Fréttablaðið - 21.11.2020, Page 4
BJÓÐUM UPP Á
35” - 40” BREYTINGARPAKKA
FRÁ BREYTINGARVERKSTÆÐI ÍSBAND
EIGUM FLESTAR GERÐIR TIL
AFHENDINGAR STRAX
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
RAM 3500
BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU
VERÐ FRÁ 7.547.906 KR. ÁN VSK.
9.359.403 KR. M/VSK.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
NÝ SENDING! LONGHORN ÚTGÁFA NÚ FÁANLEG
Bjarni Benediktsson
fjármála- og efna-
hagsráðherra
og formaður
Sjálfstæðis-
f lokksins
segir að hann
vilji leiða næstu
ríkisstjórn eftir
kosningarnar næsta
haust. Þetta kom fram á streymis-
fundi hans í vikunni þar sem fólki
gafst tækifæri á að senda Bjarna
spurningar. „Að sjálfsögðu hef ég
metnað til þess eftir kosningar að
mynda ríkisstjórn og leiða hana,
það er engin spurning,“ sagði
Bjarni.
Bergrún Íris Sævarsdóttir
rithöfundur
hlaut Barna- og
unglingabók-
menntaverð-
laun Vestnor-
ræna ráðsins
2020 fyrir bók-
ina Langelstur
að eilífu. Þetta var
tilkynnt í Norræna húsinu í Þórs-
höfn í vikunni. Verðlaunin eru
veitt annað hvert ár þar sem dóm-
nefndir í Færeyjum, á Grænlandi
og Íslandi tilnefna hver sitt verk til
verðlaunanna.
Erik Hamren
fótboltaþjálfari
stýrði sínum
síðasta landsleik
sem landsliðs-
þjálfari Íslands
gegn Englandi á
Wembley. Hann
lætur af störfum
um áramótin eftir
rúm tvö ár í starfi sem þjálfari
karlalandsliðsins í knattspyrnu.
Íslenska liðið lék með sorgar-
bönd til að heiðra minningu Pers
Hamrén, föður Eriks, sem lést á
sunnudagskvöld.
Þrjú í fréttum
Metnaður,
langelstur
og starfslok
6,6
mánuðir var meðalbiðtími á
biðlista á barna- og unglinga-
geðdeild Landspítalans í
október.
41,6
prósent Íslendinga telja sig
trúuð.
60
prósent fyrirtækja og stofnana
sem skulu hafa öðlast jafnlauna-
vottun fyrir áramót hafa lokið
innleiðingu.
36
prósenta aukning er á notkun
hljóðbóka frá því fyrir faraldur.
120
tonn af ýmsum óæski-
legum úrgangi berast ár hvert í
hreinsistöðvar í Reykjavík.
TÖLUR VIKUNNAR 15.11.2020 TIL 21.11.2020
FISKELDI „Við viljum ekki gera fjörð-
inn okkar að verksmiðju,“ segir
Þóra Bergný Guðmundsdóttir, íbúi
á Seyðisfirði. Hún hefur ásamt fleiri
íbúum hrundið af stað undirskrifta-
söfnun til að mótmæla laxeldi í
Seyðisfirði.
Skipulagsstofnun auglýsti í
byrjun vikunnar frummatsskýrslu
Fiskeldis Austfjarða um eldi í firð-
inum, en gert er ráð fyrir að ala
þar tíu þúsund tonn af laxi. 6.500
tonn af frjóum laxi og 3.500 tonn
af ófrjóum. Opið er fyrir umsagnir
og athugasemdir um skýrsluna til
28. desember næstkomandi.
Þóra segir meirihluta Seyðfirð-
inga andsnúna eldi í firðinum og að
vel hafi gengið að safna undirskrift-
um í fyrradag þegar gengið var í hús
í bænum. „Það eru alltaf einhverjir
sem vilja skoða málin betur eða eru
ekki sammála en meirihlutinn tók
vel í þetta og var ánægður með að
við hefðum farið af stað með undir-
skriftasöfnunina,“ segir hún.
Þá segir Þóra að ekkert samráð
hafi verið haft við bæjarbúa um eldi
í firðinum og að unnið sé eftir óljósu
regluverki. „Við sjáum þetta bara í
fréttum en auðvitað er þetta búið að
malla einhvers staðar í bæjarstjórn.
Ekkert samráð hefur verið haft við
bæjarbúa og við erum ekkert spurð,“
segir hún.
Bæjarbúar eru þá sagðir furða
sig á því að Fiskeldi Austfjarða telji
lög um skipulag haf- og strand-
svæða sem sett voru sumarið 2018
ekki eiga við um eldið í Seyðisfirði
þar sem lögin séu ekki afturvirk og
áform um eldið hafi verið hafin áður
en lögin tóku gildi. Upphafleg drög
matsáætlunar voru send til Skipu-
lagsstofnunar í júní 2014 og endan-
leg áætlun í febrúar 2017. „Þetta er
bara eins og hver önnur þvæla, við
vissum ekkert hvað þetta fyrirtæki
var að bollaleggja hér á okkar eigin
bæjarhlaði,“ segir Þóra.
Undirskriftalistunum verður
safnað saman um helgina og þeir
svo sendir sem víðast að sögn Þóru.
„Við munum senda þetta á sveitar-
stjórnina, Alþingi og á Fiskeldi Aust-
fjarða. Við lýsum einbeittri andúð á
þessu, bæði hvernig þetta var gert og
hvað er í húfi.“
Í frummatsskýrslunni kemur
fram að áhrif eldisins á botndýra-
líf verði neikvæð á meðan á rekstri
standi en séu afturkræf. Þá verði
áhrif kvíanna á fjörðinn óveruleg
en einnig afturkræf. „Þetta er langur,
lygn fjörður og þó að eitthvert fyrir-
tæki segi að hann hreinsi sig og að
áhrifin séu ekki langvinn þá er það
ekkert tryggt,“ segir Þóra.
„Við höfum verið að byggja upp
ferðaþjónustu hér í um 40 ár og
erum orðin eftirsóttur ferðamanna-
staður. Við þurfum að halda áfram
inn í nútímann en ekki fara aftur á
bak í fiskeldi,“ bætir Þóra við.
Björn Ingimarsson, sveitarstjóri
Múlaþings, segir mál íbúa Seyðis-
fjarðar ekki enn hafa komið til
umfjöllunar í sveitarstjórn en að
hann hafi heyrt af óánægju þeirra.
„Ég hef heyrt af þessari undirskrifta-
söfnun og á von á að þetta mál eigi
eftir að fá sína umfjöllun í fagnefnd-
um og þar munu menn auðvitað
horfa til sjónarmiða íbúa.“
Aðspurður hvort samstaða ríki
um málið í bænum segist hann
ekki geta staðfest það. „Eflaust eru
þarna skiptar skoðanir eins og er
um öll mál en það er mjög eðlilegt að
það séu skoðaðir allir fletir á svona
málum,“ segir Björn.
birnadrofn@frettabladid.is
Andsnúnir fiskeldi í firðinum
Íbúar á Seyðisfirði hafa hrundið af stað undirskriftasöfnun til að mótmæla áformuðu fiskeldi í firðinum.
Mikil samstaða er sögð ríkja meðal íbúanna og sveitarstjóri segir að horft verði til sjónarmiða þeirra.
Eldi er fyrirhugað í Selstaðavík, Sörlastaðavík, Skálanesbót og undir Háubökkum í Seyðisfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/SMK
Ekkert samráð
hefur verið haft við
bæjarbúa og við erum
ekkert spurð.
Þóra Bergný Guðmundsdóttir
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð