Fréttablaðið - 21.11.2020, Síða 28
Það heyrir til undantekn-ingar í dag ef ný, íslensk popptónlist kemur út og verður vinsæl og fingra-far Magnúsar Jóhanns Ragnarssonar er hvergi
að finna á henni. Magnús er píanó-
leikari og tónskáld og hefur haft í
nógu að snúast síðustu ár í vinnu
sinni með tónlistarmönnum á borð
við Auð, GDRN, Moses Hightower,
Flona, JóaPé og Króla, Aron Can
og svo mætti lengi telja. Hann gaf
á dögunum út sína aðra sólóplötu,
Without Listening, verk sem hann er
hve stoltastur af, það er jú hans eigið
og þar fær listfengi hans að njóta sín
einna best hingað til.
Hér býr listamaður
Fréttablaðið fékk að kíkja í kaffi til
Magnúsar á heimili hans í Árbæn-
um, litla og huggulega íbúð, sem
virkar kannski aðeins minni en hún
er því stærðarinnar flygill fyllir upp
í stærstan hluta stofunnar. En það
er augljóst að hér býr listamaður;
það pláss stofunnar sem flygillinn
þekur ekki hefur Magnús nýtt undir
fjöldann allan af listaverkum, mál-
verkum, ljósmyndum og bókum.
Hann virðist átta sig á því hvað
höfðar til blaðamannsins og réttir
honum strax Ilíonskviðu frá 1855
og tilkynnir honum að þessa hafi
langalangalangafi hans átt, enginn
annar en þjóðskáldið Matthías
Jochumsson.
Eftir grúsk í gömlum bókum,
sögum af ætt Magnúsar og vanga-
veltum um mögulega bókagjöf frá
Nóbelsskáldinu til annars forföður
hans og bókaútgefanda (með kveðju
frá dularfullum „HK“) berst talið að
Magnúsi sjálfum. Hann gaf út plötu
sína, Without Listening, fyrir um
viku síðan. Platan er önnur sóló-
plata hans en sú fyrri, Pronto, kom
út árið 2016.
Fyrsta sólóplatan 19 ára
„Pronto f laug nú ekkert sérlega
hátt...“ segir Magnús. „Það er mikill
fyrstu plötu bragur á henni. Og
eðlilega, ég var bara 19 ára þegar
ég samdi hana. Ég vann mér sem
sagt inn einhverja stúdíótíma eftir
að hafa lent í þriðja sæti á Músík-
tilraunum þetta ár og þá einhvern
veginn þurfti ég bara að gera plötu.“
Nú fjórum árum síðar er Magnús
orðinn þroskaðri tónlistarmaður.
Nýja platan er því öðruvísi en sú
fyrri, vandaðri og úthugsaðri. „Á
þeirri fyrri er mikið af svona ambi-
ent músík og þar var ég mest einn
að spila. Í þetta skiptið vann ég
plötuna náið með trommara sem
heitir Magnús Tryggvason Eliassen
og saxófónleikara sem heitir Tumi
Árnason. Þannig að þetta er svona
einhvers konar elektróník og svo-
lítið djassskotin tónlist.“
Akústísk og elektrónísk áhrif
Vinnan við plötuna hófst fyrir
þremur árum síðan. Þá fékk Magnús
þá félaga til að spila með sér drög
að lögum sem hann hafði verið að
semja, á tónlistarhátíðinni Iceland
Airwaves. Þetta gekk svo vel að
þeir ákváðu í kjölfarið að taka lögin
lengra og útsettu helling af þeim í
sameiningu.
„Þessi plata er svona blanda af
músík sem ég var að vinna og útsetja
með Magnúsi og Tuma og svo öðru
sem ég hef verið að bardúsa og upp-
götva sjálfur í nýju forriti sem ég
var að læra að vinna á. Þetta verður
þannig skemmtilegt bland af alveg
akústískum hljóðfærum eins og
trommusettinu, f lygli og saxófón
og svo einhverjum mjög elektrón-
ískum áhrifum; tölvuteiknuðum
og f laumrænum hljóðgervlum,“
útskýrir Magnús.
Elti drauminn í stað boltans
Magnús hefur spilað á píanó síðan
hann var sex ára gamall, með stuttu
hléi þó á unglingsárunum, þegar
hann taldi sjálfum sér trú um að
hans lífsleið lægi frekar um fót-
boltavöllinn. „Ég varð bara unglinga-
veikur og fór að æfa sem markmaður
með Fylki. Við skulum hafa það á
hreinu að hæfileikar mínir liggja
frekar á sviði tónlistar en knatt-
spyrnu og ég var fljótur að átta mig á
því að ég ætti frekar að elta tónlistar-
ferilinn en boltann.“
Þegar hann sneri aftur að píanó-
inu á fyrsta ári sínu í menntaskóla
vildi hann þó læra eitthvað nýtt og
spennandi og kynntist þá djasspí-
anóleik. „Þar fór ég að læra inn á
spuna og að spila meira eftir eyranu.
Það er minn styrkleiki,“ segir hann.
Síðan hefur hann verið hugfang-
inn af svokölluðum hljóðgervlum,
rafrænum hljóðfærum sem gefa frá
sér afar mismunandi hljóð, oftast
í elektróníska kantinum og eru
mikið notuð í nútímatónlist. Hann
á mikið safn slíkra tækja og hefur
oftar en einu sinni þurft að vaða eld
og brennistein til að koma höndum
sínum á gamlar gersemar sem
hann finnur ódýrar á eBay. Þær eru
nokkrar skrautlegar sögurnar sem
hann segir blaðamanni af svaðil-
förum sínum til útlanda að sækja
þessi tæki og ýmsum vandamálum
sem upp hafa komið við að ferja þau
heim, sem heimta því miður meira
pláss en síður þessa blaðs leyfa.
