Fréttablaðið - 21.11.2020, Síða 22
Ás d í s B j ö r g v i n s -dóttir er ein f jög-urra k venna sem sitja í basarnefnd Hringsins þetta árið og segir hún undir-
búning hafa verið á fullu stóran
hluta árs, en um tíma ríkti ákveðin
óvissa um afdrif basarsins enda
mætir fjöldi manns til að styrkja
gott málefni og þegar samkomu-
takmörk miðast við tíu manns eru
góð ráð dýr.
„Basarinn hefur verið haldinn á
Grand Hóteli fyrsta sunnudaginn
í nóvember ár hvert. Þar hefur
aðsókn verið mikil og fólk staðið
í röð úti til að komast inn. Nú er
auðvitað ekki hægt að safna svo
mörgum saman á einn stað svo við
vorum búnar að velta því töluvert
fyrir okkur hvað við gætum gert.“
Ef ekki má safna fjölda fólks saman
á einn stað á einum degi eins og
vaninn hefur verið er lausnin vænt-
anlega að lengja opnunartímann.
Það varð ofan á og mun basarinn
standa í tvær vikur á neðri hæð
Smáralindar.
Margir koma ár eftir ár
„Við erum afskaplega þakklátar
Smáralindinni sem lánar okkur
pláss í hálfan mánuð á neðri hæð
Smáralindar rétt hjá jólatrénu og
þar munu Hringskonur standa
vaktina næstu tvær vikurnar,
segir Ásdís en basarinn opnar
í dag, laugardag og stendur til
sunnudagsins 6. desember ef eitt-
hvað verður eftir til að selja, eins og
Ásdís orðar það.
„Það hafa margir komið til okkar
ár eftir ár og ég get ekki ímyndað
mér annað en þeir mæti í Smára-
lindina,“ segir hún og bætir við að
væntanlega nái þær jafnframt til
nýs markhóps á nýjum stað.
Kökurnar gríðarlega vinsælar
Aðventan er aðalfjáröf lunartími
Hringskvenna en auk jólabasarsins
eru þær vanar að standa fyrir jóla-
kaffi og happdrætti í Hörpu fyrir
jólin sem ekki verður hægt að halda
nú í ár.
„Við getum þó alla vega haldið
basarinn með þessu sniði. Við
hleypum auðvitað bara inn eftir
reglum og erum með handspritt og
svo framvegis. Kökurnar hafa alltaf
verið gríðarlega vinsælar og selst í
hundraða tali og um helgar munum
við bjóða þær til sölu í Smáralind og
fáum lánaða kæla til að geyma þær
í. Það er fólk sem mætir ár hvert
og kaupir kökur og hefur búið til
þá hefð að halda fjölskylduveislu
þennan sama dag,“ segir Ásdís og
segir enga ástæðu til að rjúfa þá
hefð í ár.
Jólalöberarnir alltaf vinsælir
Auk kakanna segir Ásdís hand-
gerðu jólavörurnar einnig rjúka út
ár hvert.
„Jólalöberarnir eru alltaf vinsælir
og einnig dúkarnir undir jólatrén
og svo eru það Bucilla vörurnar,“
segir Ásdís. Þegar blaðamaður spyr
út í hvað falli undir Bucilla vörur
útskýrir Ásdís að um sé að ræða
dúka undir jólatré, jólasokka og
annað slíkt sem saumað sé saman
úr filti með perlum og pallíettum.
„Í ár verðum við líka með poka sem
hægt er að setja jólagjafir í og koma
þannig í stað jólapappírs. Pokarnir
eru úr striga og skreyttir með
útsaumuðum myndum og þá er
hægt að nota ár eftir ár sem er auð-
vitað umhverfisvænt. Við vorum
með eitthvað af þessum pokum í
fyrra og það fór allt saman svo við
erum með meira núna.“
Tvenn meðmæli þarf
Ásdís hefur starfað með kvenfélagi
Hringsins frá upphafi árs 2015 og í
basarnefndinni frá því í fyrra.
Það var vinkona Ásdísar sem stakk
upp á því að þær gengju til liðs við
Hringinn.
„Ég var alveg til í það en hélt það
væri erfitt að komast inn.“
Með umsókn í Hringinn þurfa að
fylgja meðmæli frá tveimur félags-
konum.
