Fréttablaðið - 21.11.2020, Side 6
Fjöldi umsókna
hefur borist þar sem
óskað hefur verið eftir
skilnaðarráðgjöf og for-
eldrum hefur verið veittur
aðgangur að
rafrænum
námskeiðum.
Rannveig Einars-
dóttir, sviðsstjóri
Vonandi gengur
jafn vel með þessi
verkefni sem öll varða
menningarverðmæti og
dýrmæti þessa þjóðarhelgi-
dóms Íslendinga enda er hér
saga okkar allra í ellefu
hundruð ár.
Kristján
Björnsson,
vígslubiskup í
Skálholti
Oftast er tilkynnt um
vanrækslu, ofbeldi og
áhættuhegðun.
SAMFÉLAG Alls hafa 423 mál verið
tilkynnt til barnaverndar Mosfells
bæjar það sem af er ári. Nefndin
kynnti skýrslu sína fyrir Fjölskyldu
nefnd bæjarins í vikunni. Langflest
málin komu í október eða 79, þar af
tilkynnti lögreglan um 35 þeirra.
Oftast er tilkynnt um vanrækslu,
of beldi og áhættuhegðun.
Skýrslan nær til október og til
kynnir lögreglan um langf lest
málin eða 229. Foreldrar tilkynntu
um 43 mál og grunnskólar um 32.
Í skýrslunni kemur fram að til
kynningar um heimilisof beldi séu
72 það sem af er ári. „Erfitt er að
segja til um hvort um sé að ræða
einangrað tilvik eða hvort þessi
f jöldi tilkynninga muni halda
áfram. Eins og áður er ekki vitað
hvort um aukningu vegna COVID
sé að ræða,“ segir í skýrslunni. Bent
er á að þrátt fyrir aukinn fjölda í
október varðandi heimilisof beldi
nái það ekki þeim fjölda tilkynn
inga sem bárust í janúar á þessu ári.
Guðrún Marinósdóttir, stjórn
andi barnaverndar, segir í sinni
skýrslu að álagið sé gífurlegt á
starfsmenn. Álagið sé mælt með
svokallaðri málavog sem mæli
vinnuálag en sé ekki mælikvarði á
gæði vinnunnar. „Eftir þessar fjórar
mælingar er ljóst að upp á hefur
vantað í starfsmannafjölda í mála
flokknum, samkvæmt málavoginni,
til að álag á starfsmenn sé með þeim
hætti sem málavog telur viðunandi.
Alla fjóra mælingarmánuðina, sem
spanna eitt ár, virðist sem á vanti á
sviðið ef miðað er við niðurstöðu
vogarinnar. Samræmist það tilfinn
ingu starfsmanna þegar þeir eru
spurðir. Í öllum fjórum mælingum
segja f lestir starfsmenn að allt of
mikið sé að gera, sem er stig 5 af 5 í
tilfinningu starfsmanns fyrir álagi
samkvæmt málavoginni,“ skrifar
Guðrún. – bb
Álag sagt allt of mikið á barnavernd Mosfellsbæjar
TRÚFÉLÖG Kristján Björnsson,
vígslubiskup í Skálholti, segir að
betur horfi nú með nauðsynlegar
framkvæmdir við Skálholtskirkju
heldur en áður en hann sendi
kirkjuráði bréf um málið í sumar
lok.
Eins og kom fram í Fréttablaðinu
í gær gagnrýndi Skálholtsbiskup
kirkjuráð harðlega vegna skorts á
framkvæmdum sem séu afar aðkall
andi í Skálholti.
Kirkjuráð tók bréf Kristjáns fyrir
í september og ítrekaði að ráðið
stæði við fyrri samþykkt frá í apríl
um að farið yrði í viðgerðir á þaki
Skálholtskirkju, turni kirkjunnar
og ytra byrði. Kristjáni fannst hins
vegar lítið hafa orðið um fram
kvæmdir í framhaldinu.
„Það er nokkuð um liðið síðan ég
sendi þann harða lestur á kirkju
ráð. Það má alveg segja að það hafi
ýmislegt komist á skrið í haust
síðan erindið var fært til bókar og
eitt og annað hefur þokast til betri
vegar síðan þá,“ útskýrir Kristján.
Til dæmis sé „þakpapparæma“ nú
komin yfir versta sárið á þakinu.
