Samtökin '78 - Samtakafréttir - 01.12.1999, Blaðsíða 22

Samtökin '78 - Samtakafréttir - 01.12.1999, Blaðsíða 22
SOGSKALASYKIN Oft berast Samtakafréttum fyrirspurnir um það hvort ekki sé hægt að birta aftur valið efni frá liðnum árum úr þeim tímaritum sem Samtökin 78 hafa gefið út. Fjöl- margir minnast til dæmis þessarar greinar sem birtist í Sjónarhorni, blaði félagsins, árið 1992 og nefna hana fyrsta á óskalista yfir endurtekið efni. A það bæði við um konur og karla. Greinin nefnist á frummálinu „Clingus Dykus" og birtist fyrst ítímaritinu Deneuve árið 1991. Michele Fisher „Hvernig gekk ídag?" Það ættir þú best að vita, við erum búnar að vera saman í allan dag." Þetta er segin saga í heimi lesbía. (Brrrr! Brrrr!) „Halló . . . Nei, ég kemst ekki. Ég væri alveg til í að koma með, en Karen nennir ekki." Svona nokkuð er jafnsnar þáttur í menningu lesbía og Gertrud Stein. „Æ, mér finnst hún bara leiðin- leg." „Allt í lagi, ég er þá ekkert að um- gangast hana." Við sættum okkur ekki bara við svona lagað í parsamböndum okkar, heldur ætlumst við til þess. „Ég veit að ég lofaði að koma með. Hélt að Sigga þyrfti að vinna í kvöld . . . Nei, það þýðir ekkert fyrir mig að biðja hana um að koma með, hún þolir ekki þessa staði." Við erum að kæfa okkur í nafni ást- arinnar. Fyrirbærið nefnist „sogskála- sýki". Helmingur þeirra lesbía sem spurðar voru, viðurkenndu að þær þjáðust af henni. Hinn helmingurinn kvaðst ekki geta svarað fyrr en þær hefðu ráðfært sig við ástkonur sínar. Samfélag okkar lesbía er nefnilega í bullandi afneitun þegar sogskálasýkin er annars vegar. Reyndar er ástæða til þess að hrópa þrefalt húrra fyrir þér ef þú hefur lesið hingað í greininni. Þér er með öðrum orðum viðbjargandi. Tvær af systrum okkar, sem voru langt leiddar, lásu þessa grein saman. Önnur fletti blöðunum en hin fylgdist þegjandi með. Löng eru lesbísku árin Sogskálasýki er almennt talin eðlileg- ur þáttur tilhugalífsins. Hvað er rangt við svolitla samveru? Vaknið upp, stelpur! Við verjum meiri tíma með ástkonum okkar en ólétt kona með fóstri sínu. Við förum út á lífið þar til við finnum konu, leggjumst í híði með henni, sjúgum úr henni lífið og skilj- um síðan við hana. (Venjulega stend- ur skilnaðurinn lengur yfir en sjálft sambandið). Sogskálasýkin varð til þess að ég fór að miða lesbíska árið við árið á Júpíter, því fyrsta samband mitt við konu, sem stóð í fjögur ár, er í 22 SAMTAKAFRÉTTIR

x

Samtökin '78 - Samtakafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtökin '78 - Samtakafréttir
https://timarit.is/publication/1492

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.