Fréttablaðið - 21.11.2020, Blaðsíða 35
L AU G A R DAG U R 2 1 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0
Heilsustofnun
Sundlaugin í Heilsustofnun er dásamleg og margir hafa iðkað þar þjálfun undir handleiðslu fagmanna. Fengið líkamlega styrkingu um leið og fólkið getur notið fallegs umhverfisins. MYND/AÐSEND
Náin tengsl við náttúruna
lykill að góðum árangri
Á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði fá sjúklingar líkamlega og sálfélagslega endurhæfingu í dá-
samlegu umhverfi. Nú njóta þar endurhæfingar margir sem veiktust af COVID-19 í vetur og vor.
Starfsemi Heilsustofnunar í dag er nær eingöngu læknisfræðileg endurhæfing,“
segir Birna Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri lækninga hjá
Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði.
Þangað sækja um 1.350 manns
endurhæfingu á ári hverju sam-
kvæmt samningi við Sjúkratrygg-
ingar Íslands.
„Oftast er það heimilislæknir
viðkomandi sjúklings sem sendir
beiðni með rökstuðningi um þörf
á endurhæfingu til okkar og eftir
þeim upplýsingum sem koma
fram í beiðninni röðum við fólki á
mismunandi línur eftir því hvert
vandamál þess er. Við reynum
eins og hægt er að forgangsraða
sjúklingum eftir alvarleika, eins og
til dæmis þegar viðkomandi er við
það að detta út af vinnumarkaði
eða í brýnni þörf fyrir endur-
hæfingu af öðrum ástæðum,“ upp-
lýsir Birna, mitt í fagurri náttúru
Heilsustofnunar.
Einstaklingsmiðuð meðferð
Skjólstæðingar Heilsustofnunar
glíma við fjölbreyttan vanda.
„Segja má að þriðjungur þeirra
sem koma til okkar glími við ýmiss
konar stoðkerfisvanda og verki,
annar þriðjungur fólks kemur í
endurhæfingu vegna geðraskana,
alvarlegrar streitu og áfalla, og
svo kemur þriðjungur í öldrunar-
endurhæfingu, sem er líkamleg og
sálfélagsleg endurhæfing fyrir fólk
yfir sjötugt,“ útskýrir Birna.
KYNNINGARBLAÐ