Dularfullur bútasaumur
En Magnús er tilraunamaður ekki
síður en tónlistarmaður og það krist-
allast einna best í hljóðgervla-safni
hans. Það er fátt skemmtilegra en að
kynnast nýjum hljóðum og tækni til
að framkalla þau. Og á nýju plötunni
er hann að prófa sig áfram og púslar
saman ólíkum hljóðum og tónlistar-
stefnum sem mynda loks eina heild:
„Þetta er í raun algjör bútasaumur.
Markmiðið var að líma saman heild
úr þessum lifandi hljóðfærum og
tölvugerðri tónlist og skapa ein-
hvern rauðan þráð sem hægt er að
finna í gegnum verkið.“ Aðspurður
segir hann verkið þó ekki eiginlegt
„concept-verk“.
„Það má eiginlega segja að tónlist
sem er ekki með sungnum texta sé
alltaf sveipuð örlítið meiri dulúð
heldur en önnur músík, því það
er ekki verið að stafa neitt ofan í
mann. En jú, það er vissulega alltaf
hægt að finna einhverja sögu í öllu,“
segir Magnús og bendir á að laga-
titlar spili til dæmis stóra og mikil-
væga rullu í tónlist án söngs.
„Maður getur í raun farið tvær
leiðir í vali á lagatitli. Annaðhvort
sett músíkina í eitthvað sérstakt
samhengi með titlinum eða vísvit-
andi gert það alls ekki. Á plötunni er
til dæmis lag sem heitir Sálmur fyrir
Sollu systur og ég samdi fyrir systur
mína, en síðan er annað sem heitir
Einkavæðing Búnaðarbankans, ein-
faldlega vegna þess að mér fannst
það einhvern veginn passa. Fólk
verður svo bara að fylla í eyðurnar.“
Lærði að leggja egóið til hliðar
Magnús hefur undanfarin ár unnið
og spilað með stærstum hluta
íslenskra popptónlistarmanna.
Auk þess að koma að gerð nokkurra
stærstu platna síðustu ára, á borð
við Afsakanir með Auði og GDRN,
plötu tónlistarkonunnar GDRN
hefur Magnús einnig tekið þátt í
gerð platna og laga fjölda annarra
tónlistarmanna. Magnús er þá ekki
síst eftirsóttur útsetjari, þegar þarf
að gera nútímapopptónlist, sem er
oftar en ekki gerð að stærstum hluta
í tölvu, góð skil í lifandi f lutningi.
Hann er svo að segja maðurinn á
bak við tjöldin í íslensku popptón-
listarsenunni.
Hann segist hafa lært mikið af
samstarfinu en hér, á sinni eigin
plötu, nýtur hann sín best. „Fyrir
mér snýst þetta um að finna ball-
ansinn á milli þess að vera einhvers
konar smiður, þegar maður er að
hjálpa öðrum og svo að vera sinn
eigin listamaður,“ segir Magnús og
talar um mikilvægi þess að leggja
egóið til hliðar í samvinnu með
öðrum.
„Þegar maður er að vinna tónlist
með öðrum eða hjálpa þeim að gera
sína tónlist verður maður að muna
að maður hefur ekki alltaf rétt fyrir
sér,“ segir hann. Trú góðs tónsmiðs á
eigin leiðum í tónlistinni er jú, óhjá-
kvæmilega, alltaf mikil. „Manni
finnst oft að manns eigin hugmynd
sé sú besta, en þá þarf maður að
muna að það gengur ekki að semja
tónlist með öðrum og vera sífellt
með það hugarfar. Maður sparar
það fyrir sína eigin tónlist, eins og
þessa sólóplötu mína.“
Hér má því ætla að listamaður-
inn Magnús Jóhann stígi fram
fyrir tjöldin í sinni tærustu mynd
til þessa og þá kannski með egóið
í botni? Um það verða hlustendur
plötunnar að dæma sjálfir.
ÞAÐ MÁ EIGINLEGA SEGJA
AÐ TÓNLIST SEM ER EKKI
MEÐ SUNGNUM TEXTA SÉ
ALLTAF SVEIPUÐ ÖRLÍTIÐ
MEIRI DULÚÐ HELDUR EN
ÖNNUR MÚSÍK, ÞVÍ ÞAÐ
ER EKKI VERIÐ AÐ STAFA
NEITT OFAN Í MANN. EN
JÚ, ÞAÐ ER VISSULEGA
ALLTAF HÆGT AÐ FINNA
EINHVERJA SÖGU Í ÖLLU.
Ekki á bak
við tjöldin í
þetta skiptið
Magnús Jóhann Ragnarsson, píanóleikari
og tónskáld, hefur tekið þátt í að semja
margt af því vinsælasta í íslensku popp-
tónlistarsenunni síðustu ár. Hann hefur nú
gefið út sína aðra sólóplötu þar sem hann
telur sitt listfengi fá að njóta sín einna best.
Magnús hefur starfað með tónlistarmönnum á borð við Auð, GDRN, Moses Hightower, Aron Can og fleirum. Hann
segist hafa lært mikið af samstarfinu en nýtur sín þó best nú, á sinni eigin plötu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Óttar Kolbeinsson
Proppé
ottar@frettabladid.is
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð