Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Qupperneq 5

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Qupperneq 5
AVORP 5 AFMÆLIS- KVEÐJA FORSETA ÍSLANDS, GUÐIMATH. JÓHANIMESSONAR, TIL SAMTAKANNA !78 Mikið er það vel til fundið hjá Samtökunum ’78 að fagna 40 ára afmæli sínu með útgáfu þessa veglega rits. Saga verður aldrei sögð í eitt skipti fyrir öll, aldrei skráð þannig að öllum líki og ekki verði um deilt. Aldrei verður til eínn sannleikur. En við verðum að leitast við að þekkja okkar fortíð, segja frá henni og öllum hennar blæbrigðum og álitamálum, horfa yfir víðan völl en skima líka inn í hvern krók og kima. Þannig getum við lært af því sem miður fór og einsett okkur að gera betur í framtíðinni. Þannig heiðrum við einnig minningu og atbeina þeirra sem börðust fyrir bættum heimi, gegn hleypidómum og kreddu, órétti, ógn og illsku. Saga hínsegin fólks á Islandi var lengstum saga þeírra sem ekki máttu tjá ást sína og þrár, leyfa sér að vera þeir sjálfir. Rétturinn til að þvinga og þröngva, sýna hatur og heíft, var ríkari réttinum til að elska og elskast í friði. Blessunarlega hefur okkur miðað í rétta átt. Á íslandi ríkir ástfrelsi og fólki er frjálst að tjá sig og skilgreina sína stöðu í samfélaginu að eigin vild. Þannig á það vera. Þannig virkar öflugt og heiðarlegt samfélag. Vissulega náum við víst aldrei að skapa paradís á jörð þar sem öllum líður eins vel og best verður á kosið, þar sem allir ná að njóta sín á eigin forsendum, í sátt við sig sjálfa og samborgara sína. En í þá átt þurfum við samt að stefna, rétt eins og við verðum að hafa sannleiksást að leiðarljósi þegar við rýnum í liðna tíð þótt við vitum fullvel að lokatakmarkið næst aldrei. Og alltaf steðja ógnir að. Stundum er það grátbroslegt hverníg fólk getur fyllst ótta við þá sem eru hinsegin - homma og lesbíur, trans fólk og aðra. En það getur líka verið ógnvekjandi, hættulegt, hræðilegt. Ótti kveikir stundum illsku. Gegn þeirri vá þurfa þeir að standa saman sem vilja verja samfélag laga og réttar, umburðarlyndis og samkenndar, frelsis og atorku. Fái reiði og heift að ríkja á einu sviði er hætt við að illa fari víðar. Áfram er því verk að vinna. Áfram þarf að berjast gegn ótta og ugg, gegn fordómum og fáfræði. Samt er það nú svo að róðurinn virðist sem betur fer sífellt léttari. Nú um stundir, fjórum áratugum eftir stofnun samtakanna, er staða hinsegin fólks í samfélaginu allt önnur og betri. Samtökin hafa einnig þróast og breyst. Innan þeirra er rúm fyrir alls kyns ágreining og áherslumun, enda væri það frekar öfugsnúið ef fjölbreytni og umburðarlyndi skipaði ekki öndvegi innan Samtakanna ’78. í hinni eilífu réttindavernd ber einmitt að varast að þröngsýni skjóti rótum þar sem síst skyldi, varast að sjálfsögð hagsmunagæsla leiði til þess að fólk verðí ofurviðkvæmt eða hörundsárt. Hinsegin fólk á auðvitað að ráða för sjálft í eigin sagnaritun og sjálfsskoðun. En það er eins og við hin, ófullkomið, misjafnt og breyskt. Þessar margslungnu línur ættu að sjálfsögðu að sjást í fortíðarspeglinum. Megi þetta rit ná þeim tilgangi að auka vitneskju okkar um Samtökin ’78, merka sögu þeirra og aðdáunarverða baráttu fyrir frelsi og jafnrétti, þekkingu og umburðarlyndi, okkur öllum til heilla.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1494

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.