Fréttablaðið - 21.11.2020, Blaðsíða 34
hentuðu mjög vel í þetta. Svo setti
pabbi auglýsingu á Facebook
síðasta laugardag og það varð
sprenging á sunnudag. Við spritt-
uðum allar krukkurnar að utan
og vorum með grímur þegar við
keyrðum þær út, en margir komu
líka heim að sækja sér sultu,“ segir
Eva Lind.
„Við höfum ekki enn gert neinar
tilraunir í eldhúsinu með rifsberja-
hlaupið en það væri gaman að prófa
að setja það í ostaköku eða eftir-
rétt,“ segir Eygló og bætir við:
„Mér fannst mjög góður lær-
dómur að gera rifsberjahlaupið
með ömmu og er spennt að gera
það aftur. Amma og pabbi þurfa þó
alltaf að vera til aðstoðar því safinn
af berjunum verður alveg ægilega
heitur og því geta krakkar ekki
sjálfir hellt hlaupinu í krukkurnar.“
Kófið gefur óvænt af sér
Þær Eva Lind og Eygló leggja báðar
stund á tónfræði og píanónám auk
þess sem Eva æfir frjálsar íþróttir
og Eygló fótbolta.
„Ég er ekki viss um að sultugerðin
hefði verið svona kraftmikil ef
ekki væri fyrir samkomubannið
og styttri skóladag. Samfélagið er
svo mikil maskína, það er stöðug
dagskrá, vinna og skóli, tómstundir
og íþróttir, en í kófinu skapast
tími, sköpunarkrafturinn fær að
njóta sín, og hugmyndir kvikna og
rætast,“ segir faðir þeirra, Árni Haf-
steinsson flugmaður.
Hann hafði vart undan að útvega
dætrum sínum sultukrukkur undir
rifsberjahlaupið.
„Það er alveg greinilega ákveðin
sultuþörf á sumum heimilum og
þeir sem komust ekki í sultugerð
eins og vanalega eru spenntir að
komast í gott hlaup. Ég hafði keypt
talsvert magn af sultukrukkum
í Bandaríkjunum en svo vantaði
meira og þá fór ég að skilja hvers
vegna fólk safnar krukkum því þær
eru dýrar hér heima, allt að 300
krónur stykkið. Þá er hagnaðurinn
fljótt farinn, en ég fann á endanum
krukkur á 100 krónur stykkið í
Bónus,“ segir Árni.
„Það jákvæða við kórónuveiruna
er að samverustundir fjölskyld-
unnar aukast. Þótt farsótt geisi er
maður ekki dauður úr öllum æðum
og verður að halda áfram að lifa.“
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
NÝ HÁRLÍNA FRÁ LAVERA
NÝTT
Sölustaðir: heilsuverslanir, Hagkaup, Heimkaup.is og valin apótek.
Fylgdu okkur:
„Lavera Íslandi“
• Einstök formúla sem þykkir og mýkir.
• Sjö nýjar tegundir af sjampói og næringu.
• Lífrænt vottað og sílikon frítt í endurunnum umbúðum.
Hugmyndin að sultugerðinni kviknaði þegar mig langaði í nýjan síma og var sagt að
ég ætti að safna mér fyrir honum
sjálf. Eygló systur langaði í raf-
magnshlaupahjól og átti líka að
safna sér fyrir því, en það tekur
krakka langan tíma að safna
peningum. Okkur datt þá bara í
hug að vinna fyrir þeim sjálf og
biðja ömmu að aðstoða okkur við
að búa til rifsberjahlaup,“ segir Eva
Lind Árnadóttir, sem ásamt Eygló
systur sinni fékk leyfi til að tína
rifsber í skólagörðunum í Garðabæ
í haust og endaði með fleiri kassa
af dýrindis berjum.
Amma systranna er Helga Frið-
riksdóttir, fyrrverandi kennari við
Hússtjórnarskólann í Reykjavík.
„Amma var mjög spennt að
kenna okkur að búa til rifsberja-
hlaup en þegar hún sá öll berin
sem við tíndum hrópaði hún upp
yfir sig: „Guð minn góður! Ég hef
aldrei séð svona mikið magn!“,“
segir Eva Lind um ömmu Helgu,
sem kann á því tökin að sulta og
tók því fagnandi að kenna sonar-
dætrum sínum að verða húslegri.
„Það er mikil sultumenning í
fjölskyldunni og afi, sem nú er á
Sólvangi, var vanur að fá sér þrjár
brauðsneiðar með rifsberjahlaupi
á morgnana og amma hefur alltaf
verið hugmyndarík og dugleg
að gera alls konar útfærslur af
sultum.“
Heilmikill lærdómur
Systurnar lærðu af ömmu sinni að
tvísjóða og tvísigta rifsberin en við
það að sjóða hratið aftur og bæta
við nokkrum frosnum hindberjum
kemur einstaklega ljúffengt bragð
af hlaupinu.
„Rifsberjahlaupið okkar er mjög
gott, sko,“ segir Eygló, sem er í
5. bekk í Hofsstaðaskóla, en Eva
Lind er farin yfir á unglingastigið
í 8. bekk í Garðaskóla. „Öðrum
krökkum finnst þetta sniðugt og
ein vinkona mín sagði að þetta
væri mjög flott hjá mér og vildi
kaupa af mér sultu,“ bætir hún við.
Það eru enda einhverjar sultu-
krukkur eftir þótt salan hafi
gengið vel hjá þeim systrum.
„Það er næstum komið fyrir
hlaupahjólinu með afmælispen-
ingunum sem ég átti en síminn er
dýrari en hjólið,“ upplýsir Eygló.
„Það er mjög góð tilfinning að
vinna fyrir hlutunum sjálfur í
stað þess að fá þá upp í hendurnar.
Maður þarf að hafa heilmikið fyrir
þessu og lærir af því. Kannski tími
ég svo ekkert að kaupa símann og
legg sultupeninginn inn á bók. Það
væri mér líkt,“ segir Eva Lind.
Spenntar að sulta meira
Sultukrukkur Eyglóar og Evu
Lindar eru listilega skreyttar.
„Við vildum hafa þær fallegar
og handskrifuðum miða á hverja
einustu krukku með flottum litum
sem Eygló fékk í afmælisgjöf og
Góð tilfinning að vinna fyrir hlutum
Garðbæsku systurnar Eva Lind og Eygló Árnadætur eru útsjónarsamar, sjálfstæðar og sjálfbjarga.
Þær tóku sig til og bjuggu til gómsætt rifsberjahlaup með ömmu sinni til að vinna sér inn aura.
Það var engin
smá uppskera
af bústnum
og safaríkum
rifsberjum sem
systurnar Eva
Lind og Eygló
fengu af blóm
legum rifsberja
runnunum í
haust og eins og
sjá má voru þær
alsælar með
afraksturinn.
MYNDIR/AÐSENDAR
Eva Lind með Helgu ömmu sinni að sigta og sulta úr rifsberjunum góðu.
Sultukrukkurnar eru handskrifaðar
og fagurskreyttar af systrunum.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R