„Það er búið að stöðva þakleka og
leka inn í kirkjuna til bráðabirgða
en með nokkuð öruggum hætti.
Það er mikill munur. Versti lekinn
var þar sem tenórinn er í Skálholts
kórnum og verður það mikill léttir
að hefja aftur kóræfingar „á þurru“
þegar það verður hægt fyrir jólin,“
lýsir Skálholtsbiskup stöðunni.
Margt sé þó ógert.
„Einnig hefur verið unnið rösk
lega að undirbúningi að endur
nýjun þaksins í samvinnu við
Minjastofnun og er ljóst að skipta
þarf um þakklæðninguna í heild
með nýjum steinf lísum frá Nor
egi. Í sömu áætlun verða gluggar í
turni endurnýjaðir, gert verður við
sprungur og kirkjan máluð að utan
og innan,“ segir Kristján.
Þetta sé stór áfangi sem vonandi
verði hafist handa við á næsta ári
og lokið fyrir 60 ára vígsluafmæli
kirkjunnar 2023. Þetta sé allt byggt
á fyrrnefndri ákvörðun kirkjuráðs.
Sömuleiðis segir Kristján að
unnið hafi verið að þakviðgerð á
Skálholtsskóla og rakaviðgerð sé
lokið á herbergjum sem voru illa
farin. Þá sé búið að ljúka byggingar
nefndarferli vegna endurhönnunar
á Gestastofunni nýju.
„Það er húsið þar sem áður bjó
biskup og þar áður rektor lengi
og þar sem Lýðháskólinn byrjaði
starfsemi sína. Búið er að fá verk
taka til að byrja á vinnu utanhúss
og aðfyllingu,“ útskýrir biskup.
Vonandi verði hægt að nota nýju
Gestastofuna til að taka á móti
ferðafólki í vor. „En húsið verður
einnig notað sem þjónustuhús við
kirkjulegar athafnir og aðstaða
fyrir tónlistarfólk, sem og kaffihús
og skrifstofur.“
Bókasafn Skálholts er á hrak
hólum. „Baráttumálið snýst um það
að koma þessu dýrmæta bókasafni
í sal á jarðhæð Gestastofunnar með
sýningaraðstöðu og aðstöðu til að
sinna því safni. Það er núna í háska
lega slæmu húsnæði uppi í turni
kirkjunnar og fáum aðgengilegt,“
segir Kristján.
Þá nefnir Skálholtsbiskup að
kirkjuráð hafi kostað raf hleðslu
stöðvar og einnig ljósleiðara með
Bláskógabyggð. Verndarsjóður
Skálholtsdómk irkju vinni að
endurnýjun á kirkjuklukkunum.
Margir hafi stutt endurgerð á list
gluggum Gerðar Helgadóttur og
altarismynd Nínu Tryggvadóttur.
„Vonandi gengur jafn vel með
þessi verkefni sem öll varða menn
ingarverðmæti og dýrmæti þessa
þjóðarhelgidóms Íslendinga enda er
hér saga okkar allra í ellefu hund r
uð ár.“ gar@frettabladid.is
Tenórinn mest fyrir barðinu á
þaklekanum í Skálholtskirkju
Skriður virðist hafa komist á bráðabirgðaviðgerðir við Skálholtskirkju í haust eftir að vígslubiskupinn
þar sendi kirkjuráði harðort bréf og kvartaði undan framkvæmdaleysi. Hann segir miklu muna að versti
þaklekinn sé yfirstaðinn. Ljóst sé að skipta þurfi um þakklæðninguna alla með steinflísum frá Noregi.
Bráðabirgðaviðgerðir á Skálholtskirkju í haust. MYND/KRISTJÁN BJÖRNSSON
Í skýrslunni kemur fram að fjöldi til-
kynninga um heimilisofbeldi eru 72
það sem af er ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Kvennaathvarfið varar
við ráðgjafarskyldu. Hún
hjálpi ofbeldismönnum að
halda taki á þolendum.
REYKJAVÍK Reykjavíkurborg mun
í næstu viku hefja tilraunaverk
efni í f lokkun úrgangs með því að
safna gleri og málmum sér. Næstu
sex vikur verður gleri og málmum
safnað í græntunnur í Árbæ og
Norðlingaholti.
