Fréttablaðið - 21.11.2020, Blaðsíða 8
KVIKMYNDIR Tökur standa yfir á
víkingastórmyndinni The North
man sem byggð er á handriti leik
stjórans Roberts Eggers og Sjóns.
Sögusvið myndarinnar er Ísland á
10. öld og er um að ræða blóðuga
hefndarsögu. Það vekur hins vegar
nokkra athygli að þrátt fyrir að
stærstu hluti sögunnar gerist á
Íslandi verður myndin tekin upp
á Írlandi. Að sögn þeirra sem til
þekkja er ástæðan fyrst og fremst
sú að Íslendingar eru að verða
undir í alþjóðlegri samkeppni um
stór kvikmyndaverkefni út af lágri
endurgreiðslu íslenskra stjórnvalda
til kvikmyndaframleiðenda.
Leifur B. Dagf innsson, einn
eigenda kvikmyndaframleiðslu
fyrirtækisins Truenorth, segir að
vissulega svíði það að Írland muni
bregða sér í hlutverk Íslands í hinni
væntanlegu stórmynd. Það sem
svíði þó mest sé að mörg stór verk
efni hafi runnið Íslandi úr greipum
undanfarið og að stjórnvaldi hafi
ekki gert nauðsynlegar breytingar
til þess að tryggja samkeppnis
hæfni landsins.
Ekki fyrsta verkefnið
„Þetta er ekki fyrsta slíka verkefnið
sem við missum af. Nærtækt dæmi
er til dæmis Eurovisionmynd Net
flix en um fimm prósent þess verk
efnis voru tekin upp hérlendis. Við
hefðum auðveldlega getað tekið
nánast alla myndina upp hér ef við
værum samkeppnishæf með endur
greiðsluna.“
Í dag er endurgreiðsla vegna
kvikmyndaverkefna hérlendis 25
prósent en til samanburðar býður
Írland upp á 32 til 37 prósenta
endurgreiðslu, eftir því hvar á land
inu myndin er tekin upp. Endur
greiðslan er hærri ef tekið er upp í
tilteknum sýslum Írlands sem þurfa
meira á umsvifunum að halda.
Að sögn Leifs er það þó ekki
aðeins hærri endurgreiðsla sem
þörf er á heldur þarf einnig að
ráðast í fjárfestingar á almenni
legu kvikmyndaveri. Þetta tvennt
haldist þó í hendur.
„Framleiðendur mynda vilja
helst reyna að klára sem mest á
sama stað, sérstaklega á tímum
COVID19. Við höfum þekkingu
starfsfólks og ótrúlega fjölbreytta
tökustaði í íslenskri náttúru. Að
því gefnu að endurgreiðslan verði
hækkuð þá vantar okkur aðeins
fjölnota kvikmyndaver með stúd
íóum í nokkrum stærðum. Aðstaða
RVK Studios í Gufunesi er góð en
þar er bara einn stór geimur í boði
sem takmarkar aðeins möguleik
ana,“ segir Leifur.
Mikill áhugi fjárfesta á þátttöku
Hann segir að mikill áhugi sé meðal
fjárfesta á þátttöku í slíku verkefni
og að hugmyndavinna hafi staðið
yfir um nokkurt skeið. Forsend
urnar fyrir slíku verkefni séu hins
vegar ekki til staðar nema að endur
greiðslan verði hækkuð. „Það er
setið um tíma í kvikmyndaverum
um allan heim og við einfaldlega
vitum að aðstæður á Íslandi fyrir
slíka starfsemi eru einstakar. Þrátt
fyrir sömu endurgreiðslu og til
dæmis á Írlandi þá yrði dýrara að
taka upp hér. Aðrir kostir eru þó
það miklir að þeir vega það upp,“
segir Leifur.
Nefnir hann sem dæmi að á
Írlandi hafi verið farin afar áhuga
verð leið til þess að tryggja að
annað risaverkefni yrði tekið upp
þar í landi, sjónvarpsþættirnir The
Foundation fyrir Apple TV+. „Þar
var farin sú leið að fá framleið
endurna í lið með sér til að byggja
heilt kvikmyndaver nærri borginni
Limerick á VesturÍrlandi. Þættirnir
verða því teknir upp þar og fram
haldsseríur en síðan mun kvik
Írland verður að Íslandi í stórmynd
Tökur á nýrri stórmynd sem gerist á Íslandi standa nú yfir en á Írlandi. Ástæðan er sú að kvikmyndaiðnaðurinn á Íslandi er ekki
samkeppnishæfur um þessar mundir. Ef stjórnvöld bæta úr því gætu milljarða fjárfestingar í greininni verið handan við hornið.
Grænar grundir Írlands munu túlka íslenska náttúru í víkingastórmynd þar sem sögusviðið er að stærstum hluta Ísland. MYND/PIXABAY
Með því að hækka
endurgreiðslu til
kvikmyndaverkefna eru
þrjár flugur slegnar í einu
höggi. Hundruð fá atvinnu,
hótel, veitingastaðir og
bílaleigur fá viðskipti og
staðreyndin er sú að meiri-
hluti ferðamanna kaupir sér
ferðir út af innblæstri sem
það fær í kvikmyndum og
sjónvarpsþáttum.
Leifur Friðfinnsson,
einn eigenda
Truenorth
Björk, Sjón og stjarna í skákþáttum Netflix
Leikstjóri The Northman er
bandaríski leikstjórinn Robert
Eggers. Hann hefur slegið í gegn
á undanförnum árum með kvik-
myndunum The Witch og The
Light house sem hafa skipað
honum í hóp mest spennandi
kvikmyndaleikstjóra samtímans.
Eggers leikstýrir ekki aðeins
The Northmen heldur skrifar
hann einnig handrit myndarinnar
ásamt rithöfundinum Sjón. Sjón
var gestur Lestarinnar á Rás 1 á
dögunum þar sem hann sagði frá
tilkomu samstarfsins við Eggers.
Þannig vildi til að leikstjórinn
skellti sér í ferðalag til Íslands
fyrir nokkrum árum ásamt konu
sinni. Eggers á sameiginlega vini
með Björk okkar Guðmunds-
dóttur og þeir hvöttu hann til að
heyra í þjóðargerseminni þegar
hann væri á landinu. Eggers taldi
hugmyndina fyrst fráleita en lét
þó verða af því og skyndilega var
hann mættur í kvöldverðarboð til
Bjarkar.
Þangað mætti einnig Sjón
ásamt eiginkonu sinni og á með-
an hópurinn snæddi íslenskan lax,
matreiddan af Björk, mynduðust
kynni sem leiddu af sér víkinga-
stórmyndina The Northman.
Magnaður hópur leikara fer
með hlutverk í myndinni. Helstu
hlutverk eru í höndum stórstjarn-
anna Alexanders Skårsgaard,
Nicole Kidman, Willems Dafoe og
Ethans Hawke.
Að auki hefur komið fram að
Björk Guðmundsdóttir muni
snúa aftur á hvíta tjaldið og fara
með hlutverk nornar í myndinni.
Þá mun dóttir Bjarkar, Ísidóra
Bjarkardóttir Barney, fara með
lítið hlutverk sem og stórleikarinn
Ingvar E. Sigurðsson.
Önnur athyglisverð leikkona
sem fer með stórt hlutverk í
myndinni er Anya Taylor-Joy
sem sló nýlega í gegn sem Beth
Harmon í Netflix-þáttaröðinni
The Queen’s Gambit sem tryllt
hefur heimsbyggðina undan-
farnar vikur. Því fer þó fjarri að
framleiðendur myndarinnar hafi
bara haft heppnina með sér þegar
að Taylor-Joy fékk hlutverkið því
leikkonan er í miklum metum
hjá leikstjóranum Eggers og lék
meðal annars eitt af aðalhlut-
verkunum í áðurnefndri mynd
hans, The Witch, árið 2015.
Anya Taylor-Joy er í miklum metum hjá Robert Eggers. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
myndaverið þjóna margvíslegum
verkefnum í framtíðinni,“ segir
Leifur.
Hann segist eiga bágt með að
skilja tregðu íslenskra stjórnvalda
til þess að bregðast við og gera
íslenskum kvikmyndaiðnaði kleift
að verða samkeppnishæfur við
iðnað annarra landa.
Geta slegið þrjár flugur
„Nokkur af þeim vandamálum sem
stjórnvöld glíma við er atvinnu
leysið og verkefnaleysi íslenskrar
ferðaþjónustu en á sama tíma eru
stjórnvöld að dæla peningum í
markaðsstarf fyrir Ísland. Með því
að hækka endurgreiðslu til kvik
myndaverkefna eru þrjár f lugur
slegnar í einu höggi. Hund ruð fá
atvinnu, hótel, veitingastaðir og
bílaleigur fá viðskipti og stað
reyndin er sú að meirihluti ferða
manna kaupir sér ferðir út af inn
blæstri sem það fær í kvikmyndum
og sjónvarpsþáttum. Mér skilst til
dæmis að markaðsleg áhrif Euro
visonmyndar Netf lix fyrir Húsa
vík hafi verið metin á fimm millj
arða. Endurgreiðsla ríkisins var 135
milljónir króna,“ segir Leifur.
Það sé síðan rúsínan í pylsuend
anum að hækkun endurgreiðslunn
ar kosti ekkert fyrr en verkefnin séu
afstaðin. „Ríkið þarf augljóslega
aðeins að endurgreiða upphæð
irnar ef við náum að tryggja tökur á
verkefnum hér heima. Þegar kemur
að skuldadögum ríkisins þá er fjár
magnið búið að renna í gegnum
íslenskt hagkerfi og vökva það og
næra.“ bjornth@frettabladid.is
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð