Fréttablaðið - 21.11.2020, Síða 32
Sérsaumuð vöggu- og barnasett fást úr gæðaefnum.
Hildur Þórðardóttir hjá Rúmföt.is.
Rúmföt í gylltu og silfurtónum.
Unaðsmjúk
silkikoddaver í
fallegum litum
seljast eins og
heitar lummur
og virðast
ætla að verða
jólagjöfin í ár
því starfsfólk
Rúmföt.is hefur
ekki undan að
fylla á hillurnar
nú í aðdraganda
jóla.
Margrét saumakona hjá Rúmföt.is.
Konunglegur hágæða rúmfatnaður.
Til eru munstur rúmfataefna sem hæfa flestum áhuga-
málum barna í Rúmföt.is og allt sérsaumað af Möggu.
Þéttofið, há-
gæða, ítalskt
silkidamask
tryggir ein-
stakan nætur-
svefn og gælir
þægilega við
hörundið.
Úrval heillandi sængurverasetta frá sumum af bestu vefurum heims fæst hjá Rúmföt.is.
Doppótt hvítt og grátt damask.
Framhald af forsíðu ➛
Fólk sem kaupir hjá okkur rúmfatnað er svo ánægt að það kemur aftur og aftur og dregur
með sér vini og vandamenn,“ segir
Hildur Þórðardóttir hjá Rúmföt.is.
Hún segir svekkjandi að kaupa
sér dýr rúmföt sem endast ekki
einu sinni einn þvott.
„Þess vegna veljum við eingöngu
vönduð rúmföt sem halda bæði
áferð og mynstri lengi. Um daginn
kom kona sem hafði keypt hjá
okkur 500 þráða satín og var stór-
hrifin. Hún sagði að sængurfötin
kæmu alltaf jafn yndisleg úr þvotti,
að hún hengdi þau bara upp og
þyrfti ekkert að strauja.“
Guðdómleg mynstur
Flaggskipið hjá Rúmföt.is eru
sængurföt úr silkidamaski sem
Margrét Guðlaugsdóttir saumar
á staðnum, en hún saumaði áður
fyrir Verið, Fatabúðina og fleiri
verslanir.
„Silkidamask-efnið okkar er
600 þráða úr 100 prósent egypskri
bómull sem er það besta á mark-
aðnum. Því fleiri þræðir, því fínna
er efnið, að því gefnu að bómullin
sé hágæða,“ upplýsir Hildur og
tyllir sér hjá Möggu saumakonu.
„Magga saumar þetta upp á
gamla mátann með bendlaböndum
og breiðum saumi í koddaverun-
um. Mynstrin eru alveg guðdómleg
og hún hefur í raun ekki undan að
sauma því verin renna út eins og
heitar lummur.“
Rautt á rúmið fyrir jólin
Í rúmfatnaðinn hjá Rúmföt.is eru
eingöngu notuð 100 prósent nátt-
úruleg efni.
„Bæði damaskið hjá okkur og
satínið eru úr 100 prósent bómull.
Munurinn á damaski og satíni er
sá að í damaski er munstrið ofið
í efnið. Damask er því einlitt og
munstrið breytir um blæ eftir því
hvernig birtan fellur á það, ýmist
dökkt á ljósara eða ljóst á dekkra.
Satín er slétt og getur verið einlitt
eða áprentað,“ útskýrir Hildur.
Til dæmis er til 600 þráða einlitt
satín í öllum regnbogans litum hjá
Rúmföt.is, meira að segja ljósgyllt
og grásilfrað.
