Samtökin '78 - Samtakafréttir - 01.12.1999, Síða 14
heimsfréttir
MEÐ ÍKORNA Á
HÆLUNUM
Ný tækni ryður sér til
rúms
Breskur uppfinningamaður,
sem ætlar sér að auðgast á
þörfum samkynhneigðra fyrir
ástir og atlot í köldum heimi,
hefur fundið upp radar sem
gerir eigendum kleift að finna
sína líka. Eins og innilegt
augnaráð nægi nú ekki leng-
ur! Uppfinningin er á stærð
við eldspýtustokk og nefnist
„Gaydar". Með Gaydarinn í
vasanum verður að sögn allt
annað líf að versla inn í stór-
mörkuðum, ferðast um torg
og stræti og finna sér lífsföru-
naut á vinnustað. Þegar hand-
hafi gaydarsins nálgast aðra
samkynhneigða manneskju
byrjar apparatið að tísta lágt,
að því tilskildu að viðkomandi
sé líka með sams konar tæki í
vasanum og sé að minnsta
kosti ekki fjær en sem svarar
átta metrum. Tækið er ódýrt í
framleiðslu og mun líklega
kosta sem svarar 3000 kr. á
markaði í Bretlandi.
Ýmsir alvarlegir gallar
hafa þegar komið fram á
Gaydarnum. Við fyrstu til-
raunir í Bretlandi tóku greif-
ingjar og íkornar á rás eftir
handhafa tækisins og í annan
stað varð tækinu á að ræsa
sírenur í sjúkra- og lögreglu-
bílum með hljóðbylgjusend-
ingum, en þessi byrjunar-
vandræði hafa verið leyst.
Enn er þó ýmsum spurning-
um ósvarað. Hvernig á að
koma í veg fyrir að gagnkyn-
hneigðir spilli nú ekki fyrir
okkur með því að næla sér í
tæki - af einskærri þórðar-
gleði? Og hvernig á að greina
sundur lesbískt píp og
hommapíp? Tístandi tæki yrði
varla nokkurri lesbískri frú til
gleði við grænmetisborðið í
Nýkaupum ef þeir sem fram-
kalla tístið eru eintómir herr-
ar. Sérfræðingar hafa bent á
að hér þarf alltént tvær rásir
og jafnvel fleiri ef hægt á að
vera að rata með Gaydarnum
í frumskógi nútímans.
ÞK/ZINK
FYRSTA MOSKA SAMKYNHNEIGÐRA í HEIMINUM
Islam tekur hart á samkynhneigð og óvíða í heiminum mæta mönnum grimmilegri
refsingar ef múslimar gera opinskátt um hneigðir sínar til eigin kyns. Lausn þúsunda
lesbía og homma úr yfirstéttum og millistéttum er að yfirgefa heimalöndin og setjast
að í Evrópu eða Norður-Ameríku. Það olli mikilli reiði í heimi islams á þessu ári þegar
fram kom í hollenska tímaritinu Gay Krant að Sidi Moulay Muhammed, hinn nýi kon-
ungur Marokkó, væri hommi og áður fyrr þekktur maður á skemmtistöðum samkyn-
hneigðra í Brussel þar sem hann stundaði nám. Ekki mun kynhneigð konungsins,
sem nú er 36 ára, vera neitt launungarmál meðal menntaðs fólks í heimalandi hans
og sagt er að af þessum sökum hafi lögregla og her landsins eindregið viljað að
hann fæli völdin yngri bróður sínum, Moulay Rashid, sem samkvæmt heimildum ku
einungis vera upp á kvenhöndina. Marokkanskir innflytjendur í Hollandi hafa fyrr á
þessu ári fylkt liði til að mótmæla orðróminum sem þeir kalla argasta níð um hátign-
ina.
En múslimar standast ekki strauma tímans og gamlar kreddur eiga í vök að verj-
ast þar sem annars staðar. Hreyfingin Ipoth í Hollandi er menningarsamtök fólks frá
framandi þjóðum og hún vinnur nú að því að opna fyrstu samkynhneigðu moskuna í
heiminum. Sennilega mun moskan rísa í Amsterdam þar sem hommar og lesbíur
hafa lengur notið frelsis og almennrar mannvirðingar en annars staðar í heiminum -
jafnvel allt frá miðöldum. Borgarstjórnin í Amsterdam veitti nýiega jafngildi 200.000
króna til þess að hefja framkvæmdir við bygginguna. Ipoth-hreyfingin hyggst ekki
bíða eftir því að þjóðir islams blessi þessar nýstárlegu framkvæmdir heldur hefjast
strax handa.
ÞK/Gay Krant/Blikk
KAÞÓLSK REIÐI
Sjálfstjórnarhéraðið Kata-
lónía varð fyrst allra á Spáni
til þess að lögleiða staðfesta
samvist fólks af sama kyni
og nú nýverið gengu sams
konar lög í gildi í héraðinu
Aragon. Talsmenn kaþólsku
kirkjunnar á Spáni eru í upp-
námi yfir þessum ákvörðun-
um stjórnvalda og segjast
óttast siðferðilega upplausn
í öllum hinum kaþólska
heimi ef svo heldur fram
sem horfir. Spyrja þeir hvort
mök við dýr séu það næsta
sem stjórnmálamenn munu
samþykkja með lagasetning-
um!
Þetta kemur ekki síst illa
við kirkjuna í Ijósi þess að
hjónavígslum hefur fækkað
mjög á síðustu árum og
skuldinni skella talsmenn
hennar á spillta stjórnmála-
menn sem brugðist hafi
kjósendum sínum. Vatikanið
tók undir þetta á dögunum í
málgagni sínu L'Oss-
ervatore Romano og segir
nýju lögin á Spáni boða vax-
andi ónáttúru og siðferði-
lega ringulreið í kaþólskum
löndum.
ÞK/ZINK
IKEA 2000
Tæpur áratugur er síðan
IKEA í Bandaríkjunum tók
að höfða til samkyn-
hneigðra og litaðra, eftir að
hafa í myndum sínum alla
tíð lofsungið hvíta, gagn-
kynhneigða neytendur.
Smám saman hafa mark-
aðsfræðingar fyrirtækisins í
Evrópu áttað sig og játað
margbreytileika mannkyns innan veggja einkalífs-
ins. Á dögunum kom bæklingurinn IKEA 2000 út í
Evrópu og vakti mikla athygli. Þar má sjá gullfallega
konu af asískum ættum við tölvu í skrifstofuum-
hverfi, lítill svartur drengur skýtur upp kollinum á
einni síðunni og í eldhúsdeildinni bera tveir mynd-
arpiltar saman uppskriftir sínar í náinni snertingu. í
öðru eldhúsi má sjá glæsipíu af evrópskum ættum
við nýju innréttinguna sína en í sófanum þar hjá
kúrir - ekki karl heldur kona af öðrum kynþætti og
hagar sér alveg eins og heima hjá sér! Og IKEA-
fólkið gengur lengra í ögrun sinni við smáborgara-
skapinn með því að velja síðastnefndu myndinni
fyrirsögnina „Hið stílhreina eldhús".
Við bíðum spennt eftir bæklingi frá IKEA í Holta-
""IHBBF"' görðum á nýrri
öld. Hver veit
nema þeir hafi
frétt það að sam-
kynhneigðir þykja
allgóðir neytend-
ur nú á tímum.
ÞK/Þan
14 SAMTAKAFRÉTTIR