Fram kemur til tilkynningu frá
Reykjavíkurborg að hver íbúi á
höfuðborgarsvæðinu hafi í fyrra
hent tæpum níu kílóum af gleri og
tæpum fjórum kílóum af málmi í
ruslið.
Plasti og málmum verður skilað
í móttökustöð Terra, fram kemur í
svari fyrirtækisins að allt plast sé
sent í endurvinnslu í Þýskalandi
og málmum komið í endurvinnslu
hér á landi. Glerinu verður skilað
til Sorpu í Álfsnesi. Í svari Sorpu við
fyrirspurn Fréttablaðsins segir að
glerið verði notað sem undirlag við
vegaframkvæmdir, þá sé mjög gott
að f lokka það frá til að auðvelda
endurvinnslu á öðru sorpi. – ab
Reykjavík fer í
tilraunaverkefni
með flokkun
Flokkunartilraun næstu vikna mun
ná til Árbæjar og Norðlingaholts.
FÉLAGSMÁL Sífellt f leiri taka þátt í
verkefni félagsmálaráðuneytisins
Samvinna eftir skilnað eftir að því
var hrundið af stað í byrjun árs. Í
verkefninu fá foreldrar barna upp
að 18 ára ráðgjöf í skilnaðarferlinu.
Hafnarfjörður reið á vaðið í janúar.
Í apríl tók Fljótsdalshérað þátt, sem
var svo yfirfært til Múlaþings þegar
fjögur sveitarfélög sameinuðust. Í
haust ákvað Mosfellsbær að taka
þátt.
Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri
hjá Hafnarfjarðarbæ, segir litla en
góða reynslu komna á verkefnið.
„Fjöldi umsókna hefur borist þar
sem óskað hefur verið eftir skiln
aðarráðgjöf og foreldrum hefur
verið veittur aðgangur að rafrænum
námskeiðum,“ segir hún.
Foreldrum stendur til boða
þriggja þátta rafrænt námskeið,
sérhæfð ráðgjöf og hópanámskeið.
Rannveig segir fáa hafa óskað eftir
frekari ráðgjöf eftir að hafa tekið
rafrænu námskeiðin. Verkefnið
hefur verið kynnt fyrir prestunum
í Hafnarfirði, starfsfólki grunnskól
anna og leikskólanna.
Verkefnið er að danskri fyrir
mynd og þar í landi er skilnaðar
ráðgjöf skylda fyrir foreldra barna
undir 18 ára. Félagsráðgjafarnir
Sigrún Júlíusdóttir og Gyða Hjartar
dóttir sem hófu verkefnið hafa sagt
það vera markmið sitt líka. Kvenna
athvarfið hefur hins vegar varað
við því að gera skilnaðarráðgjöf að
skyldu því að hún geti verið tæki
of beldismanna til að halda lengur
taki á fyrrverandi maka.
„Foreldrar sækja um að eigin
frumkvæði og því er enginn þving
aður í ráðgjöfina,“ segir Rannveig.
Fjöldi umsókna hafi nú borist en
vegna hertra samkomutakmark
ana þurfi starfsfólk fjölskyldu og
barnamálasviðs að vinna í fjar
vinnu og því ekki þótt tímabært að
auglýsa hópanámskeið. – khg
Enginn skyldaður í skilnaðarráðgjöf
DÓMSMÁL Landsréttur sýknaði
í gær karlmann á þrítugsaldri af
ákæru fyrir nauðgun. Maðurinn var
dæmdur í tveggja ára fangelsi í hér
aði árið 2018 fyrir að nauðga konu
á menntaskólaaldri, en þau höfðu
hist á skemmtistað í Reykjavík og
hann boðist til að keyra hana heim.
Samkvæmt dómi héraðsdóms
gat konan ekki komið vörnum við
sökum ölvunar og var ákærði sak
felldur fyrir að hafa nýtt sér ástand
hennar og komið vilja sínum fram.
Ákærði hélt því hins vegar fram
að konan hefði verið vel áttuð og
þau hefðu haft samræði með fullum
vilja hennar.
Að virtum framburði ákærða,
konunnar og vitna var talið ósann
að að hún hefði verið ófær um að
sporna við gjörðum hans, en fyrir
lá að engin mæling hefði verið gerð
á magni áfengis í blóði og þvagi
konunnar. – aá
Landsréttur
sýknaði mann í
nauðgunarmáli
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð