Samtökin '78 - Samtakafréttir - 01.12.1999, Qupperneq 27
1 tsk. vanilludropar
1 msk. hlynsíróp
1 bakki rifsber u.þ.b. 3 dl
1 stífþeytt eggjahvíta
Leggið matarlímsblöðin í bleyti í
kalt vatn í 5 mínútur. Hrærið upp
skyrið með sykri, tveimur mat-
skeiðum af rjómanum,vanillu-
dropum og hlynsírópinu. Þeytið
afganginn af rjómanum og bland-
ið honum varlega saman við skyr-
blönduna. Stífþeytið eggjahvítuna
með ögn af sykri og blandið
henni létt við. Kreistið vatnið úr
matarlíminu og leysið það upp í
tveimur matsk. af sjóðandi vatni.
Hellið því í mjórri bunu ofurvar-
lega saman við blönduna og
hrærið varlega í á meðan. Setjið
rifsberin í botn á fallegri skál og
hellið að síðustu blöndunni yfir.
Kælið í ísskáp í 1-2 tíma.
RIFSBERJAHLAUP
3 blöð matarlím
3 dl rifsber
1 dl vatn
1 dlsykur
2 tsk sftrónusafi
Setjið matarlímsblöðin í bleyti í kalt
vatn í 5 mín. Setjið rifsber, vatn,
sykur og sítrónusafa í pott og
hleypið upp suðu. Kreistið vatnið
úr matarlímsblöðunum og bræðið
þau í rifsberjablöndunni. Kælið að-
eins og hellið síðan hlaupinu yfir
drauminn. Kælið aftur í ísskáp í 1-2
tíma. Skreytið að lokum með þeytt-
um rjóma.
Að loknum frábærum kvöldverði,
áttum við svo saman notalega
kvöldstund, sveinki og ég við
kertaljós og klæðin rauð. Ég vakn-
aði upp morguninn eftir við kaffi-
ilm og Ijúfan koss á ennið. „Ósk-
irnar bara farnar að rætast strax"
umlaði ég og teygði úr mér. Hann
brosti og spurði mig hvað ég væri
gamall. Ég sagði honum það. Þeg-
ar hann svo loksins gat hætt að
hlæja, stundi hann upp með hlát-
urinn í brúnum augunum. „Orð-
inn þetta gamall og trúir ennþá á
jólasveininn." Ég hrökk upp úr
hugsunum mínum við það að
pjakkurinn frændi minn klappaði
saman lófunum og hrópaði hrúrra
yfir hetjudáðum Simba Ijónakon-
ungs. Frá litlu útvarpstæki í stofu-
horninu barst ómþýð rödd söng-
konu sem að söng laglínuna
„Jólasveinninn minn kemur í
kvöld" Ég brosti út að eyrum og
sagði hlæjandi við frænda „Maður
verður aldrei of gamall til að
hætta að trúa á jólasveininn."
,'ú
Jl
Hér eru nokkrar vefslóðir fyrir stelp-
urnar til að dunda við í jólafríinu.
Athugið að auðvitað er alltaf http://
á undan slóðinni. Góða skemmtun!
nit\í itdfmr!
www.amazon.com - Frábær netbókabúð með þúsundir
titla í boði fyrir lesbískt áhugasvið. Flottur vefur og auð-
velt og öruggt að versla á kortið sitt svo að jólabókin ætti
að vera auðfundin. www.sappho.com - Síða sem heiðrar
lesbíska list, nýja sem gamla. Þar er hægt að skoða lista-
verk eftir tímabilum eða listafólki, lesa Ijóð og fræðast um
lesbískar skáldkonur fyrr og nú. Vefurinn sjálfur er svo fal-
legur að hann er hreint listaverk. Á www.outtakes.net er
að finna ný kvikmyndayfirlit og umfjöllun um nýjar bíó-
myndir um og eftir lesbíur. Heimasíða Lauru nokkurrar á
www. hear-me-out.com er mjög skemmtileg . Þar er að
finna sögur úr daglega lífinu, flestar í gamansamari kant-
inum. Ef þið rífist um hvor ykkar á að vaska upp er þarna
að finna góð ráð. Fyrir andlegu iðkunina sem er svo við-
eigandi um jólin, er sniðugt að fara á www. gayandchrist-
ian.com Þar eru linkar á ýmsa pro-lesbian og pro-gay trú-
arlega vefi og slagorðið þeirra er gott: God is good to
those who are good to gay peopiei Þetta hlýtur Gunnar
að hafa frétt. Svo er skemmtilegt að fara á Dyke Action
Machine á mosaic.echonyc.com Þar geturðu reiknað út
hversu marga daga þú hefur verið lesbía og fundið út
hver er konan og hver er karlinn í sambandinu . . . haha-
ha! Ef þú hefur gaman af spjallrásunum er #Lesbian-
Europe mjög góð. Engir kanar og engir karlar,
leiðbeiningar er að finna á www.ecocities.com/West
Holiywood/Heights/8592
Lilja S. Sigurðardóttir
SAMTAKAFRÉTTIR 27