Fréttablaðið - 21.11.2020, Page 23
Lægra verð – léttari innkaup
JÓLABÆKURNAR ERU LENTAR Í NETTÓ
3.399 kr.
4.689 kr.
4.759 kr.4.759 kr.
Tónlistarblaðamaðurinn Árni
Matthíasson rekur tónlistar-
sögu Bubba frá því hann kom
fyrst fram með kassagítarinn
og fram á þetta ár.
Lilja Sigurðardóttir hefur
skrifað skáldsögur, leikrit
og sjónvarpsþáttahandrit.
Glæpasögur hennar hafa notið
mikilla vinsælda og verið verð-
launaðar heima og erlendis;
Gildran var tilnefnd til breska
Gullrýtingsins og fyrir Búrið og
Svik hlaut hún Blóðdropann
og tilnefningu til norræna
Glerlykilsins tvö ár í röð.
Barnaræninginn er fyndin og
æsispennandi, rétt eins og
Draumaþjófurinn, fyrri bókin
um rotturnar í Hafnarlandi sem
naut mikilla vinsælda og var
tilnefnd til Barnabókaverð-
launa Reykjavíkur.
Myndir gerir Linda Ólafsdóttir
sem hefur unnið til fjölda
verðlauna fyrir myndlýsingar
sínar, hér heima og erlendis.
Þóra Karítas Árnadóttir hefur
starfað við skrif, leikhús og
sjónvarpsþáttagerð. Árið 2015
sendi hún frá sér sannsöguna
Mörk – saga mömmu, sem
hlaut góðar viðtökur lesenda.
Blóðberg er fyrsta skáldsaga
hennar.
3.399 kr.
4.759 kr.
4.689 kr. 3.399 kr.
4.759 kr.
Arnaldur Indriðason hefur um
langt árabil verið vinsælasti
höfundur landsins og nýtur
hylli langt út fyrir landstein-
ana. Bækur hans eru nú
orðnar tuttugu og fjórar
talsins. Þær hafa verið þýddar
á yfir fjörutíu tungumál, selst í
tugmilljónum eintaka og hafa
fært höfundinum ótal verðlaun
og viðurkenningar.
Gerður Kristný er einn af
okkar færustu höfundum og
skrifar jöfnum höndum fyrir
börn og fullorðna. Hún hlaut
Bókaverðlaun barnanna fyrir
Mörtu smörtu, Vestnorrænu
barnabókaverðlaunin og Bók-
salaverðlaunin fyrir Garðinn
og eftir bókaflokki hennar um
forsetann á Bessatöðum samdi
Gerður vinsælan söngleik.
4.759 kr.
Ófeigur Sigurðsson er
þekktur fyrir frumlegar og
skemmtilegar skáldsögur
og ljóðabækur. Skáldsaga
um Jón var fyrsta bók hans
sem vakti verulega athygli
og hreppti síðan Bókmennta-
verðlaun Evrópusambandsins
en þekktust er metsölubókin
Öræfi sem hlaut einróma lof
gagnrýnenda og Íslensku
bókmenntaverðlaunin 2014.
Kristín Marja Baldursdóttir
er þekkt fyrir magnaðar
og grípandi skáldsögur
sínar þar sem margt býr undir
yfirborðinu. Með hárbeittum
húmor og djúpu innsæi skapar
hún ógleymanlegar persónur
og áhrifaríkar örlaga sögur
sem heilla lesendur heima og
erlendis.
Ævar Þór Benediktsson er
margverðlaunaður höfundur.
Hann hefur hlotið Bókaverð-
laun barnanna og Bóksala-
verðlaunin, verið tilnefndur til
Íslensku bókmenntaverðlaun-
anna og Barnabókaverðlauna
Reykjavíkur og valinn einn af
bestu yngri barnabókahöf-
undum Evrópu og í hóp fram-
úrskarandi ungra Íslendinga.
Undir Yggdrasil er grípandi
skáldsaga úr sama sagnabrunni
og Vilborg Davíðsdóttir sótti
áhrifamikinn þríleik sinn um
Auði, en fyrsta bindi hans var
tilnefnt til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna. Sögulegar
skáldsögur Vilborgar hafa notið
mikilla vinsælda undanfarna
áratugi enda varpa þær nýju og
óvæntu ljósi á örlög og aðstæð-
ur íslenskra kvenna.