaklinga sem
eru með skert ónæmiskerfi.
Áhættuhópar eru aldraðir,
barnshafandi konur, ófædd og
nýfædd börn og einstaklingar
með skert ónæmiskerfi. Hóp-
sýkingar af völdum L. monocy-
togenes eru mjög sjaldgæfar,
oftast er um að ræða einstakl-
ingssýkingar.
Af vef Matvælastofnunar
Laxeldiskvíar úti fyrir Bildudal þar sem listería hefur í sumar verið þrálát í vinnsluhúsi Arnarlax. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SKIPULAGSMÁL „Friðlýsing svæðis
ins má á engan hátt hafa áhrif á eða
koma í veg fyrir lagningu Sunda
brautar,“ segir í umsögn bæjarráðs
Mosfellsbæjar vegna áforma Minja
stofnunar um að friðlýsa menn
ingar og búsetulandslag í Þerney
og Álfsnesi.
Bæjarráð Mosfellsbæjar segir
Sundabraut vera afar mikilvæga
samgöngubót og nauðsynlega veg
tengingu til lengri tíma litið fyrir
höfuðborgarsvæðið allt.
„Þá má færa fyrir því rök að
Sundabraut hafi jákvæð áhrif á
svæðið, með tilliti til möguleika á
útivist og annarri nýtingu almenn
ings á svæðinu,“ segir bæjarráðið
sem einnig minnir á að Mosfells
bær hafi „almennt verið mótfallinn
því að Reykjavíkurborg skipulegði
iðnaðarsvæði fyrir mengandi starf
semi“ á mörkum sveitarfélaganna.
„Umfangsmikill iðnaður á ekki
heima í útjaðri byggðar í Mos
fellsbæ, í beinni sjónlínu frá helstu
útivistarsvæðum bæjarins.“ – gar
Friðun megi
ekki ógna
Sundabraut
Mosfellsbær og Sundin.
UMHVERFISMÁL Umhverfisstofnun
fylgist grannt með finnskri rann
sókn um mögulegt innihald óhollra
efna í rúmdýnum og verður þeim
upplýsingum miðlað til almennings
þegar þær liggja fyrir.
Þetta kemur fram í svari Guð
mundar Inga Guðbrandssonar
umhverfisráðherra við fyrirspurn
Ara Trausta Guðmundssonar, þing
manns Vinstri grænna. Fréttablaðið
ræddi í fyrra við konu sem taldi lík
legt að rúmdýna væri uppspretta
veikinda sinna, hurfu veikindin
þegar dýnan var fjarlægð af heimili
hennar. Í kjölfarið beindi Umhverf
isstofnun því til neytenda að lofta
vel um dýnurnar sínar þegar þær
eru keyptar.
Í svarinu segir að ráðuneytið hafi
skoðað málið síðustu þrjú ár í sam
starfi við Umhverfisstofnun. Engar
sjálfstæðar kannanir af hálfu opin
berra stofnana hafi verið gerðar, en
hafið sé verkefni við að uppfæra
leiðbeinandi kynningarefni um
inniloft, þar sem vinna síðustu ára
verði höfð til hliðsjónar. – ab
Fylgjast með
dýnurannsókn
Ari Trausti Guð-
mundsson, þing-
maður VG
Dóra S. Gunnars-
dóttir, sviðsstjóri
neytendaverndar
og fiskeldis hjá
Matvælastofnun
Fá styrk úr óvæntri átt
Upphæðin á tíu mánaða
tímabilinu nemur alls
821.088 krónum.
2 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð