Fréttablaðið - 02.10.2020, Page 20

Fréttablaðið - 02.10.2020, Page 20
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Þann 1. nóvember næst-komandi taka gildi ný lög um hlutdeildarlán, en það er nýtt úrræði fyrir tekju- og eignaminni einstaklinga sem á að auðvelda þeim að komast inn á fasteignamarkaðinn. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) fer með vinnslu og afgreiðslu hlutdeildarlána og hefur opnað nýjan vef, hlutdeildarlan.is, þar sem allar helstu upplýsingar um úrræðið er að finna. Starfsfólk stofnunarinnar segist spennt að hefja nýjan kaf la í sögu fasteigna- viðskipta hér á landi. „Þegar Lífskjarasamningar voru samþykktir lýsti ríkis- stjórnin því yfir að unnið yrði með aðilum vinnumarkaðarins að því að finna skynsamlegar leiðir og útfærslur til að auð- velda ungu fólki og tekjulágum fyrstu fasteignakaupin,“ segir Anna Guðmunda Ingvars- dóttir, aðstoðarforstjóri HMS. „Á þessum grundvelli var unnið að nýju úrræði til að hjálpa tekju- og eignaminni fyrstu kaupendum að brúa bilið við fasteignakaup. Þann 3. september samþykkti Alþingi svo frumvarp félagsmála- ráðherra um hlutdeildarlán og lögin taka gildi 1. nóvember næst- komandi, en í kjölfar þess verður opnað fyrir umsóknir,“ segir Anna. „Starfsmenn HMS vinna nú að innleiðingu hlutdeildarlána og við hlökkum mikið til að hefja þennan nýja kaf la í sögu fasteignaviðskipta á Íslandi. Við erum líka mjög meðvituð um hversu mikilvægt það er að vel takist til við innleiðinguna,“ bætir hún við. Einföld skilyrði „Hlutdeildarlán er úrræði sem hjálpar þeim sem þurfa aðstoð við að komast inn á fasteigna- markaðinn og hafa ekki haft tök á að safna nægu eigin fé til að kaupa sína fyrstu fasteign,“ segir Anna. „Þeir sem falla þar undir eru tekjulágir fyrstu kaupendur og þeir sem ekki hafa átt fast- eign síðastliðin fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum. Hlutdeildarlán munu hjálpa við- skiptavinum okkar að byggja upp eigið fé, í stað þess að vera fastir á leigumarkaði eða í foreldra- húsum. Kaupandi þarf einungis að leggja fram 5% eigið fé, fær 20% hlutdeildarlán og 75% húsnæðis- lán,“ útskýrir Anna og bætir við: „Það þarf að standast greiðslumat vegna húsnæðislánsins og það er líka skilyrði að meðalaf borg- anir af fasteignalánum fari ekki yfir 40% af ráðstöfunartekjum kaupandans, þannig að húsnæð- iskostnaður verði ekki verulega íþyngjandi. Það þarf ekki að greiða af hlut- deildarláninu á lánstímanum, sem gerir það að verkum að lántakar ná frekar að standast greiðslumat heldur en ef á móti væri tekin viðbótarfjármögnun, sem oftar en ekki er á töluvert háum vöxtum og til styttri tíma en grunnhúsnæðislán,“ segir Anna. „Að sama skapi gefur það lántökum tækifæri til þess að Hlutdeildarlán, nýtt úrræði fyrir þá tekju- og eignaminni Í byrjun nóvember taka gildi ný lög um hlutdeildarlán, en þau eiga að auðvelda tekju- og eigna- minni einstaklingum að eignast fasteignir. HMS veitir lánin og mun ráðleggja lántakendum. Anna Guð- munda Ingvars- dóttir, að- stoðarforstjóri HMS, segir að hlutdeildarlán- in marki nýjan kafla í sögu fasteignavið- skipta á Íslandi og starfsfólk stofnunarinnar sé spennt að hefja hann. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Verð húsnæðis: Hlutdeildarlán (20%) Húsnæðiskaup 40 m.kr. Sala eftir hækkun Sala eftir lækkun 45 m.kr. 35 m.kr. Hlutdeildarlán 8 m.kr. Endurgreiðsla: 9 m.kr. Endurgreiðsla: 7 m.kr. greiða frekar inn á húsnæðis- lánið sitt á lánstímanum og hraða eignamyndun sinni.“ Anna tekur fram að hlut- deildarlán verða aðeins veitt til þess að kaupa hagkvæmar íbúðir, en skilgreiningin á því hvað telst hagkvæm íbúð liggur ekki enn fyrir. „Nú stendur yfir vinna hjá félagsmálaráðuneytinu við að skilgreina þessa hagkvæmni út frá stærðar- og verðmörkum, en herbergjafjöldi íbúða þarf að mið- ast við stærð og þarfir fjölskyldu umsækjanda,“ segir hún. „Búast má við að tillögur um reglugerð varðandi þetta verði birtar á næstunni.“ Veita lántökum ráðgjöf Hlutdeildarlán eru veitt til 10 ára, en að þeim tíma loknum er hægt að framlengja lánstímann um fimm ár í senn, en þó ekki til lengri tíma en 25 ára í heildina. „Við hjá HMS munum fylgjast vel með okkar lántökum og ráð- leggja þeim um möguleika út frá stöðunni hverju sinni. Við veitum ráð um hvort skynsamlegt sé að greiða inn á húsnæðislánið eða hlutdeildarlánið og hvenær er ráð að endurfjármagna það, allt með það fyrir augum að þessi húsnæðisstuðningur stjórnvalda nýtist viðkomandi sem best og nýtist einkum þeim sem á honum þurfa að halda,“ segir Anna. „Það er hlutverk HMS að stuðla að því að landsmenn geti búið við öryggi og jafnrétti í húsnæðismálum og að auka möguleika fólks til að eignast eða leigja húsnæði á við- ráðanlegum kjörum. Hlutdeildarlán er öf lug við- bót í verkfærakistuna okkar og við bindum miklar vonir við að úrræðið muni ekki aðeins verða til þess að hjálpa tekjulægri fyrstu kaupendum inn á fasteigna- markaðinn, heldur einnig stuðla að aukinni uppbyggingu hag- kvæmra íbúða um allt land og vinna þannig á móti samdrætti í byggingariðnaði,“ segir Anna að lokum. Frekari upplýsingar um hlutdeildarlánin er að finna á vefnum hlutdeildarlan.is. 2 KYNNINGARBLAÐ 2 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RFYRSTA HEIMILIÐ - HLUTDEILDARLÁN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.