Fréttablaðið - 02.10.2020, Side 24
Birgisson er fjölskyldufyrirtæki með metnað og hefð fyrir glæsilegu vöruúrvali
á góðu verði,“ segir Þórarinn
Gunnar Birgisson, framkvæmda
stjóri Birgisson ehf. „Í sýningarsal
okkar í Ármúla 8 leggjum við
mikla áherslu á góða og fal
lega vöru uppstillingu, frábæra
þjónustu og gott verð. Við sérhæf
um okkur í sölu á parketi, f lísum
og hurðum en bjóðum einnig upp
á sérhæfðari vörur eins og utan
hússklæðningar, sundlaugaf lísar,
hljóðdempandi loft og vegg
klæðningar ásamt kerfisloftum.
Vistvæn framleiðsla
Birgisson ehf. býður upp á eitt
mesta úrval landsins af umhverf
isvottuðu harðpark eti frá þýska
framleiðandanum Kronotex og
umhverfis vottuðu viðarparketi
frá sænska framleiðandan um
Kährs.
„Við finnum fyrir auknum
kröfum neytenda um að vörur og
framleiðsla séu umhverfisvænar.
Allt okkar harðparket er vottað
með bláa englinum og viðarpark
etið Svansvottað,“ segir hann.
„Við reynum einnig að leggja
okkar af mörkum í að minnka
kolefnisspor fyrirtækisins, þetta
gerum við meðal annars með
f lokkun á úrgangi og með því að
koma öllu okkar plasti í endur
vinnslu hjá Pure North Recycling í
Hveragerði,“ segir Þórarinn.
„Við erum þekkt fyrir að vera
með gríðarlega mikið vöruúrval
og þá sérstaklega í harðparket
inu,“ segir Þórarinn. „Hjá okkur er
hægt að fá fallegt 8 mm harðpark
et á mjög hagstæðu verði og allt
upp í 14 mm harðparket í stórum
borðum sem þolir mikið álag.“
Þórarinn bendir á að margir
haldi að harðparket sé svokallað
„plastparket“ og að uppi staðan í
því sé mestmegnis plast.
„Í raun er harðparket 90%
umhverfisvænn viður. Yfirborðs
lagið er úr plasti og þar af leiðandi
mjög slitsterkt.“
Meiri áhersla á bætta
hljóðvist heimila
Í gegnum árin höfum við lagt
ríka áherslu á gott hljóðdemp
andi undirlag undir gólfefni.
Nýbreytni hjá okkur í þeim
efnum er umhverfis vottuð fram
leiðsla á undirlagi. Í takt við nýja
strauma, aukna notkun á f lísum
og öðrum harðari gólfefnum,
léttari innréttingum og opnum
rýmum þarf að hugsa skrefinu
lengra.
Okkar framlag til bættrar hljóð
vistar er rimlaloft og veggklæðn
ingar frá danska framleiðand an
um AcuWood. Plöturnar koma
í 60x240 cm, einfaldar í upp
setningu og geta bætt hljóðvist ina
um allt að 50%, sem er með því
besta sem gerist í hljóðdempun á
markaðnum.
Samhliða harðparketi er einnig
mikið úrval hjá Birgisson ehf. af
fallegu viðarparketi og gegn
heilu eikarparketi í mismunandi
stærðum sem má einnig leggja í
síldarbeinsmunstur.
„Við hófum nýverið samstarf
við þýska fyrirtækið Osmo.
Þeir bjóða upp á heildarlausnir
þegar kemur að meðhöndlun og
viðhaldi á viðargólf um,“ segir
Þórarinn. „Þar erum við mest að
notast við vaxolíu, hún sameinar
kosti lakks og olíu og myndar
sterka filmu á yfirborði parkets
ins. Þessi vaxolía býður upp á
mikla möguleika við litun og
áferðarval á viðargólf um og er allt
ferlið mjög einfalt.“
Þórarinn hvetur áhugasama
til að gera sér ferð í verslunina og
skoða úrvalið með eigin augum.
Viðskiptavinurinn ávallt í fyrsta sæti
Birgisson ehf. býður eitt mesta úrval landsins af hágæða parketi, flísum og innihurðum. Fyrir-
tækið leggur ríka áherslu á samfélagslega ábyrgð, umhverfisvottaðar vörur og framleiðslu.
Þórarinn Gunnar Birgisson, fram-
kvæmdastjóri Birgisson ehf.
Þær eru glæsilegar flísarnar frá Florim Amini Bronze sem slegið hafa í gegn. Veggklæðningarnar frá AcuWood bæta hljóðvist um allt að 50%.
Vaxolían frá Osmo býður upp á
marga spennandi möguleika.
Birgisson býður upp á úrval parkets sem leggja má í síldarbeinsmunstur.
6 KYNNINGARBLAÐ 2 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RFYRSTA HEIMILIÐ - GÓLFEFNI OG HURÐIR