„Ef svefnherbergið er litlaust
má peppa það upp með skemmti-
legum lit á rúmfötum eða láta
rúmfötin tóna við veggina, séu þeir
eru í fallegum lit. Það verður leiði-
gjarnt að hafa allt grátt, þótt það
sé tískuliturinn á Íslandi núna, og
þá er svo gaman að setja himinblá,
fjólublá eða sægræn rúmföt á til að
breyta til. Svo er auðvitað gaman
að setja gult á rúmið fyrir páskana
og í svartasta skammdeginu þegar
okkur vantar gleði og birtu, eða
rautt á jólunum og Valentínusar-
dag og þegar okkur vantar kraft
á morgnana til að koma miklu í
verk.“
Vaknað vel við glaðlega liti
Hildur segir konur stundum hafa
áhyggjur af því hvort eiginmenn
þeirra geti sofið undir bleikum
rúmfötum.
„Allir karlmenn sem ég hef spurt
setja það ekkert fyrir sig. Þeir
segjast frekar hugsa um gæðin, því
þeir loki augunum hvort sem er
og fari bara að sofa. En ég segi líka,
bleikt er litur ástar og kærleiks, og
ef ást og kærleikur eiga ekki heima
í svefnherberginu, hvar eiga þau
þá heima? Þannig að ef konur vilja
meiri ástleitni frá makanum þá er
um að gera að kaupa bleik sængur-
föt,“ segir Hildur sposk.
„Litir hafa miklu meiri áhrif á
okkur en við gerum okkur grein
fyrir og það er miklu betra að
vakna upp með fallega liti sem gefa
von og gleði og setja tóninn fyrir
daginn.“
Þvottekta og straufrítt
Börnum verður líka að líða vel á
nóttunni og í Rúmföt.is fást allar
stærðir og margs konar mynstur
sem henta öllum áhugamálum,
hvort sem það eru kanínur, vél-
menni eða bílar.
„Svo má ekki gleyma silkikodda-
verunum sem verða greinilega
jólagjöfin í ár, því ég hef varla við
að fylla á. Þau eru í sex litum, má
þvo á 30 gráðum, hengja svo upp
og um kvöldið eru þau tilbúin á
koddann,“ upplýsir Hildur innan
um heillandi silkikoddaverin.
„Konur spyrja oft hvort strauja
þurfi sængurfötin en því fleiri
þræðir sem eru í efninu því þéttara
er það og krumpast minna. Það
er því nóg að setja verin í fimm
mínútur í þurrkara, ef fólk á slíkt,
og slétta svo úr þeim þar sem þau
eru hengd upp.“
Svo má náttúrulega alltaf senda
sængurfötin í Þvottahús A. Smith
sem hefur langa reynslu af sængur-
verunum frá Rúmföt.is og fer vel
með þau.
„Foreldrar, sem báðir vinna
úti, eiga einmitt að nýta sér slíka
þjónustu, því tímasparnaður marg-
borgar sig. Bara að sleppa við að
þvo þetta stóra sparar heilmikið
stress og eykur tímann sem hægt
er að verja í gæðastundir með
börnunum. Þá koma sængurfötin
til baka straujuð, brotin saman og
fín.“
Magga heimilisleg í búðinni
Nú stendur yfir stækkun verslunar
Rúmfata.is við Nýbýlaveg.
„Það er eitthvað svo heimilislegt
við að hafa Margréti saumakonu í
búðinni. Fólk veit þá nákvæmlega
hver saumaði rúmfötin og getur
treyst því að það hafi ekki verið
fátækt barn í Bangladess með einn
dollara í laun á mánuði,“ segir Hild-
ur, en með stækkun verslunarinnar
fær Margrét enn stærra svæði með
glugga, svo aðstaða hennar verður
talsvert bjartari og rúmbetri.
„Þá stækkar barnahornið líka
og allar vörur njóta sín betur. Við
hlökkum mikið til þegar þetta
verður allt komið. Búðin er að
sjálfsögðu opin þótt framkvæmdir
standi yfir í næsta rými oag allir
eru hjartanlega velkomnir,“ segir
Hildur.
Rúmföt.is er á Nýbýlavegi 28 í
Kópavogi. Sími 565-1025. Opið
frá 12-17 virka daga og 11-15 á
laugardögum. Nánari upplýsingar
á rumfot.is
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R