Fréttablaðið - 21.11.2020, Qupperneq 36
Hún segir meðferðir á Heilsu-
stofnun ávallt vera einstaklings-
miðaðar og stjórnað af þverfagleg-
um teymum sem eftir atvikum eru
í: sjúkraþjálfari, íþróttafræðingur,
sálfræðingur, næringarfræðingur,
sjúkranuddari, sjúkraliði, hjúkr-
unarfræðingur og læknir.
„Hjá öllum okkar skjólstæðing-
um er áhersla á þjálfun og hæfi-
lega hreyfingu, gott mataræði og
góðan svefn, slökunarmeðferðir,
fræðslu og samtalsmeðferðir
þegar við á. Allir koma til okkar
í mánaðardvöl og það er oftar en
ekki lykilinn að góðum árangri,
að kúpla fólk út úr sínu umhverfi
og dvelja á þessum dásamlega stað
í nánum tengslum við náttúruna.
Þetta er sérstaklega mikilvægt
þegar um mikla þreytu er að ræða,
eins og til dæmis eftir alvarleg
veikindi, kulnun eða annars
konar örmögnunarástand.“
Lánsöm að vera laus við smit
Að undanförnu hafa Heilsu-
stofnun borist margar beiðnir
um endurhæfingu frá fólki sem
veiktist af COVID-19 síðastliðinn
vetur og vor.
„Flestir þeirra sem fengu veir-
una eru með mismikla síþreytu,
það er að segja óeðlilega líkam-
lega og andlega þreytu. Margir
eru enn óvinnufærir, meira en
sex mánuðum eftir veikindin. Við
búum vel að reynslu okkar síðustu
árin í meðferðum síþreytusjúk-
dóma og höfum í öndvegi að fólk
læri að stjórna orkunni sinni og
ofgeri sér ekki,“ segir Birna og
heldur áfram:
„Margir eru líka með einkenni
frá öndunarfærum, hjarta- og
æðakerfi eða meltingarfærum og
oft tengjast þessi einkenni truf lun
í ósjálfráða taugakerfinu. Fólk
glímir því við misalvarleg eftir-
köst sem fara lítið eftir því hversu
alvarleg veikindin voru á sínum
tíma. Flestir þola svo létta hjarta-
þjálfun en við fylgjumst mjög vel
með þessu fólki og erum stöðugt
að finna út hvaða meðferðir og
prófanir henta því best.“
Á Heilsustofnun ríkja skrýtnir
tímar eins og víðast hvar vegna
heimsfaraldursins.
„Við höfum hingað til verið svo
lánsöm að hafa ekki fengið neitt
smit inn á stofnunina í þá níu
mánuði sem kórónuveiran hefur
geisað hérlendis. Við höfum allan
tímann viðhaft strangar sótt-
varnir og ráðstafanir, til dæmis er
nú heimsóknarbann, grímuskylda
og tíu manna hámarksfjöldi í
hreyfitímum, en engu að síður
gengur starfsemin vel og er mikil
ásókn í að koma til okkar í endur-
hæfingu.“
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656.
Birna Guð-
mundsdóttir,
framkvæmda-
stjóri lækninga
á Heilsustofnun
NLFÍ. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ERNIR
Sigríður var svo ólánsöm að vera ein þeirra sem veiktust mjög alvarlega og var lögð
inn á spítala. „Ég er 48 ára, í fínu
formi og nákvæmlega ekkert sem
gaf til kynna að ég myndi veikjast
alvarlega.“
Lífið gjörbreyttist
„Í dag eru liðnir tæplega níu
mánuðir og ég er rétt hálf útgáfa
af sjálfri mér. Ég var mjög frísk,
drífandi og atorkusöm og ávallt
með marga bolta á lofti. Orku- og
úthaldsleysið er nú algjört, bæði
andlega og líkamlega. Ég þarf að
forgangsraða öllu sem ég geri og
skipuleggja dagana svo ég keyri
ekki á vegg. Heilaþokan er aðeins
að lagast en ég mundi ekki nokk-
urn skapaðan hlut. Í byrjun sept-
ember fannst mér þessi þó hægi
bati vera farinn að renna aftur-
ábak niður brekkuna. Ég var svo
heppin að fá þá inni í Hveragerði
þangað sem ég fór í lok september.“
Kom ný til baka
„Þar var tekið öðruvísi á málunum
en ég var vön að gera. Mér var
sagt að ég gæti ekkert þjálfað mig
til heilsu með meiri æfingum og
látum, það myndi ekki enda vel og
yrði alltaf bakslag. Ég var á þessum
tímapunkti alltaf að ofkeyra mig
þó mér fyndist ég ekki vera að gera
neitt merkilegt. Næstu fjórar vikur
var áhersla á slökun, léttar göngur,
vatnsleikfimi, jóga, nudd, streitu-
námskeið og fleira í þeim dúr. Ég
kúplaði mig alveg út og einbeitti
mér bara að því að gera eins og
mér var sagt. Ég kom kannski ekki
stútfull af orku heim, en ég fékk
nokkurs konar virkni-aðlögun þar
sem ég lærði að stjórna andlegri og
líkamlegri orku betur og forgangs-
raða. Ég er í sjúkraþjálfun og hreyfi
mig daglega, en passa að hvíla mig
líka svo ég hætti að keyra á þessa
blessuðu veggi alltaf hreint.“
„Starfsfólkið á Heilsustofnun
er alveg magnað og hélt ótrúlega
vel utan um mig. Mikil áhersla á
næringu og hvíld og öll meðferð
er einstaklingsmiðuð. Ég fékk
vikulega stundaskrá sniðna að
mínum þörfum og ef dagskráin
var of mikil var mér sagt að sleppa
frekar úr og hvíla mig. Þetta gerði
mér ótrúlega gott og hjálpaði mér
að læra á þennan nýja veruleika
meðan ég tekst á við eftirköst þess-
ara veikinda.“
Lærði að forgangsraða og
stjórna orkunni á nýjan hátt
Sigríður H. Kristjánsdóttir greindist með COVID-19 þann
8. mars. Hún var veik í fimm vikur og hefur glímt við
mikil eftirköst síðan. Hún segir dvölina á Heilsustofnun í
Hveragerði hafa haft gríðarlega jákvæð áhrif á líðan sína.
Sigríður er ein
þeirra sem
veiktust mjög
alvarlega af
COVID-19. Hún
segir dvölina í
Hveragerði hafa
haft mikil áhrif
á hugsunar-
hátt sinn hvað
endurhæfingu
og bata snertir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Ég greindist í lok mars. Inga konan mín og 19 ára sonur okkar greindust á svipuðum
tíma. Hann jafnaði sig f ljótt og
Inga hefur endurheimt um 80-90%
af heilsu. Sjálfur var ég ekki svo
heppinn.“
Einkenni Þorsteins voru ódæmi-
gerð sem varð til þess að hann
greindist seinna. „Ég þjáðist af
magakrampa og hélt engu niðri.
Kona mín minntist á þetta í
eftirlitssamtali og eftir að hjúkr-
unarfræðingur skoðaði mig var ég
lagður inn og loks greindur.“
Þorsteinn var í einangrun í fimm
vikur og sótti í sumar um að fara
inn á Reykjalund. Þar sem biðin
eftir innlögn var löng stakk Inga,
sem er lærður sjúkraþjálfari, upp á
því að, að Þorsteinn færi á Heilsu-
stofnun NLFÍ í Hveragerði. „Ég
viðurkenni að ég hafði mikla for-
dóma. Á svona heilsustofnun færu
eingöngu gamalmenni og ég var
ekki nema fimmtugur. En ég gæti
ekki hafa haft meira rangt fyrir
mér. Ég hafði verið með höfuðverk
í sex vikur og hann hvarf eftir tvær
vikur í Hveragerði. Eftir fjórar
vikur af tímum hjá sjúkraþjálfara,
nálastungum, núvitundarfyrir-
lestrum, leirböðum og fleiri með-
ferðum fann ég að ég var á bataleið.
Það hjálpaði líka að viðmótið frá
öllu starfsfólki þarna er fyrsta
flokks. Mér líður vel í hjartanu að
hugsa til baka og veit að ég á hik-
laust eftir að fara aftur, vonandi
ekki svona veikur heldur bara til
þess að núllstilla mig.“
200 orkuboltar
„Í dag er ég langt frá því að vera
með fulla orku. Lyktaskyn og
bragðskyn er nánast ekkert. Orkan
er misjöfn dag frá degi. Ég hef
ekkert unnið síðan í september.
Stundum líður mér eins og að ég
gæti vel farið í vinnu. Aðra daga er
það útilokað. Í Hveragerði lærði ég
að maður hefur bara takmarkaða
orku. Heilbrigð manneskja byrjar
daginn með 1.000 orkubolta
sem hún deilir á milli til dæmis
líkamsræktar, vinnu, gönguferðar,
garðvinnu og fjölskyldunnar. En
hvað gerir maður sem hefur bara
200 orkubolta í upphafi dags? Það
er mikilvægt fyrir minn bata að
halda áfram núvitundaræfingum
og fara í göngur en það er viss
áskorun að hætta göngu eftir
tvo kílómetra. Því ég veit að ef ég
fer lengra þá fæ ég það í hausinn
daginn eftir. Þetta eru ekki stórir
sigrar, en þetta eru sigrar.“
Ekki stórir sigrar,
en samt sigrar
Þorsteinn Hallgrímsson er einn
af þeim sem hafa greinst með
COVID-19 sjúkdóminn. Síðan þá hefur
hann glímt við alvarleg eftirköst.
Eftir fjórar vikur á Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði segist Þorsteinn
Hallgrímsson þakklátur fyrir alla
litlu sigrana. Hann sé á hægum
batavegi, en batavegi engu að síður.
n Geðendurhæfing
n Gigtarendurhæfing
n Hjarta- og lungnaendurhæfing
n Krabbameinsendurhæfing
n Öldrunarendurhæfing
n Tauga- og bæklunarendur-
hæfing
n Offitu- og efnaskiptameðferð
n Streitumeðferð
n Verkjameðferð
Meðferðarlínur Heilsustofnunar
2 KYNNINGARBLAÐ 2 1 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RHEILSUSTOFNUN NLFÍ