Samtökin '78 - Samtakafréttir - 01.12.1999, Side 23
minningunni eins og tuttugu og
átta ár. Það er hámarkið að verja
fjórum árum með manneskju sem
þú hefur í rauninni ekkert að segja
við.
Ég skeini mig
Hvað veldur sogskálasýkinni. Ekki
veit ég. Ég er ekki sálfræðingur.
Kannski barnið innra með okkur sé
að berjast við stöðuga höfnunartil-
finningu. Kannski á hún rætur að
rekja til nestispakkans sem við
fengum í hádeginu allan guðslang-
an grunnskólann. Skiptir ekki máli.
Þegar ég er á göngu og uppgötva
að ég hef stigið í hundaskít, þá fer
ég ekki að velta því fyrir mér hvern-
ig hann komst á skóinn. Ég skeini
mig einfaldlega!
Eins og ég minntist á hér að
ofan þjáðist ég eitt sinn alvariega
af sogskálasýki. Við þáverandi kona
mín vorum svo þjáðar að fólk var
farið að rugla okkur saman. Við
sem vorum gjörólíkar! Seinni árin
okkar tvö voru ekkert nema
spenna, þras og orðaskak. Við
ákváðum að leita hjálpar hjá sál-
fræðingi. Hún sagði að við værum
of mikið saman og ráðlagði okkur
að bóka „einverustund" í hverri
viku. Þetta var fyrsta og síðasta
ferðin okkar til sálfræðings. Eftir
mánuð vorum við búnar að bóka
eintómar einverustundir" fjarri
hvor annarri.
Núna skil ég betur heimsku okk-
ar óupplýsta en velviljaða sálfræð-
ings. Að bóka einverustund? Ef
maður er svo mikið með annarri
manneskju að maður verður að
bóka sig - fyrir sjálfan sig - þá er
eins gott að átta sig á staðreyndun-
um. Þú ert sárþjáð af sogskálasýki.
Eina fólkið í heiminum sem á bók-
aða einverustund eru þeir sem hafa
verið dæmdir til að sitja í fangelsi.
Önnur persóna
fleirtölu?
Sjúkdómurinn er ekki aðeins
hættulegur og heimskulegur, hann
þreytir líka vinina. Þeir minnast
þeirra stunda með söknuði þegar
þú gast tekið sjálfstæðar ákvarðan-
ir og talaðir í fyrstu persónu ein-
tölu. Helsta einkenni sogskálasýk-
innar er einmitt orðaval eins og
„við" og „okkur" þar sem „ég"
væri betur við hæfi. Vinirnir verða
fúlir. Nema hvað? Lesbíum sem
þjást af sogskálasýki hættir til að
líta svo á að vinir séu ekki til annars
en að drepa tímann með þangað til
ný ástkona finnst. Svo vinirnir
hætta að láta sjá sig, en ef þeim
bregður fyrir þá þurfa þeir að gæta
tungu sinnar við hvert aukatekið
orð til þess að fitja ekki upp á
„neinu" sem gæti stuðað þína
hjartans vinu.
Framhjáhöld
á pósthúsinu
Margar konur sem ég hef rætt við
gera sér grein fyrir því að þær þjást
af sogskálasýki, en segjast óttast
breytingar. Óttast hvað? Erum við
hræddar við það að ef ástkonan
skreppur ein út á pósthús verði hún
ástfangin af ókunnugri konu á leið-
inni? Kannski er hún alls ekki á bíó
með vinunum heldur á trylltum
flótta úr landi. Og ef hún skyldi ráfa
ein út í sjoppu gæti runnið upp fyr-
ir henni hvílík hræðileg mistök það
voru að velja þig fyrir ástkonu.
Tólf spora bati
Allt þetta snýst um það að treysta
og stjórna. Ef þú treystir henni þá
þarftu ekki að stjórna henni. Og ef
þú treystir henni ekki þá hættir þú
fljótt að geta stjórnað henni. Ætli
hún sér að halda framhjá eða losna
við þig þá breytir sogskálasýkin
engu þar um. Hún eykur einungis
kvölina. Segir sú sem þekkir fyrir-
bærið.
Batinn snýst bara um tólf spor.
Næst þegar þið bregðið ykkur á
mannamót, labbaðu þá tólf spor í
burtu og fitjaðu upp á samræðum
við einhver annan. Einbeittu þér að
því að endurheimta fyrstu persónu
eintölu. Vertu ekki að rembast við
að hafa ástkonuna stöðugt í sjón-
máli, þá er miklu erfiðara að halda
þræði í samræðunum. Þetta er
skrýtið í fyrstu, en hugsaðu um
hvað ferðin heim verður ánægju-
leg. Þið tvær munuð hafa eitthvað
til að tala um. Bráðlega hætta vin-
irnir að spyrja: „Heyrðu, hvar er... ?"
þegar þú sést ein á ferð. Og viti
menn, allir litlu kækirnir hennar,
sem fara í taugarnar á þér, verða
aftur svo krúttlegir.
Byltingin lifi!
Dreymir þig um að verða byltingar-
sinnuð lesbía? Góða, leggðu frá
þér kröfuspjaldið. Slepptu því að
ganga í baráttufélag. En farðu í
uppáhaldsskyrtuna þína sem þú ert
hætt að ganga í af því að hún þolir
hana ekki. Hringdu í vinina sem þú
hefur vanrækt og farðu með þeim á
myndina sem hún vildi ekki sjá. Og
í guðs bænum, vertu ekki að spyrja
hana hvað hún ætli sér að gera á
meðan!
SAMTAKAFRÉTTIR 23