„Stuttu eftir að við ræddum þetta
var ég að ganga frá í sal með einni
sem sagði: „Við gerum þetta svona
hjá Hringnum.““
Ásdís hugsaði þá með sér að
þarna væri komin ein sem hún gæti
beðið um meðmælin fyrir umsókn
sína.
„Hún tók vel í það og bað aðra
sem hún þekkir að mæla með okkur
tveimur og við komumst þá báðar
inn í janúar 2015.“
Vikulegir fundir
Hringskonur hittast hvern þriðju-
dag frá klukkan eitt til fjögur og
er það siður sem lengi hefur verið
við lýði, en eftir óskir frá þeim sem
stunda dagvinnu, var bætt við
fundum á mánudögum frá klukkan
fjögur til átta.
„Nú er ég hætt að vinna en ég hef
þó haldið mig við mánudagsfund-
ina. Á fundunum erum við mikið að
sauma út, löbera og púða og annað
slíkt. Við prjónum líka eitt og annað,
peysur og hin vinsælu heimfarar-
sett fyrir ungbörn. Svo var nýverið
ákveðið að prjóna líka stærri peysur
á eldri börn frá eins árs og upp í sjö,
átta ára.“
Vörurnar hafa verið seldar í hús-
næði Hringsins í Nethyl en í ljósi
aðstæðna opnuðu Hringskonur
nýverið fyrir netsölu á heimasíðu
félagsins hringurinn.is og segir Ásdís
söluna þar aldeilis hafa tekið við sér.
„Eins hafa Hringskonur fengið leyfi
til að vera fyrir utan stórverslanir á
Eiðistorgi, Mosfellsbæ, Fjarðarkaup
og á Selfossi. Það eru nokkrar sem
taka það að sér enda ekki hægt að
vera í öllu,“ segir Ásdís.
Frá árinu 2003 hafa Hringskonur
séð um veitingasölu í anddyri Barna-
spítalans og þar má finna sýningar-
og söluskáp með handverki þeirra
og fást vörurnar jafnframt þar í veit-
ingasölunni.
„Ég vann þar í þrjú ár en eftir að
ég tók við basarnefndinni hætti ég
þar. Veitingasölunni stýrir Helga
Mogensen með kokk sér við hlið.
Einnig standa Hringskonur vaktir í
veitingasölunni.“
Fá mikið efni gefins
Eins og fyrr segir hefur verið í nægu
að snúast hjá Ásdísi eftir að hún tók
sæti í basarnefndinni.
„Starfið í basarnefndinni felst
í því að kaupa inn efni og setja í
pakka og fá konur til að sauma úr
því. Við nýtum líka það sem fólk
gefur okkur, en fólk er duglegt að
gefa okkur efni og garn og við fáum
mikið slíkt úr dánarbúum og það
þarf að sortera út úr þessu. Svo er
allur gangur á því hvort konur skili
sínu fullbúnu eða ekki. Þá tökum
við að okkur að loka púðum og falda
löberana og svo framvegis,“ segir
Ásdís að lokum og er að því búnu
rokin í Smáralind ásamt nefndinni
að stilla upp fallegu vörunum á bás
þeirra sem stendur uppi næsta hálfa
mánuðinn.
Fastur liður jólaundirbúningsins
Jólabasar Hringskvenna er fastur liður í jólaundirbúningi margra og ein helsta fjáröflunarleið Hringsins. Í ár
verður basarinn, sem opnar í dag í Smáralind, með breyttu sniði vegna aðstæðna en hvergi verður þó slegið af.
MajBritt Pálsdóttir, Kristín Þóra Sverrisdóttir, Anna Björk Eðvarðsdóttir, Ásdís Björgvinsdóttir og Kristjana Möller
voru í óðaönn við undirbúning jólabasarsins í Smáralind þegar ljósmyndari leit við. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Allt fé sem Hringskonur safna rennur óskipt í Barnaspítalasjóð Hringsins.
Hér má sjá úrval
þess jólaskrauts
sem Hringskon-
ur hafa útbúið
og er til sölu
á basarnum í
Smáralind.
Fallegt handverk Hringskvenna.
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
ÞAÐ ER FÓLK SEM MÆTIR
ÁR HVERT OG KAUPIR
KÖKUR OG HEFUR BÚIÐ TIL
ÞÁ HEFÐ AÐ HALDA FJÖL-
SKYLDUVEISLU ÞENNAN
SAMA DAG.
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN